Feykir - 17.09.2003, Síða 2
2 FEYKIR 31/2003
„Héraðsmót Skagfírðinga“
Lítið hefur farið fyrir al-
mennum töðugjaldahátíðum í
Skagafirði á þessu sumri og
má kannski segja að þáttaskil
hafi orðið hvað það varðar
núna í haust. í hugum flestra
var ábyggilega héraðsmót
framsóknarmanna aðaltöðu-
gjaldahátíðin fyrrum, haldin
um langt árabil ævinlega helg-
ina í kringum 25. ágúst, ef
pistilritara bestur ekki minni.
En síðan gerðist það að hesta-
menn settu brennureið sína
einmitt á þessa helgi, siðsum-
ars árið 2000. Þetta varð til
þess að aðsóknin snarminnk-
aði á héraðsmótið og fram-
sóknarmenn ákváðu að reyna
ekki framar að keppa við
brennireiðina, og breyttu um
form með sína héraðshátíð,
þannig að hún hefur ekki ver-
ið svipur hjá sjón frá því áður
var.
En núna brá svo við að
engin brennireið var haldin,
enda Fákaflugið um miðjan á-
gúst á Vindheimamelum, þátt-
takan hafði minnkað á brenni-
reiðinni og hestafólki fannst
það helst til stutt gaman að
þurfa að hætta sinni dagskrá
um miðnætti, en þar sem ald-
urdrefing var mikil í brenni-
reiðinni fékkst ekki leyfi fyrir
lengri samkomutíma.
- En kannski eru fleiri á-
stæður fyrir því að breinnireið-
in verður, ef að líkum lætur,
ekki lífseigt fyrirbrigði í
Skagafirði, líklega sú helsta að
í upphafí var ekki lagt upp
með að þessi samkoma skilaði
fjármunum til félaga eða
mótshaldara. Þetta var trúlega
of umfangsmikil samkoma til
þess að hún yrði haldin ár eft-
ir ár án fjárhagslegrar afkomu.
En nú er það spumingin
hvort að Skagfirðingar ættu
ekki að reyna að koma af stað
framtíðar töðugjaldahátíð,
sem yki á fjölbreytnina í við-
burðum í héraðinu á sumri
hverju. Það mætti kannski
hugsa sér að endurvekja hér-
aðsmótin, og þá ef til vill í
nýrri mynd. Einhver var að
tala um að þar sem samkomu-
lagið væri orðið svo gott milli
framsóknar og sjálfstæðis á
landsvísu og það vom einmitt
þessi félagasamtök sem stóðu
fyrir héraðsmótunum fyrruin,
að þeir gætu bara sameigin-
lega, jafnvel með tilstyrk
fleiri, haldið sameiginlegt hér-
aðsmót, „héraðsmót Skagfirð-
inga”. Og þá mætti vel hugsa
sér að ekki yrðu einungis um
kvöld- eða nætursamkomu að
ræða, heldur yrði einhver
hestaatriði að deginum og
jafnvel íþróttakeppni yngra
fólksins, til að kynslóðabilið
yrði nú brúað á héraðsmóti.
Þessar vangaveltur em sett-
ar á blað til umhugsunar, því
sjálfsagt em margir ekki sáttir
við það að almennar töðu-
gjaldahátíðir, síðla ágústmán-
aðar, skuli kannski heyra sög-
unnni til í Skagfirði?
Frá Brennireið Skagfirðinga.
Strandvegurinn
að verða klár
Miklar ffamkvæmdir hafa
staðið yfir við Strandveginn á
Sauðárkróki í sumar. Þær vom
unnar í samstarfi Sveitarfélags-
ins Skagafjarðar og Vegagerð-
arinnar. Verktaki er fyrirtæki
Rögnvaldar Ámasonar, Norð-
urtak ehf á Sauðárkróki og
undirverktaki við frárennsl-
islagnir Vélaleiga Símonar
Skarphéðinssonar. Helstu
verkþættir við framkvæmdina
em gerð sjóvamargarðs alls
um 1200 m að lengd, fram-
lenging á ffárennslislögnum og
uppfylling svæðisins innan
gijótgarðsins. Heildarkostnað-
ur við ffamkvæmdimar á þessu
ári nemur liðlega 100 milljón-
um króna.
