Feykir - 02.10.2002, Síða 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Snorri til Byggðastofnunar
osingum en Skagfirðingum
Olíusölufyrirtækin juku þjónustu
sína á Blönduósi í síðasta mánuði,
þegar komið var upp sjálfsafgreiðslu,
bæði hjá Essóskálanum og Olís, þar
sem sett var upp OB stöð. Blönduós-
ingar og ferðamenn um þjóðveg eitt
eiga því nú kost á að kaupa bensín á
bílinn fimm krónum ódýrari líterinn
en á almennu verði, með því að af-
greiða sig sjálfir. Ekki er ennþá farið
að bjóða upp á sjálfsafgreiðslu hvorki
á Sauðárkróki né Varmahlíð og standa
því Skagfirðingar höllum fæti gagn-
vart Blönduósingum hvað verðar
þessa þjónustu.
Zophanías Lárusson verslunar-
stjóri á Essóskálanum á Blönduósi,
sagði að nú gætu viðskipavinir ekið
upp að ytri eyjunni við skálann og
dælt þar á bílinn og borgað með kort-
inu. Fyrir þá sem væru með safnkort-
ið sé verðið fimm krónum lægra en
við ynnri eyjuna, þar sem starfsfólk
Esso dælir á bílinn. Zophanías segir
að þessari þjónustu hafi verið vel tek-
ið og bæjarbúar á Blönduósi nýttu sér
það mikið að kaupa ódýrara bensín. Á
OB-stöðinni hinum megin við ána er
hinsvegar einungis boðið upp á sjálfs-
afgreiðslu.
Hjá Esso á Sauðárkróki og í
Varmahlíð hafa um árabil verið bens-
insjálfsalar, en verðið hefur verið það
sama og þegar afgreiðslufólk dælir á
bílinn. Gunnar Bragi Sveinsson versl-
unarstjóri i Ábæ á Sauðárkróki segir
að vissulega ætm Skagfirðingar að
njóta samþærilegra kjara varðandi
eldsneytiskaup og nágrannar þeirra, á
Blönduósi og Akureyri. „Við fylgj-
umst vel með þessum málum og höf-
um fúllan hug á því að þoka þeim í
rétta átt”, sagði Gunnar Bragi Sveins-
son.
Það var sviptnigasamt á köflum í almenningnum í Laufskálarétt sl. laugardag.
Nýjasti starfsmaður Byggðastofnun-
ar á Sauðárkróki er enginn annar en
Snorri Björn Sigurðsson fyrrverandi
sveitarstjóri í Skagafirði. Snorri hóf í
gær, þriðjudag, störf á þróunarsviði
stofnunarinnar. Við ráðningu Snorra
Bjöms mun hafa verið horft til mikillar
reynslu hans við stjómun sveitarfélaga.
Snorri Bjöm hafði áður gefið það út
að hann vildi gjaman starfa áffam á
svæðinu og í samtali við Feyki kvaðst
hann vera ánægður með það að fá tæki-
færi til að starfa fyrir Byggðastofnun.
Nú tæki við reglubundið líf að nýju, en
Snorri hefúr verið í íhlaupaverkefnum
í hálft annað ár eftir að hann hætti sveit-
arstjórastörfúm.
Fulltrúar SSNV á landsfundi sveitarfélaga
Óttuðust að völd sín myndu
minnka innan sambandsins
féllust á þessa málamiðlun
og okkar tillögu var í kjöl-
farið vísað frá”, segir Guð-
mundur Guðlaugsson bæj-
arstjóri á Siglufirði formað-
ur Sambands sveitarfélaga á
Norðurlandi vestra.
Guðmundur segir að það
sé í farvatninu að landsþing
verði haldin árlega í stað
fjórða hvert ár eins og nú er
og með þeirri breytingu yrði
fúlltrúaráðið lagt niður. Þá
þurfi ekki að deila um full-
tiúafjölda þar sem hvert
sveitarfélag eigi þá minnst
einn fúlltrúa á landsþingi.
„Þetta er eðlileg breyting
að okkar mati, í kjölfar þess
að sveitarfélögum er að
fækka og þau að stækka.
Okkur fannst þetta því á-
sættanleg málamiðlun á
þinginu”, segir Guðmundur
Guðlausson formaður
SSNV
Fulltrúar sveitarfélaga af
Norðvesturlandi voru ósátt-
ir með lagabreytingar sem
lágu fyrir þingi Sambands
sveitarifélaga, sem haldið var
á Akureyri um og fyrir síð-
ustu helgi. Lagabreytingam-
ar fólu meðal annars í sér
minnkandi áhrif Norðvest-
urlands í fúlltrúaráði sam-
bandsins. Þrátt fyrir að
fjölgað yrði í fúlltrúaráði úr
49 í 60 áttu fúlltrúum úr
nýja Norðvesturkjördæm-
inu að fækka um fjóra, og
færi þá norðvestursvæðið
verst út úr þessum laga-
breytingum.
„Okkur var sendur þessi
lagabreytingarpakki mánuði
fyrir þingið, en fengum síð-
an ekkert um hann að segja.
Við töldum t.d. viðmiðunina
vera ranga, það er kjör-
dæmamörk til Alþingis, þar
sem ekkert sjálfgefið væri
að landshlutasamtökin yrðu
innan þeirra marka. Við
lögðum ffam tillögu um að
þessum lagabreytingum
yrði ffestað og þau skoðuð
betur. Fram kom síðan
málamiðlun þess efúis að
boða til aukalandsþings eigi
síðar en effir tvö ár, þar sem
lögin verði yfirfarin. Við
Bensín ódýrara hjá Blöndu-
—Kten^if! ch|DI—
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
• VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
JfKJ
bílgverkstæðj
sími: 453 5141 V
Sæmundargata 1 b 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
jfcBílaviðgerðir Hjólbarðaviðgerðir
v fíéttingar # Sprautun