Feykir - 02.10.2002, Side 6
6 FEYKIR 33/2002
Hagyrðingaþáttur 346
Heilir og sælir lesendur góðir.
Það er Sigurjón Stefánsson bóndi á
Steiná í Svartárdal sem yrkir svo um
gangnaleytið.
Ýmsir leita á æðra svið
og þar gleði lofa.
Gangnamanna göfugt lið
gistir ijallakofa.
Jóhann Garðar Jóhannsson mun hafa
verið í Reykjavík er hann orti svo.
Mjög óþjálan strík ég streng
starfi bijálast virkur.
Afar hála götu geng
gegnum sálarmyrkur.
Bjöm Sveinbjörnsson heyrði vísuna
og svaraði með þessari.
Sálarmyrkur gegnum gekk
glataði styrk og hætti að rata.
Fór að yrkja en aldrei fékk
aftur virkilegan bata.
Friðjón Jónasson bóndi á Sílalæk
mun hafa ort þessa.
Þótt að margt mig gleddi gest
gifta mín því réði,
að hjartanu omað hefur best
heimafengin gleði.
Bjarni Jónsson frá Gröf mun vera
höfundur að þessari.
Áfram tifar tímans kvöm
tekst henni margt að gera.
Framhaldssaga fyrir böm
finnst mér lífið vera.
Önnur vísa kemur hér sem mig
minnir að sé eftir Bjama.
Á drykkju er ég alveg bit
ofl þó firulist gaman.
Ekki tel ég vín og vit
vilji búa saman.
Kristján Hjartarson á Skagaströnd er
höfúndur að næstu vísu.
Bylgja sjávar brött og há
brotnar gráum klettum á.
Yljar fáum ygld á brá
út sem þrá á höfin blá.
Það er Jón Eiríksson á Fagranesi sem
mun hafa ort þessa.
Oft til sólar hefúr horft
hrollköld íslands þjóðin.
Þá hefúr vorið alltaf ort
yndælustu ljóðin.
Önnur vísa kemur hér eftir Jón.
Alltaf verð ég eins og nýr
úti í hlýju vori,
enda gerast ævintýr
i öðm hveiju spori.
Þar sem nú að undanfömu hefúr ríkt
sannkölluð vorblíða er tilvalið að rifja
næst upp þessa ágætu vísu Ólínu Jónas-
dóttur.
Sigri hrósa fossafoll
ffarn við ósarætur.
Vill sér kjósa völdin öll
vor með ljósar nætur.
Alltaf er gaman að rifja upp vísur eff-
irhinn snjalla Sveinbjöm alsheijargoða.
Bæði liggur buil og heim
brautin sem við fúndum.
Verður samt á vegi þeim
villuþoka stundum.
Áffarn haldur Sveinbjöm.
Veðrahaminn hirða fljótt
huldur gaman stafa,
þegar saman sól og nótt
seiðinn ffamið hafa.
Það mun hafa verið Bjami Ásgeirs-
son alþingismaður sem orti eftirfarandi
haustvísu.
Andar köldu á rós og reyr.
Reykur á öldum svífúr.
Alltaf kvöldar meir og meir.
Myrkur völdin þrífúr.
Þeir sem eldri em af lesendum þátt-
arins muna eflaust eftir vísnaþætti sem
Guðmundur Sigurðsson gamanvísna-
höfúndur sá um í ríkisútvarpinu. Nokk-
uð var reynt að fá Þingeyinga til að taka
þátt í leiknum en var ffekar árangurslít-
ið þar til Böðvar Guðlaugsson sendi
þeim svofellt skeyti.
Ef ykkur skortir efnivið
ykkur vil ég benda
á mývetnskt grobb í miðrímið
og mont í báða enda.
Fyrstur til svars fyrir norðan var
Valdimar Hólm Hallstað, er gerði þau
mistök að eigna Böðvari ljóðabókina, í
fölu grasi, sem hann átti ekkert í.
Fátt er satt í þínu þrasi
þar var öllum dygðum rænt.
Feyskið strá í fölu grasi
fannst það vera orðið grænt.
Böðvar sendi svar með fyrstu ferð.
Jafnvel skáldum skýst á marga lund
skírleikurinn bæði í sögu og ljóði.
