Feykir - 06.04.2005, Blaðsíða 2
2 Feykir 13/2005
Veðurklúbburinn Dalbæ
Risjótt í
Veðurklúbburinn hélt
fjölmennan fund þann
30. mars til að spá um
veðurfar aprílmánuðar.
Mikið var rætt um þennan
einstaka hlýindakafla sem
svifið hefur yfir landinu und-
antarnar vikur og munum við
varla eftir jafnhlýjum páskum
áður.
aprfl
En nú búumst við við lægra
hitastigi í apríl en verið hefur í
mars en að áfram verði vest-
anáttir ríkjandi.
Hitatungan sem \rið höf-
um verið í yfirgefur okkur
til norðausturs. Apríl mun
verða risjóttur en engin stór-
vonska.
Húnaþing vestra
Málþing um
Arnarvatnsheiði
Málþing um verndun
og nýtingu Arnarvatns-
heiðar verður haldið
9. apríl n.k. í Miðfirði
félagsheimilinu Ásbirgi í
Húnaþing vestra.
Fjöldi þekktra fýrirlesara
heldur erindi um Arnarvatns-
heiðina, náttúru hennar, vernd-
un og nýtingu, þeirra á rneðal
eru Þorsteinn Sæmundsson,
forstöðumaður Náttúrustofu
Norðurlands vestra, Bjarni
Jónsson fiskifræðingur hjá
Veiðimálastofnun og Helgi
Hjörvar sem hefur flutt þings-
ályktunartillögu unr málið.
Skráning fer fram í síma
455-2515 eða 898-5154 eða
með tölvubréfi: gudrun@anv.is
Leidari
Skatastaðavirkjun
Enn eru virkjanamál á dagskrá í Skagafirði. Miklar deilur
urðu um Villinganesvirkjun er hún fór í gegnum umhver-
fismat og fékk staðfestingu Alþingis. Villinganesvirkjun fer
hins vegar ekki inná aðalskipulag en það gerir Skatastaða-
virkjun, sem á eftir að fara í umhverfismat og jafnframt
hefur Alþingi ekki úthutað virkjanaréttinum.
Deilurnar verða sjálfsagt meiri um Skatastaðavirkjun og
kemur þar tvennt til. Annars vegar er um mun stærri ffam-
kvæmd að ræða en Villinganesvirkjun og hins vegar hefúr
hún í för með sér verulegt rask á ósnortnu hálendi og má
búast við að þeir sem töpuðu orustunni við Kárahnjúka færi
herbúðir sínar vestur á
Þess vegna er það furðuleg niðurstaða Gallup að mun fleiri
Skagfirðingar gcti hugsað sér að virkja til að bræða ál í
öðrum héruðum Norðurlands fremur en að reisa álver hjá
sér. Maður hefði haldið að ávinningurinn af fjárfestingu og
atvinnusköpun í stjóriðju réttlætti fórnarkostnaðinn við
virkjanir Jökulsánna. Ef marka má könnunina er sú ekki
raunin.
Árni Gunnarsson
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Útgefandl:
Feykir hf
Skrifstofa:
Aðalgötu2I,
Sauðárkráki
Blaðstjórn:
Árni Gunnarsson, Áskell
Heiðar Ásgeirsson,
Guðbrandur Þorkell
Guðbrandsson, Herdís
Sæmundardóttir og Jón
Hjartarson.
Ritstjóri &
ábyrgðarmaður:
Árni Gunnarsson
arnig@krokur.is
Sími 455 7100
Blaðamenn:
Óli Arnar Brynjarsson
Pétur Ingi Björnsson
feykir@krokur.is
Sími 453 6001
Póstfang Feykis:
Box 4,550 Sauðárkrókur
Áskriftarverð:
210 krónur hvert tölublað
með vsk.
Lausasöluverð:
250 krónur með vsk.
Setning og umbrot:
Hinirsömusf.
Prentun:
Nýprent ehf.
Hvatningarverðlaun til sveitarfélaga
Blönduós fékk viðurkenningu
fyrir umbótastarf
Viðurkenningar til framsækinna sveitarfélaga
voru veittar á ráðstefnu um nýjungar í stjórnun
sveitarfélaga sem haldin var á Hótel Loftleiðum þann
1. apríl síðastliðinn.
