Feykir - 29.09.2004, Qupperneq 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MED RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU 1
SAUÐÁRKRÓKI
Norðurorka vill
komast inn á
Jökulsársvæðið
Þannig leit Votmúli út í gærmorgun, suðurendi hússins fallinn.
Stórbruni á Blönduósi
Norðurorka á Akureyri hef-
ur að undantörnu sýnt áhuga
á samstarfi við Skagafjarðar-
veitur og fleiri veitur á Norð-
ur- og Austurlandi. Ljóst er
samkvæmt drögum að vilja-
yfirlýsingu sem þeir Norður-
orkumenn sendu Skagfirð-
ingum á dögunum, að áhug-
inn beinist ekki síst að mögu-
Ieikum til raforkuframleiðslu
á svæðinu, og eftir því sem
Feykir hefur fregnað hugn-
ast sveitarstjórnarmönnum í
Skagafirði ekki þær hug-
myndir sem þar eru settar
fram og telja greinilega kom-
in af stað keppni milli Nórð-
urorku og Landsvirkjunar
um vatnasvæðið við Jök-
ulsárnar í Skagafirði.
„Þetta kom heimamönnum í
opna skjöldu, enda var viljayf-
irlýsingin ekki unnin í samráði
við Skagfirðingá. Það er ljóst
af efhi tillagna Norðurorku að
þeir hyggjast eignast fleiri veit-
ur á Norðurlandi. Aukið sam-
starf hefur verið í farvatninu á
milli Norðurorku og forsvars-
manna Héraðsvatna ehf. sem
hyggjast virkja við Villingar-
nes. Framkvæmdaleyfi fyrir
þá virkjun myndi styrkja það
samstarf og Norðurorka eign-
ast Villinganesvirkun eins og
þeir hyggjast eignast aðrar veit-
ur á svæðinu. Norðurorka hef-
ur lagt mikið kapp á að fá meiri
orku til að nýta í iðnað á Eyja-
fjarðarsvæðinu. Að sama skapi
má vera ljóst að Landsvirkjun-
armönnum hugnast ekki áætl-
anir um að aðrir aðilar hafi af
þeim mögulegar virkjanir á
vatnasvæðinu. Slagurinn á
milli þessara orkufyrirtækja
virðist því einnig vera að færast
í Skagafjörð”, sagði einn full-
trúi meirihlutans í Skagafirði í
samtali við Feyki, en menn
virðast ganga út frá því að
Rarik muni, a.m.k. að hluta,
ganga inn í Norðurorku.
í drögum að viljayfirlýsing-
unni, sem Skagfirðingar hafa
enn ekki svarað stendur meðal
annars: „Stefna að myndun
samstarfsvettvangs allra aðila
sem eiga orkufyrirtæki (hita-
veitur, rafveitur og vatnsveitur)
einkum á Norður- og Austur-
landi. Kynna hugmyndir fyrir
sveitarstjómum og þingiuönn-
um. Stefna að stofuun orkufyr-
irtækis á Norður- ög Austur-
landi sem hefði auk reksturs
hitaveitna og vatnsveitna með
höndum raforkudreifingu og
raforkuffamleiðslu.
Félag eða samstarf það sem
aðilar samkomulags þessa
kunna að stofha til mun á virk-
an hátt markaðssetja landsvæði
það sem það starfar á. I þessu
starfi mun félagið starfa með
öðmm þeim aðilum sem vinna
að orkuffamleiðslu og atvinnu-
uppbyggingu á svæðinu. Sam-
starfsaðilar skuldbinda sig til
að starfa að þessu verkefni af
fagmennsku og áhuga, með
það að markmiði að koma
formlegu félagi á laggimar inn-
an 4-6 máiiaða ffá undirritun
viljayfirlýsingar þessarar.”
Gríðarlegt tjón varð á
Blönduósi í fyrrinótt þegar
stórhýsið Votmúli brann að
stómm hluta til kaldra kola.
Það var syðri hluti hússins,
næstum tveir þriðju af húsinu,
sem féll í brunanum, en þar
var byggingarvörudeild og
pakkhus kaupfélagsins, Bíla-
þjónustan og matvælagerðin
Vilko.
Það var um miðja nótt sem
íbúar á Blönduósi vöknuðu
við vonandan draum, spreng-
ingar og læti, og vissu ekkert
hvað á þá stóð veðrið, að sögn
Eysteins Péturs Lárussonar
sem blaðamaður hitti á bruna-
stað í gærmorgun. Skömmu
síðar séust eldtungumar stiga
upp syðst í bænum og slökkvi-
liðið var kallað út korteri yfir
fjögur. Þá var við lítið ráðið og
greinilegt að eldurinn hafði
kraumað inni í húsinu um nótt-
ina. Störf slökkviliðsmanna,
sem einnig komu ífá Skaga-
strönd og Hvammstanga,
beindust að því að veija norð-
urenda hússins, þar sem m.a.
er staðsett nýja ullarþvotta-
stöðin, en eldvamarveggur
varði rúman einn þriðja hluta
Votmúla.
Tjónið er gríðarlegt, og
ljóst að það er einkum Kaupfé-
lag Húnvetninga sem ber
skaðann í þessum mikla bruna,
en Vilko er í eign KH. Á þess-
um þremur vinnustöðum í
Votmúla sem brunnu, unnu
um 20 Blönduósingar. Á þess-
ari stundu er ekki ljóst með
ffamhaldið, hvemig uppbygg-
ingu verði háttað, enda unnið
að mati brunans.
Votmúli séður þegar ekið var inn í Blönduósbæ.
—Kjen^ift ehjDf—
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN
• VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA
jm
bílaverkstæði
Sími 453 5141
Sæmundorgota lb550Sauðárkrókur\
3|(eBílaviðgeröir Hjólbarðaviðgerðir
Réttingar ^Sprautun