Feykir


Feykir - 17.04.2002, Side 6

Feykir - 17.04.2002, Side 6
6 FEYKIR 13/2002 Hagyrðingaþáttur 336 Heilir og sælir lesendur góðir. Gott er að byija með eftirfarandi vísu Einars Sigtryggssonar á Sauðár- króki. Gengur yfir glæpaöld grimmd og harka blasir við. Allir slást um auð og völd ágimd þjáir mannkynið. Annar ágætur hagyrðingur á Sauð- árkróki Stefán Guðmundsson ríkis- stjóri sá nýbirtan framboðslista sjálf- stæðismanna til næstu sveitarstjómar- kosninga. Vakti þar athygli hans að þekktur bóksali þar í bæ hafði hækkað um eitt sæti á listanum frá því að síðast varkosið. Af þvi tilefni orti Stefán. Undur hægt þinn vegur vex og verður ekki meiri að sinni, þótt núna sértu númer sex og nærri einn af hreppsnefndinni. Áffam skal haldið með ágætt efhi til þáttarins ffá Skagfírðingum. Þegar sól- in skein í heiði á vorinngöngudeginum orti Sigmundur á Vestari-Hóli svo. Nú er orðið bjart um ból bændum flest i haginn. Vetri hallar vermir sól á vorinngöngudaginn. Forsætisráðherra Davíð Oddsson sagði um það leyti sem framboðslisti Sjálf- stæðismanna í Reykjavíkurhreppi leit dagsins ljós að Björn Bjarnason væri duglegur og mikill vinnuhestur. Bjöm tók eins og kunnugt er efsta sæti á D- lista sem Inga Jóna var reyndar búin að lýsa yfir að ætla sér að vinna í prófkjöri sem hætt var svo við að framkvæma. Um það ferli yrkir Sigmundur svo. Vinnuhestur Bjöm hann ber byrðar, það er vissa. Inga Jóna ekki er orkumikil hryssa. Um samgönguráðherrann fæðist effirfarandi vísa hjá Sigmundi. Sturla aurum eyða kann oft með dæmum sannað. Mammonsvinir meta hann meira en nokkuð annað. Áffarn skal haldið með framlag ffá Skagfirðingum til þáttarins, sem ég ít- reka þakkir mínar fyrir. Það er Stefán Haraldsson bóndi og vörubilstjóri ffá Víðidal sem hugsar svo fallega til vor- daganna sem em nú á næsta leyti. Vetur sleppir viðjum kífsins vaknar þrá hjá spmnd og hal. Senn mun birtast sigur lífsins senn mun koma vor í dal. Þá leysir snjó af laut og bala lækir sitra, fossinn hlær. Strengir titra steinar tala streymir lífið nær og Ijær. Á aðalfúndi Félags hrossabænda 2001 var lögð ffam tillaga þess efnis að hafna alfarið sölu á sæði stóðhesta úr landi. Fögð var áhersla á að æxlun hrossa sé með sem náttúrulegustum hætti. Eftir að hafa heyrt umræddan málflutning orti Hreiðar Karlsson svo. Þó svo að bændumir þurfi fé og þeirra afkomu laga mætti æskilegt þykir að æxlunin sé aðeins með náttúrulegum hætti. Að loknu hádegisverðarhléi um- ræddan fúndardag vantaði allmarga þingfúlltrúa í salinn. Birna í Skáney þóttist vita að þeir hefðu skroppið i Hagkaup. Um þau tíðindi orti Hreiðar. Allir sem komu á fúlltrúa fúnd fá sitt ríflega dagkaup. Eftir að dvelja hér dálitla stund drífa þeir sig í Hagkaup. Þorkell Guðbrandsson bóndi á Mel í Borgarfirði sendi eftirfarandi skilaboð til kúasæðingarmanns. Ein hér kýrin öskrar mest ör með hjartslátt tíðan. Treysti ég þér Bogi best að bæta hennar líðan. Þegar Ómar Ragnarsson hafði farið hamförum í fféttatíma í túlkun sinni á ofbeit og landeyðingu orti Þorkell. Hefúr víða á Frúnni farið filmað hraun og eyðisker ætli hann hafi augum barið ofbeitina á höfði sér. Það er Vigfús Pétursson í Hægindi sem yrkir svo í orðastað hestamanna. Helst mig yngja hestaþing hendur um bringu runnu. Fima kringum fáka syng finn mér þyngri Gunnu. Þegar rætt er um vændi á íslandi yrkir Vigfús. Stelpum sem að stífúi