í fölu grasi fól ég ei mitt pund
farðu heim og lestu betur góði.
Kemur nú til sögu Karl Sigtryggsson
á Húsavík og vandar ekki Böðvari
Guðlaugssyni kveðjuna.
Ósköp hljótt er um þann völl
sem ól þig sinuskúfúr.
Aldrei fékkstu íslensk fjöll
allar hundaþúfúr.
Æðir að sunnan ylgja grá
einhver þekkti veðraharann.
Af monti situr suðrið á
svikráðum við norðurhjarann.
Þó geti okkar innra fjör
ennþá dalað héma nyðra,
virðist andleg afturför
útilokuð syðra.
Var nú komið að Böðvari að svara og
var nú ekki mjúkmáll.
Skörulega skal nú hegnt
skeytin ekki vanda.
Betur hefði ég aldrei egnt
á mig þennan fjanda.
Stormar ffam með stélið sperrt
steíja brýnir gogginn,
skáldahjörðin hnakkakert
hnýfilyrt og roggin.
Líkja þeir við landins fjöll
ljóðasmíði sinni.
Vitleysan er ekki öll
eins í ffamkvæmdinni.
Ég vil biðja ffemst og fyrst
fílefld kvæðatröllin,
að salla á mig af sinni lyst
en svívirða ekki fjöllin.
Þar sem mér hefúr borist talsvert
meira efni úr þessu gríni þeirra félaga
mun ég gera því nánari skil í næsta
þætti.
Veriði þar með sæl að sinni.
Guðmundur Valtýsson, Eiríksstöðum
541 Blönduósi, sími 452 7154.
Gamli kúskurinn
á Þverárfj alli
Á miðjum fimmtudegi
26. sept., á fyrsta degi haust-
mánaðar samkvæmt alman-
akinu, var lokið við útlagn-
ingu bundins slitlags á Þver-
árfjallsvegi. Þetta er 12 km
kafli milli Skiðastaða og
Þverár í Norðurárdal. Næsta
sumar verður seinna burðar-
lagið lagt út. Ýmiss ffágang-
ur er eftir við veginn, en
greiðfært er um hann fyrir
alla bíla eigi að síður. Vetri
snemma má búast við að
vegurinn lokist fljótt á
gamla veginum við Þverá
og niður Norðurárdalinn allt
að Njálsstöðum.
Fyrir 80 árum var kúskur
við vegabætur vestan í
Hvammshlíðarfjalli og
Kolugafjalli, Stefán nokkur
Kemp fæddur og uppalinn á
Illugastöðum. Stefán hefúr
fylgst með vegaffam-
kvæmdum af kostgæfni á
Þverárfjalli á sinum æsku-
slóðum og séð mannvirki
verða að veruleika sem eng-
an dreymdi um í hans ung-
dæmi. Faðir Stefáns, Lúðvík
Kemp, var þekktur verk-
stjóri við vegagerð m.a. hóf
hann vegalagningu yfir
Siglufjarðarskarð árið 1935,
sem síðan var opnaður 27.
ágúst 1946.
hing.
Stefán Kemp á Þverárfjallsvegi 10. ágúst sl., þar sem að
vegurinn kemur inn á Laxárdalsheiðina. í baksýn er
Hrafná sem verða mun vegfarendum mikið augna-
yndi. Mynd/hing.
Tindastóll
fær góðan
liðstyrk
Tindastóll hefur fengið góðan
liðstyrk ffá Þórsurunt á Akureyri,
sem nýlega drógu sig út úr Ur-
valsdeildinni í körfúbolta. Þeir
Einar Örn Aðalsteinsson og Sig-
urður G. Sigurðsson ætla að
ganga til liðs við Tindastól og
verða orðnir löglegir í lok mánað-
arins. Þeir munu styrkja mjög
leikmannahópinn hjá Tindastóli.
Æfingamót fór fram á Sauðár-
króki um síðustu helgi. Tindastóll
vann Skallagrím og Þór, en tapaði
naumlega fyrir Snæfelli og
Hamri. Fyrsti leikur Tindastóls í
úrvalsdeildinni verðurgegn Snæ-
felli í Stykkishólmi fimmtudags-
kvöldið 10. október. Nánar verð-
ur fjallað um körfúboltann í næsta
blaði Feykis.