Feykir


Feykir - 19.11.2003, Blaðsíða 7

Feykir - 19.11.2003, Blaðsíða 7
40/2003 FEYKIR 7 Hver er maðurinn? Tvær myndir þekktust af þeim sem birtust í síðasta myndaþætti. Margir hringdu vegna myndar nr. 450 sem er af Guðlaugu Egilsdóttur ífá Sveinsstöðum og Friðrik Jens Friðriksson, læknir, þekkti mynd nr. 451 sem er af Guðmundi Einarssyni frá Gröf í Bitrufirði. Þeim sem gáfu upp- lýsingar vegna myndanna eru færðar bestu þakkir. Nú eru birtar myndir sem eru úr ýmsum áttum. Þau sem þekkja mynd- imar eru vinsam- legast beðin að hafa samband við Héraðsskjalasafn Skagfirðinga í síma 453 6640. Mynd nr. 452. Mynd nr. 454. Mynd nr. 455. Tap og sigur í körfuboltanum Tindastólsmenn biðu lægri hlut gegn liði Keflvíkinga í Intersport-deildinni í körfubolta í gærkveldi. Keflavík hafði yfir 30-21 eftir fyrsta leikhluta en Stólamir gerðu sér lítið fýrir og jöfhuðu 51-51 og þannig stóð í hálfleik. í þriðja leikhluta hmndi leikur Tindastóls og gerðu Keflvíkingar þá 38 stig gegn 13 stigum Stólanna. Tindastólsmenn löguðu stöðuna í fjórða leikhluta og urðu lokatölur 101-90 lyrir Keflavík. Lið Tindastóls er nú í áttunda sæti deildarinnar með 6 stig eftir 7 leiki. Tindastólsmenn unnu góðan sigur á nýliðum Þórs frá Þorlákshöfn í næstsíðustu umferð, sigmðu þá með 16 stiga mun í leik á Króknum. Smáauglýsingar Ýmislegt! Til sölu kvíga, burðartími 15.des. Upplýsingar í síma 453 8189. Til sölu Tedi 3 kermvagn, lítið notaður, sem nýr og tveir ungbamabílstólar. Allt mjög vel með farið. Upplýsingar í síma 453 6686 eða 860 1260 eftir hádegið. Til sölu Mazda 323 Coupe árg. ‘94, ekinn 167.000 km. Nýskoðaður og í góðu standi. Verð 296.000. Upplýsingar í síma453 5141 og453 6686. Ert þú að taka til, em gömlu LP plötumar þínar lýrir þér. Ekki henda þeim, ég skal losa þig við plötumar. Hafið sam- band við Helga Gunnarsson í sírna: heima 453-8134, í vinnu 455-6733 eða í GSM 893- 1594. Áskrifendur góðir! Munið eftir seðlunum fyrir ás kr iftargj öldunum! Vöruflutningar B. Har. ehf. Borgarröst 1 Sauðárkróki Ný símanúmer: 892 9224 Jón Ingi 892 2824 Karl Afgreiðsla Aðalflutninga Rvík 581 3030 Enginn verður straumlaus með Deta rafgeymum frá Olís-umboðinu Gefðu þér tíma Hversu oft hefur þú ekki óskað þér að þú gœtir bœtt svolitlum auka tíma i sólarhringinn sem þú hefðir bara fyrirþig. Það vœri gott að sökkva sér igóða bók, fara i göngutúr með fjölskyidunni, taka 18 holur, eða bara slaka á. Varðan Heildarfjármálaþjónusta með þarfir þínar að leiðarljósi. Greiðsluþjónusta Við borgum reikningana fyrir þig. Landsbankinn býður þér 3 einfaldar leiðir til að fækka þeim stundum sem fara í daglegt stress svo þú getir gefiö þér meiri tíma til að gera eitthvað sem þér finnst skemmtilegt. Einkabankinn Öll þín bankaviðskipti á netinu þegar þér hentar. Hringdu i sima 560 6000, komdu i nœsta útibú Landsbankans eða kiktu ú www.landsbanki.is Landsbankinn

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.