Feykir - 19.02.2003, Síða 7
6/2003 FEYKIR 7
„Mér finnst gott að
hafa verið til“
Ekki alls fyrir löngu kom út
ný ljóðabók frá hendi Kristjáns
Amasonar skálds frá Skálá.
Bókin ber heitið „Mér fírmst
gott að hafa verið til”. Áður
hafði Kristján gefið út ljóðabók-
ina ,^Fjöllin sál og ásýnd eiga”,
sem út kom 1994.
Kristján Armason er Borg-
firðingur að ætt, fæddur 14.
mars 1929 að Skarði í Lunda-
reykjadal, en ólst upp með for-
eldrum sínum til 17 ára aldurs á
Stálpastöðum í Skorradal. Þá
flutti fjölskyldan að Kistufelli í
Lundareykjadal, þar sem Krist-
ján átti heima til ársins 1975, er
leið hans lá til Skagafjarðar að
bænum Skálá í Sléttuhlíð, þar
sem hann hefúr átt heima síðan.
Kristján hefúr fengist við að
yrkja frá bamæsku. Síðustu tvö
árin hefúr hann verið vistmaður
á Dvalarheimili aldraðra á
Sauðárkróki.
í hinni nýju ljóðabók sem er
136 bls. að stærð, em ljóð af
fjölbreyttum toga. Ljóðunum er
skipt niður í þtjá meginflokka.
Fremst em ljóð af ýmsu tagi, þá
eftirmæli og afmælisljóð, og aft-
ast stökur.
Kristján frá Skálá kemur
víða við í ljóðum sínum og vel-
ur sér margs konar yrkisefúi.
Hann hefúr skýra sýn á samtíð-
ina og fellur misvel þar sem þar
er að gerast, bæði hér heima og
úti í hinum stóra heimi. Við
okkar samtíð hefúr hann ýmis-
legt að segja.
í ljóðinu Aldamótaþula yrkir
hann svo:
„Öldin mín í kvi kví”
hafðu það á hreinu,
hvemig á að fara að því
að fara ekki úr neinu.
Og hefúr þar væntanlega í
huga keisarann í hinu þekkta
ævintýri Andersens, sem ekki
reyndist vera í neinu.
Samúð Kristjáns er ætíð með
þeim, sem minni máttar em,
þeim sem líða og þjást saklausir
fyrir illsku heimsins, ekki síst
bömum, hvort sem em hér
heima, í Palestínu eða annars
staðar. Hann yrkir oft um þá
sem sæta þungum örlögum og
deyja ungir. Hann yrkir um
ungu stúlkuna frá Nepal sem
dmkknar í íslenskri sundlaug,
þýsku feðgana sem fórast í flug-
slysi við Homafjörð og sjólið-
ana í kafbátnum Kúrsk á botni
Barentshafs, sem ekki áttu aftur-
kvæmt. Sums staðar örlar þó á
kímni í ljóðum hans, eins og t.d.
í ljóðinu af Hákoni Haraldar-
skáldi, sem ort er undir fomum
bragarhætti, en undirtónn þó
vissulega alvarlegur, eins og í
flestum ljóðum Kristjáns.
Bemskustöðvamar í Borgar-
firði og fólkið, sem hann ólst
upp með þar, eiga sinn trygga
sess í hjarta hans. Eitt fegursta
ljóð bókarinnar er kvæðið Móð-
urminning, og hug sinn til
bemskustöðvanna birtist Ijóðið
,,Á Kistufelli”. Annars er Krist-
ján yfirleitt bam vorsins, hann
yrkir viða um vorið og gróand-
ann. Það em oft hans bestu ljóð.
Framtíð manns og heims og
hin hinstu rök tilverunnar em
Kristjáni hugleikin. Þrátt fyrir
allt sem miður fer, er hann trú-
maður, trúir á Guð og hið góða í
hverri sál.
I ljóðinu Drottinn allra
manna yrkir hann:
- Offnetnað forðumst áfram þó
að miði.
Ennþá við stöndum, böm á
myrku sviði.
Ljósið þitt, Jesú, lýsi oss daga
og nætur,
lítum til hæða, rísum glöð á
fætur.
Sem fýrr segir er annar hluti
bókarinnar minninga- og tæki-
færisljóð. Þar er að finna að
mínum dómi einhver bestu ljóð
bókarinnar, því óvíða tekst
skáldinu betur upp en á því
sviði. Þar er m.a. ljóðið um
Halldór Laxness látinn, eitthvert
magnaðasta ljóð sinnar tegund-
ar í íslenskri tungu.
Og svo hvert af öðm, ljóðið
um Stefaníu á Hrauni, Þórð i
Haga, Guðmund á Egilsá og
Karlakórinn Heimi 70 ára, svo
aðeins nokkur séu nefúd.
Kristján frá Skálá hefúr síð-
ustu árin átt við erfiða vanheilsu
að stríða. Það hefúr þó ekki
hindrað hann í að sinna skáld-
gyðjunni, þegar kraftar leyfa.
