Feykir - 12.12.2001, Qupperneq 7
43/2001 FEYKIR 7
Axel Hólm Gísla- +
sonfráMiðdaÍ
Axel Hólm Gislason fæddist
á Laugarbóli í Skagafirði 23.
júlí 1944. Hann lést á
Sjúkrahúsinu á Sauðárkróki 30.
nóvember sl. Foreldrar hans
voru hjónin Gisli Ingólfsson og
Sólborg Sveinsdóttir bæði
œttuð í Skagafirði.
Eftirlifandi eiginkona Axels
er Jódís Jóhannesdótir frá
Merkigili í Austurdal, fiedd 8.
apríl 1944. Axel og Jódís
eignuðust tvö börn, Moniku
Sólboigu ogJóhannes. Monika
og maður hennar Hafsteinn
Kristinsson búa i Miðdal í dag
og eiga þau þrjú börn.
Jóhannes, sem á dóttur með
jyrrum eiginkonu, er verka-
maður i Borgarnesi.
í dag, laugardaginn 8. des-
ember 2001, kveðjum við bróð-
ir minn, Axel, aðeins 57 ára að
aldri. Hveijum skyldi hafa dott-
ið það í hug að hann fengi ekki
fleiri ár, maðurinn á besta aldri
ef svo má segja, því ekki telst
þetta hár aldur í dag. Hann sem
var alla tíð hreystin uppmáluð,
lifði heilbrigðu lífi og hvorki
reykti né drakk áfengi.
Við Axel bróðir ólumst upp
saman á Laugarbóli þar til
1954, að undirritaður lauk
bamaskólaprófi og fór til
Reykjavíkur til áframhaldandi
náms, en þá var Axel aðeins tíu
ára. Að vísu var ég næstu þijú
eða fjögur sumur að Laugar-
bóli. Upp úr 1960 fer hann suð-
ur á Reykjavíkursvæðið og
vann í Aburðarverksmiðjunni í
Gufunesi og bjó þá hjá móður
okkar og seinni manni hennar
Einari Þ. Jónssyni, sem vann í
verksmiðjunni, og áttu þau sitt
heimili í Gufúnesi á þessum
ámm. Var Axel þá tíður gestur á
heimili okkar Hönnu, en við
byrjuðum okkar búskap 1960
við Vesturbrún í Reykjavík.
Eftir að hann kynntist Jódísi
fara þau bæði að vinna í Áburð-
arverksmiðjunni í Gufúnesi og
flytja svo til Hveragerðis þar
sem Axel fer að starfa á bíla-
verkstæði hjá Aage Michaelsen.
Bjuggu þau svo í Hveragerði
næstu þijú árin.
Hugur Axels stóð alla tíð til
búskapar enda vanur sveita-
störfúin allt ffam á fúllorðinsár.
Þegar faðir okkar ákvað að
flytja á Reykjavíkursvæðið um
áramót 1964/1965 þá var fast-
mælum bundið að þau Axel og
Jódís keyptu af honum búið og
jörðina Laugarból. Tóku þau
hjón því við húsum og búpen-
ingi og hófú búreksturinn, en
frá Laugarbóli fluttu þau svo
vorið eftir og hurfú ffá kaupun-
um og öllu því viðkomandi,
enda gekk dæmið ekki upp. Og
það var ekki þeim Axel og Jó-
dísi að kenna!
Þar næst leigðu þau jörðina
Sveinsstaði í Lýtingsstaða-
hreppi og bjuggu þar í eitt ár. Þá
liggur leiðin í Litluhlíð í Vestur-
dal sem þau tóku á leigu og
héldu þar áffam búskap allt þar
til að þau keyptu jörðina Mið-
dal úr landi Svartárdals 1973.
Bættu þau siðan jörðinni Svart-
árdal við, er þá var komin í
eyði.
í Miðdal undu þau hag sín-
um vel, þar ólust bömin upp og
störfúðu að búrekstrinum með
foreldrum sínum. Þau hjón end-
urbættu jörðina stórlega, t.d.
girtu þau af alla landareign sína
með rafinagnsgirðingu og varð
affaksturinn sá að upp óx gróð-
ur hinn besti þótt lengst inni á
fjöllum væri, enda ekki lengur
átroðningur af hrossum og
sauðfé.
