Feykir


Feykir - 12.12.2001, Blaðsíða 5

Feykir - 12.12.2001, Blaðsíða 5
43/2001 FEYKIR 5 Í'ÆKEB-Jj PRUGT 1 ýÖCKTAIL -R*-»orapo1 - Rlidursudu- tilboðin byrja Frábært verð í aðdraganda að sameiningu ellefu sveitarfélaga í Skagafirði var lögð þung áhersla á að meginverkefni næsta kjörtíma- bils væri að styrkja alla innviði hins nýja sveitarfélags. Meðan að því væri unnið skyldi farið afar gætilega í því að láta sveitarfélagið stofha til nýrra fjárskuldbindinga og forðast áhættu í ijárfestingum. Sá sem hér ritar vann fyrir sameining- arnefndina á þessum tíma og lagði fram þá hugmynd að oddvitar hinna gömlu hreppa, og þeir sveitarstjómarmenn á Sauðárkróki sem stóðu að sameiningarferlinu tækju beinan þátt í myndun fyrstu sveitarstjómar hins nýja sveit- arfélags. Milli þessara fulltrúa hafði skapast trúnaður. Enn- fremur var gert einskonar heiðursmannasamkomulag um ýmsa þætti í rekstri sveitarfé- lagsins næstu misseri, sem erfitt var að framselja til póli- tiskt kjörinnar sveitarstjómar. Því miður var sú leið ekki valin. Keyrt upp á blindsker Þegar litið er yfír farinn veg er ljóst að sá meirihluti sem tók við stjóm sveitarfélagsins að loknum kosningum gerði röð mistaka í ákvörðunum sínum og fór óvarlega í fjármálum. Skuldimar hlóðust upp og lítið var gert til að treysta innviði sveitarfélagsins og samstöðu íbúanna. Enda fóm leikar svo að meirihluti sveitarstjómar sprakk á sl. sumri. Ekki verður séð að öldurnar hafi lægt þó nýr meirihluti hafi tekið við. Og það jafnvel þótt verktaka- fýrirtæki í Reykjavík hafi ver- ið ráðið til þess að annast sveitarstjómina. Á kynningafúndum fyrir sameininguna var t.d. lögð á- hersla á að öflugar deildir hins nýja sveitarfélags væm í Hofs- ósi og Varmahlíð og þjónustu- fúlltrúar víðar. Með því yrði tryggð nálægðin við íbúana og áfram stutt við smærri byggðakjama í héraðinu. Þessu hefur ekki verið fylgt eftir. Frá sveitarstjóm hafa komið tillög- ur um að loka gmnnskólum í héraðinu eða skerða starfsemi þeirra, sem gengu þvert á gef- in fýrirheit fyrir sameininguna. Sala Rafveitu Sauðárkróks Hið nýjasta á vettvangi sveitarstjómarmála Skaga- fjarðar er sala á Rafveitu Sauðárkróks. Samstaða var um það innan sameiningar- nefhdar sveitarfélaganna að ekki stæði til að hrófla við Raf- veitu Sauðárkróks. Rafveitan hafði skilað Sauðárkróki dijúgum tekjum og stutt við Söfnuðu handa RKI Þessir duglegu krakkar tóku sig til og héldu tombólu á dögunum og létu ágóðann renna til Rauðakrossdeildar Skagfjarðar, annars vegar 2.444 krónur og hinsvegar 5.196 krónur. Á stærri myndinni eru þau Fannar Amarsson og Kristín Snorradóttir í effi röð og í neðri röð: Steinunn Snorradóttir, Hjalti Amarsson og Halldór Amarsson. Á þá mynd vantar þau Söru Rut, Guðjón Karl, Rúnar Áka, Gísla Rúnar og Þengil Otra. Á minni myndinni em þeir Fannar Amarsson og Stefán Sandholt. starfsemi bæjarfélagsins með ýmsum hætti. Það vom því all- ar forsendur til þess að hún yrði rekin áfram sem öflugt fýrirtæki og sem skapaði sókn- arfæri í orkubúskap og at- vinnumálum vítt og breitt í hinu nýja sveitarfélagi. Vita- skuld var ekki hægt að útiloka breytingar á rekstrarfýrirkomu- lagi í ffamtíðinni, en samt óraði fáa fýrir því að Rafveitan yrði seld áður en eitt kjörtímabil væri liðið ffá sameiningu sveitarfélagsins. Þegar svo Alþingi ákvað nú á dögunum að láta Rarik fá 300 miljónir til að kaupa Raf- veitu Sauðárkróks mótmæltu nokkrir þingmenn sjálfstæðis- manna og studdu eða sátu hjá við tillögu Vinstri-grænna og Frjálslyndaflokksins um að hafha þessari leið. Miðað við þá stöðu sem þessir þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa gagnvart ríkisstjóminni er lík- legt að þeir hefðu getað stöðv- að fjárveitinguna til Rarik vegna kaupanna ef þeir hefðu brugðist við í tíma og af fúllri einurð. Ef fer sem horfir verð- ur Rarik einkavætt og selt á næstunni og getur eignarhaldið farið til hvaða heimshluta sem er. Möguleikar Skagfirðinga til að nýta sér orkuveitur sínar til ffamfarasóknar eins og sveitar- félögin á suðvestur hominu hafa gert er nú verulega skert- ur. Salan á Rafveitu Sauðár- króks samrýmist ekki þeim yf- irlýsingum sem gefnar vom fýrir sameininguna. Ennffem- ur er ffamtíð RafVeitunnar svo mikilvægt mál að eðlilegt hefði verið að leggja hana und- ir dóm kjósenda í komandi sveitarstjómarkosningum - og taka síðan ákvörðun með end- umýjuðu umboði nýrrar sveit- arstjómar. Framtíðin snýst um trúnað Að sjálfsögðu verður sveit- arstjómin á hveijum tíma að taka ákvarðanir um rekstur sveitarfélagsins. Sumar þeirra geta verið sársaukafúllar. En hún verður að hafa ffamtíðar- sýn og vilja til þess að stýra þróuninni í þá átt sem íbúamir vilja stefna. Sú sveitarstjóm sem tók við hinu nýja sveitar- félagi eftir umdeildar samein- ingarkosningar bar að virða þann sameiningaranda sem í- búarnir sýndu þegar þeir á- kváðu að leggja stóran hluta héraðsins saman í eitt sveitar- félag. Henni bar að leggja höf- uðáherslu á að byggja upp trúnað og styrkja innviði hins nýja sveitarfélags. Það hefur hún því miður ekki gert sem skyldi og þess vegna hlýtur það mikilvæga verkefni að bíða nýrrar sveitarstjómar, sem brátt mun taka til starfa. ♦ * Kodak 24 myndg 200 asa ALAUGARDAG! Hvaða vara verður seld á 1 kr. kg.? Sala hefst kl. 14.00 ATH! Takmarkað magn Gunni og Felix skemmta kl. 14 og kl. 17 þau fyrirheit sem gefin voru Sveitarfélagið Skagafjörður og

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.