Auk þess að yrkja á móðurmál-
inu hefúr hann gert nokkuð að
því að semja ljóð á dönsku og
ensku og unnið til viðurkenn-
ingar í alþjóðlegri ljóðakeppni á
enskri tungu.
Ljóðabók Kristjáns er fagur
vitnisburður um gott skáld og
óvenjulegan mannvin. Ljóðin
hans gera okkur öll að betri
manneskjum. Eg hvet sem
flesta til að verða sér úti um
bókina og lesa hana. Það er í
henni hlýr vortónn, sem auðgar
hvem mann. Þrátt fýrir allt og
allt finnst skáldinu „gott að hafa
verið til”.
Ólafur Þ. Hallgrímsson.
Smáauglýsingar
Ýmislegt!
Dvergkanína fæst gefins
ásamt húsi. Upplýsingar í síma
453 6384 eða 869 9059.
Spilavist!
Spilakvöld í Höfðaborg á
Hofsósi fimmtudaginn 20.
febrúar og fimmtudaginn 27.
febrúar kl. 21,00. Verðlaun og
kaffiveitingar. Mætum eld-
hress að vanda.
Félag eldri borgara Hofsósi.
Húsnæði!
Til leigu 3ja herbergja íbúð
við írabakka i Reykjavík, til 1.
ágúst nk. Upplýsingar í síma
453 5609.
Herbergi til leigu niðri í bæ.
Upplýsingar í síma 453 5774
og 895 5774.
Til leigu nokkrir básar í
hesthúsi í Flæðigerði á
Sauðárkróki. Upplýsingar í
síma 453 5558.
Intersport deildin
Tindastóll - Haukar
fimmtudagskvöld kl. 19,15
Einn mikilvægasti leikur vetrarins
fyrir baráttunni um úrslitasæti!
Heilbrigðisstofnunin
Sauðárkróki
Sérfræðingakomur í febrúar og mars:
Tímapantanir í síma 455 4000.
17.02 - 21.02 Shree Datye, skurðlæknir
24.02 - 28.02 Valur Þór Marteinsson, þvagfæraskurðlæknir
03.03 - 07.03 Anna M. Helgadóttir, kvensjúkdómalæknir
10.03 - 14.03 Sigurður Albertsson, skurðlæknir
17.03 - 21.03 Haraldur Hauksson, æðaskurðlæknir
24.03 - 28.03 Hafsteinn Guðjónsson, þvagfæraskurðlæknir
Stólarnir góðir
Tindastólsmenn stóðu sig
frábærlega vel í fýrrakvöld þeg-
ar þeir náðu að knýja ffarn sigur
í ljónagryfjunni í Njarðvík,
93:88, eftir að hafa verið fjómm
stigum undir eftir þriðja leik-
hluta og tveimur stigum undir í
hálfleik.
Clifton Cook átti ffábæran
leik fýrir Stólana, skoraði 42
stig, þar af niu þriggja stiga körf-
ur. Michail Andropov átti einnig
mjög góðan leik, skoraði 22 stig
og þá var Kristinn Friðriksson
fýmadijúgur með 21 stig.
Tindastóll er nú í fimmta sæti
deildarinnar með 20 stig, jafh-
mörg og Njarðvík en betri stöðu
í innbyrðisviðureignum. Næsta
lið fýrir ofan em Haukar með 24
stig, en Haukamir koma einmitt
í heimsókn á Krókinn annað
kvöld, fimmtudagskvöld.
Gott hjá stelpunum
Stelpumar í 2. flokki Tinda-
stóls í knaattspyrnu stóðu sig
ffábærlega vel á íslandsmótinu
sem ffam fór í Árbænum um
helgina. Þær höfnuðu í öðm
sæti, töpuðu fýrir Breiðabliki í
úrslitum 0:3. Tindastóll vann
Fylki 3:0, Stjömuna 3:1, og
gerði jafntefli við Breiðablik 3:3
í fýrsta leik mótsins. Inga Bima
skoraði 5 mörk, Hera Birgisd. 2
og Vala Margeirs 1 .Þjálfari er
Ása Sverrisdóttir.
Áskrifendur góðir!
Vinsamlegast munið eftir gíróseðlunum
fyrir áskriftargjöldunum.
Skagafjörður
Sveitarfélagið Skagaíjörður
Sveitarfélagið Skagafjörður úthlutar á ári hverju
töluverði fjármagni í formi styrkja til félagasamtaka,
einstaklinga og ýmissa annara aðila. Fræðslu- og
menningarnefnd ásamt Félags- og tómstundanefnd
auglýsa eftir umsóknum um styrki fyrir árið 2003 til:
Menningarmála
ÍÞróttamála
Æskulýðsmála
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
Sveitarfélagsins og Þar er hægt að fá allar frekari
upplýsingar.
Með umsóknunum skulu ma. fylgja upplýsingar um
umsækjanda og ábyrgðarmann, fyrir hvað styrkurinn er
hugsaður, önnur fjármögnun og ársskýrsla viðkomandi
umsækjanda.
Umsóknum skal skila á skrifstofu Sveitarfélagsins í
Ráðhúsinu á Sauðárkróki fyrir lO.mars 2003