Feykir - 29.06.2005, Side 6
6 Feykir 25/2005
ffómsætt&gott
® híásJónúVW 1 ®
Feykir hefiir fengið Jón Daníel á Kaffi Krók til að sjá um
matarhorn í Feyki og er upplagt að áskrifendur setji upp
kokkhúfuna og reyni sig við uppskriftir Jóns.
Frá markaðsdegi í Varmahlið.
Markadsdagur í Varmahlíð______________
Allir gátu fundið eitt-
hvað við sitt hæfi
Að þessu sinni er ég með
auðveldan fiskrétt fyrir grillið
ásamt grilluðu grænmeti sem
passar vel með fiskréttinum.
Hráefnið ætti að vera hægt
að nálgast í Skagfirðingabúð.
Grillaður fiskur fyrir
jjórci oggrillað
grœnmeti
Ýsa -1 kg. roð og beini
Smurostur-ein dós, t.d.
blaðlauks
Sveppir, ca.6stk.
Niðursneyddir
Blaðlaukur, 1 stk í sneyðum
(bara nota hvíta hlutann)
Saltog pipar
Álpappír
Rífin er góð örk af álpappír,
leggið fiskinn á álpappírinn
og kryddið með salti og
pipar. Næsta skref er að
smyrja smurostinum yfir
fiskinn og þá eru sveppa- og
blaðlaukssneiðarnar lagðar
ofan á og álpappírnum lokað.
Grillað á heitu grilli í 10-12
mínútur. Borið fram með
fersku salati, hrísgrjónum og
ekki skemmir að hafa grillað
grænmeti sem að saman-
stendur af:
1 stk. Eggeldin
1 stk. Kúrbítur (zuccini)
Hvítlauksolía og salt og pipar
Skerið eggaldin og kúrbítinn í
2-3 sentimetra breiðar sneiðar
og kryddið með salti og pipar.
Látið standa í ca. hálfa
klukkustund. Síðan er
penslað með hvítlauksolíunni
og grillað í u.þ.b. 2-3 mínútur
á hvorri hlið. Síðan er trikkið
að allt afgangsgrillað
grænmeti má leggja í ólífuolíu
og geyrna til síðari nota og rná
þá hita með öðrum mat eða
nota kalt í salat,
Kveðja,
Grilljón
Hráefnið sem Jón Dan notar
er hægtaðnálgastí
Skagfirðingabúð.
Markaðsdagur var
haldinn í Upplýsinga-
miðstöðinni í Varmahlíð
þann 19. júní sl.
Ýmislegt var í boði og má
þar helst nefna markað þar
sem í boði var ýmis konar
handverk, fiðlu- og harmo-
nikkuleikur, andlitsmálun og
blöðrur fyrir börnin ásamt
því að hægt var að skella sér á
hestbak eða gefa öndunum.
Þrátt fyrir óspennandi
veður var fjölmenni á svæðinu
þar sem einnig var verið að af-
hjúpa minnisvarða um látna
bifhjólamenn á sama tíma í
tenglsum við 100 ára afmæli
biflijólsins.
Markaðsdagurinn tókst
með eindæmum vel og ekki
spillti fyrir tilboð hjá ýmsum
fyrirtækjum í Varmahlíð. 13
ára og yngri fengu frítt í sund
og í Kaupfélaginu var boðið
upp á ís úr vél á tilboði.
Allir aldurshópar gátu því
fúndið eitthvað við sitt hæfi í
og vonandi að enn fleiri sjái sér
fært að mæta á næstu markaðs-
daga en þeir verða haldinir 10.
júlí, 21. ágúst og 18. sept., hvort
heldur sem er með sölu eða
uppákomum. Heimamenn
jafnt sem ferðalangar eru hvattir
til þess að kíkja við í Varmahlíð
þessa daga og upplifa alvöru
markaðsstemmningu.
Kristín Una Sigurðardóttir skrifar
Eru mínir peningar ekki
jafn mikils virði?
Ég ætla að taka mér það
bessaleyfi að hafa orð
fyrir þeim unglingum á
aldrinum 16-18 ára sem
fóru á dansleik með
hljómsveitunum Von og
Týrol sem haldinn var í
Reiðhöllinni þann 18. júní
s.l.
Aldurstakmark inn á um-
ræddan dansleik var 16 ár og
var hann vel sóttur af ung-
mennum allt þar uppúr sem og
fullorðnum. Fyrir dansleikinn
var sýndur rokksöngleikur en
vegna aldurs átti undirrituð þess
ekki kost að sjá hann, en
aldurstakmark inn á hann var
18 ár. Vegna þessa brá mér
heldur í brún þegar ég var
rukkuð um 2500 krónur inn á
dansleikinn, þar sem ég vissi að
inná bæði rokksöngleikinn og
dansleikinn kostaði miðinn
einnig 2500 krónur.
