Feykir - 27.04.2005, Page 6
6 Feykir 16/2005
Svenni og Gaui spurðir út í fótboltann_
„Farið í hvern
leik til að sigra"
Það styttist í að keppnis-
tímabil knattspyrnu-
manna hefjist fyrir
alvöru. Lið Tindastóls
spilar líkt og síðustu
sumur í 2. deild íslands-
mótsins en liðið lenti í
fallslag á síðustu leiktíð
en bjargaði sér með
frábærum endaspretti.
Sveinbjörn Jón Ásgrímsson
og Guðjón Jóhannesson þjálfa
Stólana í sunrar en þeir Svenni
og Gaui tóku við liðinu urn
mitt síðasta tímabil. Feylcir
lagði nokkrar spurningar fyrir
þá félaga en lið Tindastóls
hefur nú effir árarnót tekið þátt
í I’owerade-mótinu og Deildar-
bikar KSl og hafa því þegar
spilað á annan tug leikja á
árinu.
- Hverju breyta allir þessir
leikir sem spilaðir eru áður
en hið eiginlcga keppnis-
tímabil hefst?
„ Þetta eru einu skiptin sem við
komust á fótboltavöll í fullri
stærð frá september og frarn í
maí. Þar rneð segir það sig
sjálft að þetta er gríðarlega
mikilvægt. Þetta gefur okkur
kost á að nota nánast eingöngu
heimamenn í þessa leiki. Þar
með öðlast þeir dýrmæta
reynslu. Við búum við það að
flestir okkar eldri leikmenn eru
ekki á staðnum á þessum tírna.
Við erum með mikið af ungum
og efnilegum strákum sem fá
að spreyta sig og hafa staðið sig
með stakri prýði í vetur. Til
gamans nrá geta þess að yngsti
leikmaðurinn í liði okkar núna
eraðeins 15 ára.”
- Eru þjálfararnir sáttir við
gang mála á Powerade-
mótinu og leikina í
Deildarbikarnum?
„Á heildina litið verðunr við að
svara því að við séum nokkuð
sáttir við það senr af er. Hins
vegar höfum við gert kröfu á
strákana að vinna hvern einasta
leik sem við förum í og það
hefur ekki gengið alveg eftir
eins og þið hafið verið duglegir
að benda á. Við teljum að sá
hópur sem við höfum í
höndunum núna eiga að geta
bætt sig mikið bæði í surnar og
lengri ffamtíð. Það kostar
alltaf helling að verða bestir og
við erum að blæða núna.
Sjáum hvernig Islandsmótið
fer.”
- Eru einhverjar fréttir af
leikmannamálum?
„ Við misstum marga stráka
frá því í fyrra, Þorsteinn
Vigfusson, Kristinn T
Björgvinsson og Kristmar G.
Björnsson eru líklega hættir
Halldór (Donni) Sigurðsson,
fór í Víking, Elías Ingi Árnason
fór í stórlið í Reykjavík, Ágúst
Ingi Ágústsson fór í stórlið í
Grenivík og Hafþór Atli
Rúnarsson fór í stórlið á
Egilsstöðum. Það senr við
höfum fengið er fyrst og fremst
stórefnilegir drengir úr yngri
flokkum félagsins og Þorsteinn
Gestsson hefur ákveðið að
snúa heim á leið eftir að hafa
verið á slóðum Leifs heppna
sem sumir kenna við Kristófer
Kólumbus. Svo er kannski
einn júkki á leiðinni.”
- Hver er stefnan fyrir
sumarið?
„ Stefnan er eins og áður segir
að fara í hvern leik til að vinna
og þetta lið getur unnið alla
andstæðinga sína í þessari
deild með réttu hugarfari og
miklum vilja til að leggja sig
fram. Hins vegar getum við
tapað fyrir öllum
andstæðingum ef þetta er ekki
í iagi. Krafan frá okkur
þjálfurunum er að sækja fleiri
stig í ár en á síðasta ári. Ef það
gengur eftir þá er allt á
áætlun.”