lina og strætin mæla oft í bitið, má borga fyrir brúkunina bara ef það er nógu lítið. Hinn kunni leikari Flosi Ólafsson sá nágranna sinn á hestbaki og orti svo. Fattur situr Fúsi í hnakk. Fúsi er dálitið valtur, enda er hann á Eðalblakk og Eðalblakkur haltur. Þegar Flosi fór að stunda hestaferð- ir með ferðamann tóku veraldlegar eig- ur hans að ríma óeðlilega. Þá varð þessi til. Eigur minar fara á flakk um ferðamannatímann. Mig vantar bæði beisli og hnakk buxurnar og símann. Veriði þar með sæl að sinni. Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum, 541 Blönduósi, sími 452 7154. Undir borginni Fundurinn á ströndinni við ysta haf Margt getur kallað á líkingasögur eða launpólitískar táknmyndir í ein- ræðisríkjum, en í lýðræðishráu landi á borð við ísland má alveg eins slá á slík- ar nótur. Svo má segja: Skilji þeir sem skilning hafa. Það var fundur á ströndinni við ysta haf. Til hans var boðað af næstum átta ára gamalli alræðisforsjá, sem þráði sýnilega ákafl við breyttar aðstæður að fá að heyra einhveija nýja traustsyfir- lýsingu sér til handa. í þeirri gamal- grónu trú, að enn væru margir nytsam- ir sakleysingjar til með reikula veru- leikaskynjun, höfðu tölur verið settar á blað og hagræðingarhæfúi því samfara verið látin ganga undir sitt strangasta próf. Þeir sem á fúndinn mættu voru (auðvitað þó í huglægum skilningi) leiddir inn í almyrkvað herbergi þar sem ekki sást handaskil. Þar var svo skýrsla lögð fram og lagt út af 1/10 hluta hennar sem var um það bil sá hluti mála sem talinn var tilheyra yfir- borðinu og þar með vera fljótandi í al- mennri umræðu. Þar sem aðstæður á fúndinum voru skuggalegar sem fyrr segir og skýrslan ekki svo auðlesin við þau skilyrði, lásu viðstaddir það eitt út úr svartnættinu sem sjónleysi hæfði. Eftir ljóslausa viðveru og framsett- ar skýringar sem minntu eiginlega einna helst á keldur og kviksyndi, lauk fúndi með því að einn fúndarmanna talaði effirfarandi orð af miklum mynd- TAXI Ragnar Guðmundsson Gilstúni 24 Heimasími 453 5785. GSM 897 6085 Frá stjórnmálafundi á Skagaströnd, ómyrkvuðum, ekki eins og Rúnar lýsir í þessum pistli sínum, sem er svona í dekkra lagi. ugleik út í myrkrið: „Góðir hálsar, ég sé að vísu ekki nokkurn skapaðan hlut, en ég legg samt til að þeir sem leiddu okkur inn í þetta myrkur sem við erum staddir í verði áfram samþykktir, í altækum skilningi, sem leiðsögumenn okkar um ókomin ár. Þeir rata áreiðanlega best af öllum þar sem dimmt er, að tjaldabaki og víðar. Svo held ég að líf í myrkri sé alls ekki svo slæmt þegar á allt er litið. Það er nefúilega mín skoðun að maður eigi ekki að þurfa að hafa áhyggjur af því sem maður sér ekki, og eins og ég sagði í upphafi, þá sé ég ekki neitt, svo það hlýtur að þýða að allt sé í himna- lagi!” Það var smáþögn í myrkrinu, en svo heyrðust einhverjir hósta, en það var ósköp hógværlega gert, því alræð- isforsjá er jú alræðisforsjá. Ef til vill hefúr þó myrkrið gert það að verkum, að sumir hafi leyft sér að glotta út í annað og það er eiginlega fyrirgefanlegt við forsendur svipaðar þeim sem þama ríktu. En mikið er það annars gott að menn ræði um málin jafnvel þótt það sé gert í sólarleysi og svartnætti. Myrkrið á fúndinum var svo sem mjög lýðræðislegt eins og vænta mátti! Alræðisforsjáin þakkaði fyrir sig og sleit fúndi. Rúnar Kristjánsson.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.