Feykir - 11.08.2004, Síða 8
Fréttablaðið á Norðurlandi vestra
11. ágúst 2004,27. tölublað, 24. árgangur.
Sterkur auglýsingamiðill
© SheJ|t«t
VlDE
453 6666
Sími:
453 6622
Fararstjórar enska kvennalandsliðsins í knattspyrnu hlýða á skýringar Ragnheiðar
Traustadóttur á sýningu Hólarannsóknarinnar í síðasta mánuði.
Minjamar varðveitast
einstaklega vel á Hólum
Bjöm ræðumaður
áHólahátíð
Hólahátíð verður að þessu
sinni viðameiri en verið hef-
ur. Dagskrá hennar hefst
föstudagskvöldið 13. ágúst
kl. 20 með málþingi í Auðun-
arstofu um kirkjutónlist á
miðöldum. Þar mun sr.
Kristján Valur Ingólfsson
flytja erindi sem hann nefn-
ir: Heyr himnasmiður. Um
Þorlákstíðir og aðrar tíða-
gjörðir kirkjunnar fyrr og
síðar. Söngflokkurinn Voces
Thules fer með tóndæmi og
þá verða almennar umræður.
Laugardaginn 12. ágúst
verður morguntíð i dómkirkj-
unni kl. 9. Kl. 13 verður lagt
upp í helgigöngu í Gvendar-
skál. Við altari Guðmundar
góða verður athöfn þar sem sr.
Kristján Valur Ingólfsson minn-
ist Guðmundar biskups. Kl. 18
verður kvöldtíð í dómkirkj-
unni, Voces Thules syngja.
Sunnudaginn 15. ágúst
verður hátíðarmessa kl. 14., sr.
Pétur Þórarinsson, prófastur,
prédikar. Vígslubiskupinn og
sr. Gunnar Jóhannesson, sókn-
arprestur, þjóna fyrir altari.
Voces Thules syngja. Organ-
isti Jóhann Bjamason. Að
messu lokinni verða kaffiveit-
ingar í boði Hólanefndar.
Kl. 16.30 á sunnudag
verður hátíðarsamkoma. Bjöm
Bjamason dóms- og kirkju-
málaráðherra flytur hátíðar-
ræðu. Flutt verða ljóð eftir sr.
Jón Bjarman. Ragnheiður
Traustadóttir fomleifafræðing-
ur segir frá Hólarannsókninni.
Einar Jóhannesson leikur á
klarinett og Voces Thules
syngja.
Snurvoðabátar
upp í landsteina
Þessa dagana vinna danskir
dýrabeinasérfræðingar að
rannsóknum á Hólum á þeirn
fjölda dýrabeina sem grafin
hafa verið upp i rannsóknunum
undanfarin sumur, en mikill
fjöldi dýrabeina komu upp
núna í surnar. Þar sem að jarð-
vegurinn á Hólum varðveitir
minjar mjög vel, er eftir miklu
að slægjast fyrir þessa sérffæð-
inga sem koma frá Hafnarhá-
skóla, en einnig er þessa viku
unnið að uppgreftri í Kolkuósi,
þar sem mannvistarleifar hafa
fundist frá upphafi biskups-
stólsins á Hólum.
Hólarannsókninni sjálfri
lauk þó fonnlega þetta sumarið
með ráðstefnu fjölda fomleifa-
fræðinga á Hólum um síðustu
helgi. Frá því rannsóknin hófst
sumarið 2002 hafa um tíu þús-
und munir fúndist við upp-
gröftinn sem aðallega hefur
beinst að gamla Hólaprentinu
og þeim stað sem skáli bisk-
upsstólsins er talinn hafa stað-
ið. 1 sumar fundust m.a. við
uppgröft í Hólaprentinu prent-
stafír úr beiki sem taldir em frá
upphafi prentsins áður en farið
var að forma í blý. Þar á meðal
b-ið úr Guðbrandsbíblíunni.
Þá hefur fjöldi fólks litið inn
á sýninguna í Hólaskóla sem
komið var upp í tenglsum við
Hólarannsóknina, en ferðamenn
hafa sýnt henni mikinn áhuga.
Veiði hefur verið þokkaleg
hjá smábátum á Skagafirði í
sumar. Fyrr í sumar var veiðin
með afbrigðum góð, en fiskur-
inn hefur verið „brellinn að und-
anfömu”, eins og Ragnar Sig-
hvats á Leiftri orðaði það, veiðst
vel annan deginn en lítið hinn.
„Hinsvegar hafa snurvoða-
bátamir verið að gerast fullnær-
göngulir og vom komnir héma
alveg inn undir Nestána um
tíma”, segir Ragnar, en þó
Landhelgisgæslan hafi verið fá-
liðuð í sumar kom hún þó og
stuggaði tveim bátum út fyrir
línuna. Að sögn Ragnars vom
þetta bátar sem gerðir em út frá
höfn á Húnaflóasvæðinu. Línan
sem snurvoðabátamir verða að
halda sig fyrir utan liggur
skammt undan Fagranesi á
Reykjaströnd og yfir fjörðinn að
Kolkuósi, þannig að bátamir
vom komnir talsvert innfyrir þá
línu. Ætíð munu hafa verið
nokkur brögð af því að snur-
voðabátamir hafa leitað inn á
Skagafjörðinn þegar veiðivon
hefúr verið talsverð, enda ekki
gott fyrir gæsluna að fylgjast
grannt með.
Flísar - flotgólf
múrviðgerðarefnl
Aðalsteinn J.
Mariusson
Sími : 453 5591
853 0391 893 0391
Útibússtjóraskipti í KB banka
Jóel tekur við af Gesti
Útibússtjóraskipti verða í KB banka á
Sauðárkróki á haustmánuðum. Jóel Kristjáns-
son fyrrverandi framkvæmdastjóri Skag-
strendings tekurþá við stjóm útibúsins af Gesti
Þorsteinssyni sem starfað hefúr þar frá árinu
1967 og verið útibússtjóri frá árinu 1987.
Útibússtjóraskiptin fara fratn í kjölfar þess
að Gestur óskaði eftir að fara á eftirlaun á
gmndvelli langs starfsaldurs hjá bankanum og
hefur verið gerður við hann starfslokasamn-
ingur.
Jóel hóf störf hjá KB banka í Reykjavík nú
í byrjun mánaðarins til undirbúnings starfinu á
Sauðárkróki.
tnynta :: tryggingamiðstnðin :: kndak nxpmss :: baaktir og ritfnng :: ljósritnn í lil ti I I : :: gormar og plöstun :: fleiraogfleira
bókabúðin BÓKABÚÐ BRYÚJABS
BÓKABÚÐ BRYNJARS KAUPANGSTORGI 1 550 SAUÐARKRÓKUR SlMI 453 5950 FAX 453 5661 bokabud@skagafjordur.com
- -Fji'ft ana í Fj<»isK.íid>jnf)ji