Feykir - 30.07.2003, Síða 3
26/2003 FEYKIR 3
„Erum í sókn
í matvörunni“
segir Ámi Kristinsson vöru-
hússtjóri Skagfirðingabúðar
Sauðárkrókur tók miklum
breytingum sem bæjarfélag
á áttunda og níunda ára-
tugnum, síðustu aldar eins og
maður verður að venja sig á
að tilgreina. Segja má að
mesta breytingin á þessu
skeiði hafi verið um mitt
sumar 1983 þegar Kaupfélag
Skagfirðinga tók í notkun
nýjar höfuðstöðvar sínar við
Artorg eitt á Sauðárkróki.
Skagfirðingabúð var opnuð
og verslunardeildir kaupfé-
lagsins sem verið höfðu
dreifðar um gamla bæinn
fluttust inn í þessa nýju stór-
verslun á Sauðárkróki, sem
gárungarnir kölluðu reynd-
ar gjarnan til að byrja með
„Maggasín” og kenndu hana
við fyrsta vöruhússtjóra
Skagfirðingarbúðar, Magn-
ús Sigurjónsson.
Segja má að þessi tilflutn-
ingur kaupfélagsverslananna
úr Gamla bænum hafi verið
orsökin fyrir því að Gamla
bænum hnignaði rnjög á næstu
árum. Það hafði verið mikil
traffíík í veslununum við Að-
algötuna og bæði kaupfélagið
og kaupmaðurinn á hominu
nutu góðs að samvistunum við
götuna. Þess sáust glögg merki
í jólamánuðinum 1983 að um-
ferðin um Gamla bæinn og
stemningin var ekki söm sem
áður og nýir tímar voru greini-
lega í uppsiglingu. Að auki var
matvömbúðin við Smára-
grundina, þar sem nú er
ÁTVR, lögð niður með til-
komu Skagfirðingabúðar. En
Sveinn Guðmundsson þráaðist
við og kjörbúðin var við Skag-
firðingabrautina í nokkur ár
eftir að Skagfírðingabúð var
opnuð.
Langnesingurinn Ámi
Kristinsson hefur verið vöm-
hússtjóri í Skagfírðingabúð
síðustu fímm árin, en hann
hefur starfað í versluninni í 14
ár, var lengi vel aðstoðarmað-
ur Ómars Braga Stefánssonar
sem tók við vömhússtjóra-
starfínu af Magnúsi Sigurjóns-
syrii.
í stuttu spjalli sem Feykir
átti við Áma á dögunum var
hann fyrst spurður um hvemig
áætlanir manna um rekstur
Skagfírðingabúðar hafí gengið
eftir, frá því verslunin var opn-
uð 19. júlí 1983?
„Áætlanimar vom vita-
skuld miðaðar við það að í-
búafjölgun sem verið hafði
árin þama á undan myndi
halda áfram og Sauðárkrókur
t.d. vaxa upp í það að verða
5000 manna samfélag innan
ekki langs tíma. Þar sem að
þessi búsetuþróun heftir ekki
gengið eftir er rekstur Skag-
ftrðingabúðar í jámum og hef-
ur verið það um árabil. Það
mundi fylgja því ákaflega lítill
aukakostnaður fyrir okkur þó
við yrðum að þjóna talsvert
fjölmennari svæði, og t.d.
5000 manna byggð hér á
Sauðárkróki myndi væntan-
lega þýða það að verslunin
væri að skila góðri afkomu.
En þetta er svona í jafnvægi
hjá okkur. Það er meira að
segja fyrirsjánanleg nokkur
veltuaukning á þessu ári frá
því síðasta og við gemm ráð
fyrir að hún verði um 550
milljónir á árinu. Júlímánuður
hefur t.d. verið mjög góður og
slær við sama mánuði í fyrra,
þrátt fyrir að þá var Landsmót
hestamanna sem gaf okkur
vel. Góð tíð núna í sumar hef-
ur sitt að segja og við erum
stöðugt að verða meira varir
við ferðafólkið.”
Hafa bættar samgöngur t.d.
tilkoma Þverárfjallsvegar eitt-
hvað að segja?
„Já mikil ósköp, það telur
allt í þessu. Við urðum t.d. var-
ir við það fyrir síðustu jól að
samgönguþátturinn hafði mik-
ið að segja. Það er stundum
talað um það á jólafostunni að
það sé betra fyrir verslun í
heimabyggð ef snjóa og ófærð
gerir. Það virkar hinsvegar
þveröfugt fyrir okkur, best er
að greiðfærast sé um allt og þó
að fólk fari af svæðinu til að
versla annars staðar, þá fáum
við bara annað fólk í staðinn.
Samgöngumar eru orðnar
þannig að það má segja að
landið sé orðinn einn markað-
ur.”
- En hvemig gengur svo
með innkaupin og áætla þau
þannig að vömrýmun verði
sem minnst?
„Það er alltaf sama baráttan
í rauninni. í matvömnni hefur
þetta gengið ágætlega og þar
emm við í sókn. Við emm að-
allega í viðskiptum við tvö að-
ila með innkaupin, Super
Árni Kristinsson vöruhússtjóri Skagfirðingabúðar sem er 20 ára um þessar mundir.
Gross í Danntörku og Aðföng,
sem er Baugssamstaeypan.
Það er aðallega í fatnaðinum
sem okkur gengur ekki nógu
vel. Við emm að leita leiða til
að komast inn á hagstæðari
innkaupamarkaði. í bamafatn-
aðinum emm við t.d. ekki með
nógu góð verð og þurfum að
bæta okkur að þessu leyti.”
- Nú hefttr Skagfirðinga-
búð oft komið ágætlega út úr
verðkönnunum. Hvcr er stefna
verslunarinnar í verðlagsmál-
um?
„Við höfum markað okkur
þann bás að vera samkeppnis-
færir við stórmarkaði eins og
Hagkaup og Nóatún og tekist
það í meginatriðum.”
- Em viðbrögð mikil frá
viðskiptavinum?
„Þau em ágæt sem þau em,
en gjaman mætti heyrast
meira frá þeim. Við reynum að
sjálfsögðu að sinna öllum
kvörtunum sem til okkar ber-
ast og koma til móts við við-
skiptavininn, því án þess að
hafa hann með okkur gætum
við lokað.
Við höfiim líka notið góðs
af því urn tíðina að vera með
gott starfsfólk. Hér hefur verið
sterkur kjami sem gott er að
byggja á og sem dæmi þá em
hér staifandi þrír í búðinni sem
hafa verið alveg frá því Skag-
firðingabúð var opnuð fyrir 20
ámm”, segir Ámi Kristinsson.
Verslui&armainia-
helgartilbeð