Dæluskipið Perlan vann að
dýpkun Sauðárkrókshafhar og
í hagræðingarskyni var samið
um að dæla alls 30.000
rúmmetmm af sandi inn fyrir
gqótgarðinn til uppfyllingar.
Nokkmm erfiðleikum var
bundið að koma dæluskipinu
að garðinum og því tók lengri
tíma að fylla á svæðið af þeim
sökum. Astæðan var gmnn-
sævi ffaman við garðinn en
skipið gat aðeins komið að
garðinum á flóði í mjög kyrru
veðri. Aðrir verkþættir við
ffamkvæmdimar gengu einnig
vel og vom verktakar á undan
áætlun þrátt fyrir mikið um-
fang verksins. Sem dæmi má
nefna að í gijótvömina fóm um
35.000 rúmmetrar af grjóti,
sem að stærstum hluta var sótt
í Flatatungunámu á Kjálka.
Auk gijóthleðslu var ekið um
40.000 rúmmetmm af efni í
fyllingu innan gijótgarðsins og
ffamlengdir um 250 metrar af
ffárennslislögnum.
Innan fárra ára er fyrirhug-
að að leggja sniðræsi innan við
grjótgarðinn en það verður
safnræsi fyrir allar útrásir sem
nú liggja beint í sjó ffam. Safh-
ræsið verður liður í að draga úr
mengun við ströndina og til að
mæta þeim kröfum sem gerðar
em um ffárennslislagnir í þétt-
býli. Gerð sniðræsis innan við
gijótgarðinn hefur ekki verið
tímasett að hálfu sveitarfélags-
ins, enda er um að ræða mjög
kostnaðarsama ffamkvæmd og
henni mun fylgja mikið rask
innan nýja gijótgarðsins. Af
þessum sökum var í upphafi
verks ekki fyrirhugað að færa
Strandveginn úr núverandi
legu götunnar, þar sem grafa
þarf að nýju í ffamtíðargötu-
stæði Strandvegarins við ffá-
gang sniðræsis.
Þar sem sú framkvæmd
hefur ekki verið tímasett að
hálfu sveitarfélagsins hefúr
Vegagerðin þrátt fyrir allt, á-
kveðið að færa Strandveginn í
nýtt vegstæði innan við grjót-
garðinn. Vegagerðin mun síðar
þurfa að mæta þeim kostnaði
sem fylgir greftri í götustæðið
þegar lagning sniðræsis verður
ákveðin. Við ákvörðun Vega-
gerðarinnar um að leggja í
þann fómarkostnað sem fylgir
færslu götunnar, var fyrst og
ffemst horft til þess að auka
umferðaröryggi um Strand-
veginn með því að færa götuna
ffá húsabyggðinni og einnig að
rétta af legu götunnar. En
vegna fyrirsjáanlegs graftrar í
götustæðið innan fárra ára
verður ffágangur Strandvegar-
ins miðaður við bráðabirgða-
ffágang, sem hefúr í för með
sér að gatan verður lögð með
tjömbundinni klæðningu í stað
malbiks og notast verður við
bráðabirgðatengingu inn á göt-
una á norðurenda svæðisins.
Það mun síðan ráðast af ffam-
kvæmdafé á næsta ári hvort að
hafist verður handa við ffá-
gang reiðvegar og göngustígs
sem lagðir verða milli götunn-
ar og gijótgarðsins.
Nú þegar hefúr strandlengja
Króksins batnað til muna og
þegar að framtíðarfrágangi
svæðisins innan garðsins verð-
ur að fúllu lokið, er óhætt að
segja að bylting til batnaðar
hafi átt sér stað við sjávarsíðu
bæjarins.
Þessi fféttagrein var skrifúð
að stærstum hluta af Jóni
Magnússyni starfsmanni Vega-
gerðarinnar.
Áskrifendur góðir!
Munið að greiða seðlana fyrir
áskriftargjöldunum.
Kemur út á miðvikudögum. Útgefandi Feykir
hf. Skrifstofa: Ægisstíg 10, Sauðárkróki.
Póstfang: Box 4,550 Sauðárkróki. Sítnar: 453
5757, 897 5729 og 854 6207. Netfang: feykir
@ krokur. is. og feykir@simnet.is
Ritstjóri: Þórhallur Ásmundsson.
Áskriftarverð 210 krónur hvert tölublað með
vsk. Lausasöluverð: 250 krónur með vsk.
Setning og umbrot: Feykir. Prentun: Hvítt &
Svart hf.