- Hverjir taka enska bikarinn?
„ Arsenal að sjálfsögðu.”
Á hliðarlínunni.
Bókhald
Bókhaldsþjónusta fyrir einstaklinga,
fyrirtæki og félagasamtök
Tökum að okkur almennt bókhald, færslur,
uppgjör, launaútreikninga, framtalsgerð, stjórnun
verkefna og framkvæmdastjórn fyrir rekstaraðila
Góð þjónusta fagfólks á sanngjörnu verði
Hafðu samband
Leiðbeiningamiðstöðin
Aðalgötu 21 > Sími 455 7100 > Fax: 455 7101
Þrir efstu i Stærðfræðikeppni FNV og 9. bekkjar. Frá vinstri: Kristinn Björgvin Árdal sem
varð þriðji, þá Davíð Þorsteinsson sem varð annar og loks sigurvegarinn Dagur Torfason.
Um 500 manns sottu FN V heim sumardaginn fyrsta
Dagur sigraði
Stærðfræðikeppnina
FNV-dagurinn var haldinn hátíðlegur á sumardag-
inn fyrsta og var frábær mæting í skólann. Ekki þykir
óvarlegt að áætla að um 500 gestir hafi sótt dagskrá
skólans og þegið kaffiveitingar.
Boðið varupp á kynningu
á Fjölbrautaskólanum, sýnin-
gar á stuttmyndum nemenda
og tónlistarflutning nemenda
úr Tónlistarskóla Skagafjarðar.
Leikfélag Sauðárkróks sýndi
atriði úr leikritinu Þrek og tár
og nemendur FNV sungu lög
úr söngleiknum Thriller.
I bólcnámshúsi skólans fór
fram kynning á námsfram-
boði skólans auk kynningar á
vegum Námsgagnastofnunar
á efiii til stærðfræðikennslu
í grunnskólum. Skátafélagið
Eilífsbúar stóð fyrir keppni í
kassaklifri við íþróttahúsið. I
verknámshúsi skólans vor sýnd-
ir munir nemenda í verknáms-
deildum skólans og nemenda
úr 9. og 10. bekk Árskóla sem
sækja verklega kennslu í FNV.
Þá voru sumarhús, sem nem-
endur í húsasmíði hafa byggt,
opin almenningi. Þá settu Bif-
hjólamenn af Norðurlandi svip
sinn á daginn.
ÚrslitStærð-
fræðikeppninnar
Keppt var úrslitum í hinni árle-
gu Stærðfræðikeppni FNV og 9.
bekkjar grunnskóla á Norður-
landi vestra á FNV-deginum,
en keppnin var nú haldin í átt-
unda sinn. Sigurvegari í þetta
skiptið var Dagur Torfason úr
Varmahlíðarskóla en í öðru
sæti varð Davíð Þorsteinsson
og Kristinn Björg\án Árdal varð
í þriðja sæti, en þeir koma báðir
úr Árskóla á Sauðárkróki.
Myndlistarsýning Þórhalls Filippussonar
Þrjátíu og sex verk
Þórhallur við málverk af huldufóki i Hegranesinu, til sýnis í Safnahúsinu á Sauðárkróki.
Myndlistarmaðurinn og
flugkappinn Þórhallur Fili-
pusson (74) hefur opnað
sýningu á verkum sínurn í
Safnahúsinu á Sauðárkróki.
Þórhallur stundaði nám við
Handíða- og myndlistaskóla
Islands 1949-1950. Jafnframt
myndlistinni stundaði hann
verslunarrekstur og kenndi
svifflug. Þórhallur flutti til
Sauðárkróks árið 1981 oghe-
frir haldið fjöhnargar sýnin-
gar á verkum sínum víða um
land. Þrjátíu og sex verk eru
á sýriingunni í Safnaúsinu
sem stendur til 1. maí