Axel var óhemjuduglegur
maður og ósérhlífinn og vann
langan vinnudag. Fannst manni
á stundum að þessi vinnuharka
hans við sjálfan sig næði engri
átt. En svona vildi hann hafa
þetta og þá gat nú enginn breytt
þvi. Hann var heldur ekki einn
þar sem Jódís var annars vegar.
Hann byggði í Miðdal hús
eitt mikið og stórt sem hann
notaði bæði sem fjárhús og
hlöðu og var útsjónarsamur um
hvemig haganlegast væri að
koma hlutunum fyrir til þess að
létta fólki störfin við gegning-
amar. Kom fyrir vel útfærðum
rafbúnaði til að taka rúllubagg-
ana og lyfta þeim upp í þar til
smíðaðar grindur, aðeins með
því að styðja á rofa. Þar með
var gamla aðferðin við að gefa
sauðfé úr sögunni á þeim bæ.
Með bústörfúnum ók Axel
vömflutningabílum, var við
smiðavinnu og í ýmsum verk-
efnum. Átti hann til dæmis stór-
an þátt í vinnu við endurbygg-
ingu Goðdalakirkju.
Monika, dóttir Axels og Jó-
dísar, hafði verið við nám og
störf á Akureyri og bjó þar með
manni sínum Hafsteini. Höfðu
þau mikinn áhuga á að ná sér í
jörð og fara út í búskap og varð
það úr að þau taka við búinu og
jörðinni Miðdal árið 1994 og
búa þar enn. Axel og Jódís
fluttu þá fyrst í Vannahlíð en
svo til Sauðárkróks þar sem
Axel starfaði hjá Vörumiðlun
við akstur. Varð hann fyrir
meiðslum í öxl við fermingu
vömbíls fyrir nokkrum árum og
náði ekki að verða jafngóður
affur þrátt fyrir meðferð lækna
svo og sjúkraþjálfún. Varð hann
því að hætta akstri flutningabíla
nú sl. vor.
Axel fór að vinna hjá frænda
okkar, Sigurði Friðrikssyni og
konu hans Klöru Jónsdóttur,
við ferðaþjónustuna á Bakka-
flöt í Skagafirði. Vann þar við
ýmislegt sem til féll en þó eink-
um akstur rútu sem ók fólki í
fljótasiglingamar (rafting) sem
fram fóm bæði í austari og vest-
ari Jökulsánum.
Við hjónin dvöldum í sum-
arbústað okkar skamrnt frá
Bakkaflöt í Skagafirði um síð-
ustu verslunarmannahelgi.
Fram hjá þeim bústað er ekið
rétt áður en komið er að Bakka-
flöt. Það kont vemlega flatt upp
á undirritaðan eftir að hafa séð
Axel koma á rútunni með einn
ferðahópinn út fljótasiglingu,
sunnudaginn i verslunarmanna-
helginni, að sama kvöld yrði
hann sendur til Akureyrar í höf-
uðmyndatöku. Hafði hann þá
fyrr um daginn orðið fyrir því
að geta ekki talað er hann ætl-
aði sér það.
Myndatakan fór ffam og
meinsemd kom í ljós, heilaæxli.
Axel hafði aldrei fúndið til,
hvorki í höfði né fengið nein
einkenni alvarlegra veikinda.
Var hann sendur suður á Land-
spítala daginn effir og því næst
í uppskurð á Landspítala í Foss-
vogi. Gekk aðgerðin vel, æxlið
fjarlægt og var hann kominn á
fætur eftir örfáa daga, en þama
var um illkynja krabbamein að
ræða og varÁxel sagt það strax.
Heimsóttum við bræður svo
móður okkar sem dvelur á
Hrafnistu í Reykjavík og áttum
þar á eftir langt samtal um stöð-
una og hvað framundan væri.
Var engan bilbug að finna á
Axel. Hann var ákveðinn í því
að fara í alla þá meðferð sem
læknar ráðlögðu sem voru
geislar og síðar ef til vill lyf, ef
þurfa þætti. Mátti hann fara
Smáauglýsingar
Vmislegt!
Til sölu Ford Sierra, árg. ‘87,
skoðaður °o2, en þarfnast lag-
færinga. Uppl. í síma 453 5603
heim á Sauðárkrók í hálfan
mánuð meðan skurðurinn var
að gróa, en korna síðan suður.
