Feykir - 30.03.2005, Blaðsíða 8
Skagafjörður
Góðar afurðir hjá
kúabændum á síðasta ári
Þeir Gunnar Sigurðsson Stóru-Ökrum. t. v. og Þorsteinn Axelsson Skúfsstöðum t.h. með
viðurkenningar fyrír afurðahæstu kýrnar mælt i verðefnum á siðasta árí. Milli þeirra er
Simon Traustason i Ketu með viðurkenningu fyrir þyngsta sláturgripinn. mynd ÖÞ.
Leiðbeiningamiðstöðin
hefur birt niðurstöður úr
skýrsluhaldi í nautgripa-
rækt á síðasta ári. Þar
kemur fram að meðalnyt
Skagfiskra kúa jókst um
226 kíló frá árinu á undan
og varð 5.357 kíló á hverja
árskú. sem er það mesta
til þessa.
Efstu búin voru líka að ná
miklum afurðum. Efstvarbúið
að Stóru-Ökrum I með 6.842
kíló eftir hverja kú. Þetta eru
mestu meðalafurðir sem náðst
hafa til þessa á kúabúi í
Skagafirði. Næst efst var
Varmaland með 6.782 kíló
eftir kúna og þriðja í röðinni
Ytri-Hofdalir með 6.732 kíló
mjólkur.
Á aðalfundi félags kúa-
bænda í Skagafirði fyrir
skömmu voru athentar viður-
kenningar fyrir afurðahæstu
gripi á síðasta ári. Afurðahæsta
kýrin mælt í verðefnum
mjólkur reyndist vera Síða á
bænum Skúfsstöðum. Hún
skilaði samanlagt 708 kílóum
af mjólkur próteini og mjólkur
fitu í 8.084 lítrum mjólkur.
Svínka á Stóru-Ökrum varð
önnur með 705 kíló og skilaði
9.331 lírum af mjólk. Lóló á
Skúfsstöðum varð þriðja hæst
með 696 kíló mælt í verðefnum
og 7.902 lítra af mjólk, en Lóló
hafði einmitt verið afurðahæst
tvö árin á undan en nú tók
dóttir henna Síða við af henni.
Afuðahæsta kýrin í lítrum talið
var hinsvegar Frekja á
Varmalandi með 10.631 lítra af
mjólk. Þá voru veitt verðlaun
fyrir þyngsta grip sem lagður
var inní afurðastöð á síðasta
ári. Það var tarfur, limonsin-
blendingur frá bænum Ketu t
Hegranesi í eigu Ingibjargar
Jóhannesdóttur og Símonar
Traustasonar. Skrokkurinn af
honuni vóg 432 kíló..
Þórarinn Leifsson bóndi í
Keldudal var endurkjörinn
formaður félags kúabænda á
fundinum. Aðrir í stjóm eru
Bjarni Þórisson Mannskaða-
hóli, Sigurður Baldursson
Páfastöðum, Sævar Einarsson
HamriogValdimarSigmarsson
Sólheimum. SigurðurogSævar
voru kjörnir fulltrúar á Lands-
fund kúabænda auk formanns-
ins.
ÖÞ:
Hnjúkafélagið á Blönduósi ósátt
Telja "trúnaðarbrest"
tylliástæðu
Bæjarmálaráð Bæjarmálafélagsins Hnjúka á Blödnuósi
telur að ástæður þær sem H- listi tilgreindi fyrir slit á
meirihlutasamstarfi listanna í bæjarstjórn séu hreinar
tylliástæður.
Félagið lýsir yfir stuðningi
við störl bæjarfulltrúa Á-
lista. Fundur var haldinn í
bæjarmálaráði Bæjarmála-
félagsins Hnjúkum á Blönduósi
mánudag 21 mars. Þar var
lýst yfir fullum stuðningi við
störf bæjarfulltrúa listans og
lýsir furðu sinni á slitum H-
listans á meirihlutasamstarfi
í bæjarstjórn. Ástæður þær
sem tilgreindar eru um
„trúnaðarbrest“ eru hreinar
tylliástæður sem ekki er fótur
fyrir.
Heimir og Hljómar leiddu saman hesta sína
Sungu fyrir fullu húsi
tí) * V 'i ó>
i - ■ . * s. , .
í I ' ' ' ^ & feá
/4
Karlakórinn Heimir og
keflvíska bítlahljóm-
sveitin Hljómar efndu í
sameiningu til stórtón-
leika í íþróttahúsinu á
Sauðárkróki síðastliðið
laugardagskvöld.
Fjöldi gesta fyllti íþrótta-
húsið en talið er að yfir 700
manns hafi sótt tónleikana.
Heimir hóf tónleikana með
flutningi nokkurra laga af
eigin söngskrá og í kjölfarið
fj'lgdu Hljómar með flutningi
þekktra laga sveitarinnar.
Eftir stutt hlé fluttu síðan
karlakórinn og Hljómar í
sameiningu nokkur lög í
útsetningu Stefáns R. Gísla-
sonar, söngstjóra Heimis. Að
öðrum lögum ólöstuðum má
segja að hápunktur kvölds-
ins hafi verið sameiginlegur
flutningur á laginu Bláu aug-
un þín. Óskar Pétursson og
Engilbert (ensen sungu lagið
saman við góðar undirtektir
en kórinn söng bakraddir.
Framundan eru sants-
konar tónleikar í Háskólabíói
í Reykjavík og í íþróttahús-
inu í Reykjanesbæ.
Hvammstangi____________
Stefha að stofnun
Selaseturs
Vestur Húnvetningar
undirbúa nú stofnun
Selaseturs íslands en
fjölmennur fundur um
stofnun samnefnds hluta-
félags var haldinn í Félag-
sheimili á Hvammstanga
23. mars. Stofnfundur
hlutafélagsins verður
væntanlega 19. apríl.
Ferðaþjónustufrömuðurinn
Jóliann Albertsson, á
GauksmýTÍ, kynnti undir-
búningsvinnu starfshóps er un-
nið hefur að málinu en hópu-
rinn varð til í atvinnuráðstefnu
Húnaþings vestra árið 2003.
Jóhann sagði í samtali við
Feyki að ætlunin væri að opna
upplýsinga- og fræðslusetur
í húsi Sigurðar Pálmasonar
kaupmanns á Hvammstanga.
Hutverk Selaseturs Islands
verður að reka sýninga- og upp-
lýsingamiðstöð fyTÍr ferðafólk
á Hvammstanga og stuðla að
almennri þekkingu um sjáv-
arspendýr, náttúrufar og bús-
kaparhætti við strendur Vatns-
ness.
Ð 455 5300 Kodak Pictures Flísar - flotgólf
múrviðgerðarefni
BQKABÚÐ
AÐALS I biIJNN J.
ÍH KB BANKI BRYWJARS MARÍUSSON
hM -kraftur til þínl KAUPANG8TORQI1 • 550 8AUDÁRKRÓKUR. • StMI 453 5950 • FAX 463 5661 Sími: 453 5591 • 853 0391 • 893 0391
X