Feykir - 30.07.2003, Blaðsíða 8
Fréttablaðið á Norðurlandi vestra
30. júlí 2003,26. tölublað, 23. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
©s Sími: 453 6666
VlE Sími: 453 6622
„Metafli“ Arnars
í Barentshafínu
Togarinn Amar HU 1 kom til
heimahafnar á Skagastönd fyrir
helgina úr Barentshafí með
góðan afla. Veiðamar gengu
með afbrigðum vel og afli var
reyndar svo góður að það var
eingöngu hraði á vinnslunni
sem stýrði því hve mikið var
tekið inn fyrir á hverjum sólar-
hring.
Upphaflega var áætlað að togar-
inn kæmi til heimahafnar í á-
gústmánuði og túrinn gæti tekið
um 40 daga. Þessi góðu afla-
brögð urðu hins vegar til þess
að Amar var einungis 22 daga í
veiðiferðinni þrátt fyrir rúmlega
fjögurra daga siglingu hvora
leið á miðin. Það tók því ekki
nema um 13 sólarhringa að
veiða 720 tonna kvóta sem
skipið hafði í Barentshafi. Veið-
in var því um 33 tonn á úthalds-
dag en var í raun rúmlega 55
tonn á þá daga sem skipið var
að veiðum. Aflaverðmæti Am-
ars em áætluð um 117 milljónir
króna.
Þá segir Skagstrandarvefurinn
frá því að undanfarið hafi verið
góð aflabrögð hjá krókabátum
sem gerðir em út frá Skaga-
strönd og gæftir með miklum á-
gætum. Vikuna 18.-25. júli var
landað 235 tonnum úr 51 bát.
Þeirn bátum sem stunda veið-
amar frá Skagaströnd hefur far-
ið fjölgandi og föstudaginn 25.
júli töldust þeir vera 58 en þá
var bræla og allir bátar í höfh.
Vel gengur með
Strandveginn
Framkvæmdir við Strand-
vegnn á Sauðárkróki ganga
mjög vel og nú er dýpku-
narskipið Perla komin til að
dæla upp úr höfhinni. Perla
mun dæla úr Sauðárkrókshöfn
30 þúsund rúmmetrum af efni
sem mun nýtast til uppfyllingar
við Strandveginn.
Áætlað er að dýpka við
viðlegukant niður á 8,5 metra
þannig að stærstu skip hér í
strandsiglingunum ættu að geta
athafnað sig í Sauðárkrókshöfn.
Þessa dagana er unnið að því
að færa grjótgarðinn fram
neðan Strandvegarins gengt
Hegrabrautinni og er nú að síga
á seinni hlutann við færslu
garðsins, sem er talsverð frá
fyrri legu. Garðurinn er nú
byggður upp á þann hátt að
hann brýtur ölduna mýkra en
áður og því er gert ráð fyrir að
stórlega dragi úr því að sjávar-
löðrið berist inn yfir bæinn, en
stórlega hefur borið á því eins
og húseigendur neðarlega í
bænum kannast mjög vel við.
Unnið að lagningu syðsta
hluta grjótgarðsins.
Vel sótt „Matur og menning“
Mikill mannfjöldi kom á hátíðina „Matur og
menning” sem haldin var á Blönduósi um næst-
síðustu helgi 18.-19. júlí. Heimamenn og brott-
fluttir héldu upp á kaupstaðaafmæli staðarins
fyrri dag hátíðarinnar og var þá m.a. framborin
heilmikil afmælisterta. Varðeldur var niður við
ósa Blönda um kvöldið í dásamlegu veðri eins
og þessi dagur skartaði.
Með hátíðinni var m.a. verið að kynna og
leggja áherslu á atvinnustefnu bæjarins, að
Blönduós verði leiðandi í matvælaframleiðslu.
Og ekki verður annað sagt en sú kynning hafi
tekist ffábærlega. Gestir á laugardeginum urðu
fleiri en aðstandendur hátiðarinnar höfðu gert sér
grein fyrir. Segja má að boðið hafi verið upp á
margrétta máltíð, svo sem kjöt ffá Sölufélaginu,
fisk ffá Norðurströnd og rækjurétt ffá Særúnu.
Tvö þúsundasti gesturinn fékk matarpakka í
vinning en eftir það komu Qölmargir og fengu
sér að borða og er giskað á að gestir hafi verið á
fjórða þúsund, að sögn Matthíasar Imsland
markaðs- og kynningarstjóra hjá Blönduósbæ.
Fljölmargt var einnig til skemmtunar á hátíð-
inni, m.a. Bylgjulestin fyrri hluta dags og um
kvöldið var dansleikur með Landi og sonum, þar
sem húsfyllir var og allt ætlaði um koll að keyra
þegar kántríkóngurinn Hallbjöm Hjartarson birt-
ist á sviðinu um miðnættið.
Matthías Imsland segir að miðað við þessi
viðbrögð sé mjög líklegt að haldin verið hátíð i
svipuðu formi að ári, enda Blönduós mjög vel í
sveit settur að taka á móti gestum.
Margt í boði um helgina
Mikið verður að gerast á
Norðvesturlandi um verslun-
armannahelgina og úr mörgu
að velja fyrir ferðafólk. Það er
kántrýið á Skagaströnd,
klassíkin í Skagafirði og
Síldarævintýrið á Siglufirði.
Þá er hátíðin „Ein með öllu á
Akureyri”, þannig að búast
má við mikilli umferð, sér-
staklega ef vel rætist úr með
veður, en veðurspá hefur verið
að batna fyrir Norðurland
hvað helgarveðrið varðar.
Skagstrendingar em á fullu
við að undirbúa útitónleika
sem verða á pallinum við
Kántribæ á laugardagskvöld-
ið, þar sem m.a. gamla góða
Brimkló kemur fram eftir
langt hlé. í Miðgarði i Skaga-
firði verða klássískir tónleikar
og þar mun Helga Rós Ind-
riðadóttir frá Hvítgeyrum
syngja ásamt félögum sínum í
Operunni í Stuttgart í Þýska-
landi. Ljóst er að mikil
stemnig er fyrir þessum tón-
leikum enda ffábært tónlistar-
fólk á ferðinni.
Gömlu góðu Hljómar,
Miðaldamenn og Von eru
meðal hljómsveita sem spila á
Síldarævintýrinu á Siglufirði
en þar verður margt til
skemmtunar. Þá verður vænt-
anlega eins og um verslunar-
mannahelgar um áraraðir
gömludansaball á Ketilási á
laugardagskvöld.
bM KitKjiJTaw A <Aombie,<TQ^
>> Bókabúð Brynjars BÓKABÚB
hefur opnar é nýjum stað,
Kaupvangstorgi 1 ð Sauðárkróki BRmJAES