Og það gerði hann. Tók þá áð-
umefnd geislameðferð við í sex
vikur.
Axel fór að lamast um það
leyti er hann byijaði í geislun-
um og varð að fara í hjólastól.
Jódís vék aldrei frá manni sín-
um, var hjá honum vakin og
sofin allan sólarhringinn. Öll
hennar ástúð og umhyggja svo
og ummönnun verður aldrei
fúllþökkuð. Dvöldu þau hjónin
allan þennan langa tíma á
Sjúkrahóteli Rauða krossins við
Rauðarárstíg og fóru morgun
hvem þaðan í geislameðferðina
á Landspítala.
Alveg stóð hann sig eins og
hetja, eins og klettur í hafi þrátt
fyrir öll þessi áfoll, bugaðist
ekki og ætlaði svo sannarlega
ekki að láta í minni pokann fyrr
en í fúlla hnefana.
Eftir að geislaineðferð lauk
fór Axel norður og á Sjúkrahús-
ið á Sauðárkróki, þá orðinn al-
gjörlega lamaður. Þótt líkam-
legt ástand hans væri þannig
orðið vildi Axel að þau hjón fær
á bíl þeirra norður og Jódís æki
og varð ekki við annað kom-
andi. Það varð svo að vera, um
hann var búið í jeppanum og
Jódís ók. Gekk ferðin vel og
skilaði hún þessu verkefni með
eða 867 4882 e. kl. 18.
Til sölu Head skíðaskór, nr.
26,5. Upplýsingar í síma 896
3579.
Öðruvísi jólagjöll 3 hvolpar
fást gefins. Upplýsingar í síma
453 6548.
prýði eins og öllu öðm.
Hafði starfsfólk sjúkrahúss-
ins orð á því að sjaldan eða
aldrei hefði það orðið vitni að
annarri eins geðprýði, aldrei
skipti Axel skapi yfir einu eða
neinu og var alltaf sami ljúf-
lingurinn og hjúkmnarfólki
þakklátur. En nú var komið að
leiðarlokum.
Á aðeins fjórum mánuðum
er öllu lokið. Sem fyrri daginn
er glíman við krabbameinið
ójöfn, svo ekki sé meira sagt.
Svo varð einnig nú. Tíminn var
útmnninn.
Við eftir stöndum örvingluð
því ójöfn reyndist glíma,
samt við báðum góðan Guð
að gefa lengri tíma.
(I.D.G.)
Axel verður jarðsunginn frá
Sauðárkrókskirkju í dag, laug-
ardaginn 8. desember 2001, en
jarðsettur strax að athöfn lok-
inni í Reykjakirkjugarði, en þar
hvíla margir okkar ættingjar.
Burt er kvaddur bróðir minn
ég bara skil ekki tilganginn
hví fékk hann ei lifað lengur?
Ástæðu þess enga finn
og eftir sit með tár á kinn,
því genginn er góður drengur.
(I.D.G.)
Ingólfur Dan og Jóhanna.
Innilegar þaþþir til allra þeiira sem sýndu oþþur samúð og hlýhug
á margvíslegan hátt við andlát og útfór eiginmanns míns,
fóður, tengdaföður, afa, sonar og bróður
Axels Hólm Gislasonar
frá Miðdal - Kvistahlið 15, Sauðárkróki
Sérstaþar þakjþr fierum við lceþnum og hjúþrunaifólþi öllu á deild I
á Sjúþrahúsi Sauðárþróks, staiffólkj Rauðakiosshótelsins við Rauðarárstíg
svo og Krabbameinsfélagi Skagafjarðar.
jódís Jóhannesdóttir
Monika 5. Axelsdóttir Hafsteinn Kristinsson
Jóhannes Axelsson
Andri Freyr, Arnar Þór, Katn'n Eva, Jódís Anna
Sólborg Sveinsdóttir
Ingólfur Dan Gíslason
Epson -deildin Tindastóll - Skallagrímur sunnudagskvöld kl. 20.
Nýtt Herbalife! Komin ný hraðvirkari grenningarlína ásamt gömlu góðu. Prófaðu Iíka súkkulaðið og nýja bragðteið. Hafðu samband og kynntu þér vöruna. Guðný sími 896 3110.