Blönduósbær hlaut við- markvissan og heildstæðan
urkenningu í hópi lítilla hátt staðið að umbótastarfi á
sveitarfélaga fýrir að hafa á sviði stjórnsýslu, stjórnunar
Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Kristján Þór Sigurðsson, bæjarstjóri
Akureyrarkaupstaðar, Lúðvik Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðarkaupstaðar, Jóna Fanney
Friðriksdóttir, bæjarstjóri Blönduósbæjar, Ásdis Halla Bragadóttir, bæjarstjóri Garðabæjar
og Jóhanna Reynisdóttir, sveitarstjóri i Vatnsleysustrandarhreppur með viðurkenningar
sinarásamtþeim VilhjálmiÞ. Vilhjálmssyni, formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga og
Önnu Guðrúnu Björnsdóttur, sviðsstjóra Alþjóða- og þróunarsviðs sambandsins.
og reksturs, upplýsingatækni
og starfsmannamála. Grund-
völlur breytinganna var
skýrsla sem bæjarstjóri gerði
haustið 2002 þar sem lagðar
voru til ýmsar breytingar til
hagræðingar og umbóta í
stjórnun sveitarfélagsins sem
síðan hafa verið innleiddar.
1 hópi stærri sveitarfélaga
fengu Akureyrarkaupstaður
og Hafnarfjarðarkaupstaður
einnig slíka viðurkenningu.
Reykjanesbær og Vatns-
leysustrandarhreppur hlutu
viðurkenningar fyrir árang-
ursstjórnun og Garðabær fyrir
samráð við íbúa og rafræna
íbúaþjónustu.
Á ráðstefnunni tóku
bæjarstjórar ofangreindra
sveitarfélaga við viðurkenn-
ingu frá Vilhjálmi Þ. Vil-
hjálmssyni, formanns Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga.
Útvarpsþáttur um Kariakór Bólstaðarhlíðarhrepps
Þáttur um kórinn á
Sumardaginn fyrsta
Karkakór Bólstaðarhlíðarhrepps heldur upp á 80 ára
starfsafmæli um þessar mundir og er mikið um dýrðir
hjá kórnun næstu vikurnar.
Frá æfingu Karlakórs Bólstaðarhliðarhrepps. Sveinn Arnason stjónandi og Elinborg
Sigurgeirsdóttir undirleikar fremst á myndinni. Mynd: Jón Sigurðsson
Fyrsti viðburðurinn verður
tónleikar og hagyrðingakeppni
á Sauðárkróki á föstudagskvöld
kl: 20:30
Karlakór Bólstaðarhlíð-
arhrepps hélt sinn fyrsta
opinbera konsert á sunnu-
daginn fyrstan í sumri 1925 og
kom þá fram í Bólstaðarhlíð.
Sögstjórinn á þessum tónleik-
um var Guðmunda Jónsdóttir
á Eyv'indarstöðum.
Fyrir dyrum er afmælis-
fagnaður í Húnaveri laugar-
dagskvöldið 23. apríl til að
halda upp á þessi tímamót.
Eru velunnarar kórsins
og fyrrverandi kórfélagar
sérstakelga boðnir velkomnir.
Unnið hefur verið að gerð
útvarpsþáttar um kórinn og
sögu hans. Þátturinn verður á
dagskrá Rásar 1 sumardaginn
f\Tsta. Umsjónarmaður er
Eiríkur Grímsson, en hann
hefur áður verið með þætti um
sönglífvítt og breitt um landið.
Eiríkur er frá Ljóshólum í
Svínadal og hefúr sungið með
kórnum.
Þá verður hinn árlegi söngur
um sumarmál haldinn 30. apríl
í Félagsheimilinu á Blönduósi.
Að skemmtuninni standa
Karlakór Bólstaðarhíðarhrepps
og Samkórinn Björk ásamt
gestakórunum Karlakórnum
Lóuþrælum í Vestur-Húna-
vatnssýslu og Sunnukórnum á
ísafirði. Hljómsveit Geirmundar
Valtýssonar leikur fyrir dansi á
eftir.
Stjórnandi Karlakórs
Bólstaðarhlíðarhrepps
er Sveinn Árnason frá
Víðimel en undirleikari er
Elínborg Sigurgeirsdóttir frá
Hvammstanga.
A-Húnavatnssýsla
Árekstur
í Langadal
Fólksbíll og vörubíll
skullu saman í hálku og
slæmu skyggni skammt
frá bænum Fremstagili
í Langadal á fjórða
tímanum í gær.
Vörubíllinn var á
norðurleið en fólksbíllinn á
leið suður. ökumennirnir
voru einir í bílunum og var
kona sem ók fólksbílnum
flutt á sjúkrahúsið á
Blönduósi til aðhlýnningar.
Báðir bílarnir voru óökufærir
eftir óhappið og fólksbíllinn
mikið skemmdur.