Feykir - 02.10.2002, Page 8
Sterkur auglýsingamiðill
Herdís sækist eftir
öðru sætinu
Herdís Á. Sæmundardóttir
framhaldsskólakennari á Sauð-
árkróki sækist eftir öðru sæti á
lista Framsóknarflokksins í
Norðvesturkjördæmi og hefur
sent kjömefnd framboð sitt.
Herdís var bæjarfulltrúi og
Herdís Á. Sæmundardóttir.
varamaður í sveitarstjórnum
Sauðárkróks og sveitarfélags-
ins Skagafjarðar i samtals 12 ár
og leiddi lista framsóknar-
manna á síðasta kjörtímabili.
Þótt ffamboðsffestur í pró-
kjör framsóknarmanna, sem
ffam fer á kjördæmsisþingi 16.
nóvember, sé til 9. nóvember
eru þegar komin nokkur ffam-
boð og ljóst að keppnin verður
mjög hörð um efstu sætin.
Fjórir sækjast eftir efsta sæt-
inu: Páll Pétursson, Kristinn H.
Gunnarsson, Magnús Stefáns-
son og Ámi Gunnarsson. Þá
hefúr Ragna ívarsdóttir vara-
formaður Kjördæmissam-
bands framsóknarmanna í
Norðvesturkjördæmi tilkynnt
ffamboð til kjömefhdar. Hún
býr að Vatnsholti á Snæfells-
nesi og býður sig ffam í 1.-6.
sæti.
Umhverfisverðlaun
veitt í Húnaþingi
Nýlega voru veitt umhverf-
isverðlaun í Húnaþingi vestra.
Þetta er í fjórða sinn sem viður-
kenningamar eru veittar og
núna fór athöfnin fram á
Gauksmýri. Auglýst var effir á-
bendingum og fór umhverfis-
nefndin vítt og breitt urn hérað-
ið til að skoða staði.
Amar Birgir Olafsson
nýráðinn umhverfisfræðingur
og garðyrkjustjóri Húnaþings
vestra lýsti störfúm nelndarinn-
ar sem var skipuð auk hans
Huldu Einarsdóttur, Árborgu
Ragnarsdóttur og Sigríði
Hjaltadóttur.
Það var svo Heimir Ágústs-
son oddviti sem skýrði frá vali
þeirra sem hlutu viðurkenning-
ar. Það em hjónin Guðrún Jó-
hannsdóttir og Hreinn Halldórs-
son fyrir garðinn á Garðavegi
17 á Hvammstanga, Sparisjóð-
ur Húnaþings og Stranda fékk
viðurkenningu fyrir snyrtilegt
umhverfi og gott aðgengi fatl-
aðra. Lögbýlið Vatnshóll fékk
viðurkenningu fyrir snyrtilegt
umhverfi og smekklegt viðhald
húsa, en ábúandinn Halldór
Líndal Jóhannesson gat því
miður ekki verið viðstaddur af-
höfnina.
í ávarpi sínu sagði Heimir
Ágústsson oddviti að viður-
kenningar fyrir góða umgengni
á bújörðum og við fyrirtæki,
svo og fagra garða í þéttbýli,
væm mikilvægar nú á tímum
mikillar umræðu um umhverf-
ismál. Að athöfn lokinni var
gestum boðið upp á kaffi og
meðlæti.
s: 453 6666
Vide
s: 453 6622
Þúsund ára beinagrindur
geymast vel í Keldudal
í Keldudal í Hegranesi hafa
komið í ljós heillegustu beina-
grindur sem fundist hafa í
kirkjugarði frá ffumkristni hér á
landi. Undanfama daga hefúr
verið unnið að því að grafa upp
á þriðja tug grafa, sem taldar
em frá elleftu öld, enda undir
öskulaginu ffá Heklugosinu
1103. Verða beinagrindumar
teknar upp og fluttar í geymslu
fyrir veturinn. Þessi hluti kirkju-
garðsins, sem fylgir stafkirkju
sem ekki var áður vitað um í
Keldudal, er einmitt á þeim stað
sem hjónin í Keldudal em að
fara að reisa hús fyrir ferðaþjón-
ustu.
Eins og myndir Feykis bera
með sér er um ótrúlega heilleg
bein að ræða. Einnig mátti sjá í
sneiðingum leifar af trjávið í
kistunum. Ragnheiður Trausta-
dóttir fomleifaffæðingur segir
að þessi merki beinafúndur yrði
Þór Hjaltalín og Ragn-
heíður Traustadóttir skoða
beinin. Fjær eru bænd-
urnir í Keldudal, Þórarinn
og Guðrún.
rannsakaður nánar næsta sumar.
Ragnheiður segir að þrír
kirkjugarðar frá fmmkristni
hefðu verið rannsakaðir áður,
og beinin hefðu verið „smjör” á
þessum stöðum miðað við
Keldudal, Þórarinsstaðir í Seyð-
isfirði, Neðra - Ás í Hjaltadal
og Hrísbrú í Mosfellsdal. Af
hveiju beinin varðveittust svona
vel í Keldudal, taldi Ragnheið-
ur vera eitthvað í jarðveginum
sem gerði það að verkum.
Það er fornleifavemd ríkis-
ins sem stendur fyrir upp-
greftrinum í Keldudal.
Guðný Zoega beinasér-
fræðingur Fornleifverndar
skoðar mjög heillega beina-
grind. Beinin verða
rannsökuð mjög ítarlega.
...bílar, tiyggingar,
bækur, ritföng,
framköllun, rammar,
tímarit, ljósritun,
gjafavara...
BÓKABtJÐ
BRYBJABS
SUÐURGÖTU 1 SÍMI 453 6950
Flísar, flotgólf
múrviðgerðarefni
Aðalsteinn J.
Maríusson
Sími: 453 5591
853 0391 893 0391