Feykir - 20.03.2002, Side 7
10/2002 FEYKIR 7
Hver er
maðurinn?
Engar upplýsingar fengust
urn myndimar sem birtar voru
í síðasta myndaþætti. Nú eru
birtar fjórar myndir sem bárust
safiiinu úr búi Indriða G.
Þorsteinssonar rithöíúndar.
Þeir sem þekkja myndimar em
vinsamlegast beðin um að hafa
samband við Héraðsskjalasafn
Skagfirðinga í síma 453 6640.
Úti ævin-
týri í körfii-
boltanum
Úti er ævintýri hjá Tinda-
stólsmönnum í úrslitakeppni
Epsondeildarinnar í körfú-
bolta. Þeir náðu aldrei upp
sömu stemningunni og fleytti
þeim svo langt í keppninni í
fyrra og féllu út fyrir Grinvík-
ingum í 8-liða úrslitum með
fremur slakri frammistöðu.
Töpuðu fyrri leiknum með 10
stigamun á Króknum og þeim
seinni með 21 stigi i Grinda-
vík. Ljóst er að framundan er
einhver uppstokkun í herbúð-
Nr. 394.
um Tindastóls, til að mynda
mjög líklegt að Valur Ingi-
mundarson þjálfari muni ekki
þjálfa liðið næsta vetur. Þá má
búast við einhveijum breyting-
um í leikmannahópnum en
vonandi mæta Tindastólsmenn
sterkir til leika aftur að hausti.
ískappreiðar á
Tjarnartjörn
Hér fara á eftir úrslit frá
Vetrarmóti Stíganda, Léttfeta
og Svaða sem haldið var á
Tjamartjörn við félagssvæði
Léttfeta laugardaginn 9 mars
sl. Keppnin var með firma-
keppnisformi og var keppt í 3
flokkum auk lOOm skeiðs, alls
um 70 skráningar.
Efst urðu: í Barna og ung-
lingaflokki, Ásta Björk Páls-
dóttir og Hugi ffá Flugumýri.
í áhugamannaflokki Hjörtur
I. Magnússon og Snót ffá
Þverá og í atvinnumannaflokki
Skafti Steinbjömsson og Ilm-
ur ffá Hafsteinsstöðum og í
lOOmetra skeiði Gunnlaugur
Jónsson og Fjölnir.
Böm og unglingar:
1. Ásta Björk Pálsdóttir og
Hugi 7v. jarpur.
2. Þórey E. Magnúsdóttir og
Hekla 7v. rauðblesótt.
3. Sæunn K. Þórólfsdóttir og
Spói lOv.jarpur.
4. Anna L. Guðmundsdóttir og
Spegill 6v. rauðblesóttur.
5. Hannes B. Sigurgeirsson og
Flosi 19v. móálóttur.
Áhugamenn:
1. Hjörtur I. Magnússon og
Snót 8v. rauð.
2. Páll Friðriksson og Kvistur
8v. rauður.
3. Rósa M. Vésteinsdóttir og
Amor 8v. rauður.
4. Búi Vilhjálmsson og Skíði
7v. rauður.
5. Brynjólfur Jónsson og Grett-
ir 6v. grár.
Atvinnumenn:
1. Skaffi Steinbjömsson og
Ilmur 5v. grár.
2. Páll B. Pálsson og Kormák-
ur lOv.jarpur.
3. Jóhann Þorsteinsson og
Skári 5v. brúnskjóttur.
4. Bjami Jónasson og Þyrill 8v.
grár.
5. Bergur Gunnarsson og
Skuggi 6v. dökkjarpur.
1 OOm skeið:
1. Gunnlaugur Jónsson og
Fjölnir 1 lv. brúnskjóttur.
2. Ragnar Eiríksson og Spói
9v. rauður.
3. Jóhann Þorsteinsson og Al-
vari 6v. móálóttur.
4. Bjami Jónasson og Tópas -
brúnn.
5. Jakob Einarsson og Gjafar
9v. brúnn.
Smáauglýsingar \™í?ÁT,„or»árg
'91, breyttur. Upplýsingar í
síma 453 5785.
Feykir
.......ljós punktur í tilverunni
Félagsvist!
Félagsvist verður spiluð í Höfðaborg á Hofsósi
fimmtudaginn 21. mars og 4. apríl. Góð
verðlaun- kaffiveitingar.
Félag eldri borgara Hofshreppi.
Þú verður ekki straumlaus með
Data-rafgeymi í bílnum
OLÍS - umboðið
Verslun Haraldar Júlíussonar
Nr. 395.
Skagafjörður
Um breytingar á aðalskipulagi Varmahlíðar
í Skagafirði 1995-2015, og tillaga að
deiliskipulagi frístundabyggðar vestan
Reykjarhóls í Varmahlíð í Skagafirði.
Samkvæmt 1. mgr. 21.gr. skipulags og byggingarlaga nr. 73/1997, er hér með lýst eftir
athugasemdum við breytingum á aðalskipulagi /armahlíðar í Skagafirði 1995-2015.
Breytingarnar felast í eftirfarandi:
1. Opið svæði til sérstakra nota, breytist í land undir frístundabyggð (ca. 5,5 ha.).
2. Svæði undir frístundabyggð stækkar (verður ca. 20 ha.) og opið óbyggt svæði
verður opið svæði, til sérstakra nota. Ennfremur fellur vegur (gegnum svæðið út.
3. Opið svæði til sérstakra nota og land undir íbúðir eftir lok skipulagstímabils,
breytist í land undir frístundabyggð (ca. 5,0 ha.).
4. Land undir íbúðir, eftir lok skipulagstímabils breytist í opið svæði til sérstakra nota.
Jafnframt erauglýst tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar skv. 1. mgr 25 gr. sömu laga
vestan Beykjarhóls. Skipulagstillögur liggja frammi á skrifstofu Skagafjarðar við Faxatorg
á Sauðárkróki, íanddyri sundlaugarinnar í Varmahiíð og hjá þjónustufulltrúa á skrifstofunni
í Miðgarði frá W.mars til 22. apríl 2002. Athugasemdum við skipulagstillögurnar skal
skila á skrifstofu Skagafjarðar fyrir 7. maí2001 og skulu þær vera skriflegar. Þeirsem ekki
gera athugasemdir innan tilskilins frests teljast samþykkir tillögunni.
Skipulagsfulltrúi Skagafjarðar
Skagafjörður
Útboð
Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir tilboðum í gatnagerð
og lagnir í Iðutún og Forsæti, Sauðárkróki.
Helstu magntölur eru : Gröftur 3850 m\ neðra burðarlag
4900 m \ steinlagnir 900 m. Útboðsgögn verða seld hjá
Stoð ehf. verkfræðistofu aðAðalgötu 21 Sauðárkróki, frá og
með föstudeginum 22. mars nk. gegn 2.500.- kr. gjaldi.
Frestur til að skila tilboðum er til kl. 1100 föstudaginn 3.
apríl nk. á skrifstofu Skagafjarðar við Faxatorg Sauðárkróki.
Verklok eru áætluð 21. júní 2002.