Glöggir menn átta sig fljótt á
því að þarna er verið að
mismuna fólki á grundvelli
aldurs og er það tilefni þessara
skrifa. Þar sem ég er ekki orðin
18 ára fékk ég ball fyrir mínar
2500 krónur en þeir sem orðnir
eru 18 ára gátu fengið sama ball
auk rokksöngleiks fýrir sínar
2500 krónur.
Ég var nú ekki á þvi að sætta
mig við þessa mismununun
þegjandi og hljóðalaust og
leitaði því svara hjá
forsvarsmanni og aðstandanda
sýningarinnar. Þar fékk ég þau
svör að fólk vildi vera með glas í
hönd á rokksöngleiknum og
áfengi þvi selt þar, og þar af
leiðandi 18 ára aldurstakmark
á hann, en til að koma í veg
fýrir vesen hafi verið ákveðið að
hafa sama gjald inná bæði
söngleikinn og dansleikinn.
Það væri ekkert athugavert
við þessa gjaldtöku, á hvaða
grundvelli svo sem hún er sett
upp á, ef ekki væri fýrir
mismunandi aldurstakmörk,
og er ég viss um að öllum
unglingum á aldrinum 16-18
þætti lítið mál að leggja á sig það
vesen sem komið var í veg fýrir
með þessu svo ekki væri þeim
mismunað svona. Dæmi hver
fýrir sig, en ég er viss um að
gróðinn af bæði áfengis- og
miðasölu var í hámarki þetta
kvöld og leyfi ég ntér að efast
um vesenið sem hafi sparast á
þessu f)TÍrkomulagi. Að
minnsta kosti trúi ég að
mínusinn á kortareikningum
unga fólksins hafi verið stærri.
Þó ég, ásamt svo mörgum
öðmm ungmennum, hafi látið
þetta yfir mig ganga í þetta sinn
þá geri ég það ekki hljóðalaust
og veit ég að margir hugsuðu
það sama og ég gerði. Ég ætla
ekki að láta bjóða mér þetta
aftur og vona að önnur
ungmenni geri slíkt hið sarna.
Að lokum vil ég þakka fýrir
annars góða skemmtun. Þrátt
fýrir þennan svarta blett á
framkvæmd hennar þá skemmti
ég mér ljómandi vel.
Kristín Una Sigurðardóttir
Þakka þérfyrirbréfið
Niðurstnða okknr sem að Hei þúí
stóðum var að hafa eitt verð jýrir
baU ogskemmtun. Það varúkveðið
2500 krónur sem er verð ú
aðgöngumiða á venjulegan dans-
ieik. Vegna þess að leyfö var sala á
áfengum bjór í andyri reiðhall-
arinnar tii kl. 12 á miðnœtti var
okkur ckki heimilt að selja yngri en
18 ára inn á söngleikinn. Þessar
rcglur eru áki'eðnar aflöggjafanun.
Þœreru óréttlátar í Ijósi þess að ekki
cr aldurstakmark inn á íþróttaleiki
ýmiskonar, landsmót hestamanna,
útihátíðir ogfleiri viðburði þarsem
seldir eru áfengir drykkir og engin
aldurstakmörk meðal gesta.
Þú hefur sagt skoðun þína og ég
hvet þá sem setja lögogleikreglur til
að hlusta á þín sjónarmið. Varð-
andi bjórinn þá treysti ég mér
jj'llilega til þess að hleypa inn á
sýningu sem þessa ungu fólki og
taka á b)rgð á þvi að þeim verði
ekki seldur áfengur bjór. Hittfinnst
mérjafn sjálfsagt að þcir sem hafa
aldur til og rilja kaupa sér bjór á
staðnum eigi þess kost.
Ámi Gunnarsson
> Ólafshússmótarööin í gotfi 06 á Sauöárkróki
30. júní
> Fornleifarölt kl. 17.00 aö Hólum í Hjaltadal
1. JÚIÍ
> Guðröður Jóhannesson opnar sýningu á
teikninum og olíumálverkum á kaffihúsinu
Við Árbakkann á Blönduósi
> Landsbankamót Tindastóls fyrir 4. fl. stúlkna
og drengja í knattspyrnu á Sauðárkróki
> Opnun sýningar um strandmenningu í
kaffihúsinu Kaffi Viðvík á Skagaströnd
> Knattspyrna á Hofsósi. M.fl. karla,
Neisti - Skallagrímur, kl. 20.00
> Steaknightá Kaffi Krók, kl 18-22
> Opnun kaffihúss í Hamarsbúð á Vatnsnesi
og sýningar um strandmenningu. Kaffihúsið
er opið til 31. júli
> Opnun sýningar um Hólarannsóknina í
Bláu stofu kl. 17.00 - Gengið til móts við
Galdra-Loft kl. 22.00 á Hólum í Hjaltadal
2. júlí
> Opna DHL mótið í golfi á Sauðárkróki
> íslandsmót í Enduro-keppni í þolakstri, 3.
og 4. umferð kl. 10-16 á Blönduósi
> Gönguferð með Ferðafélagi Skagfirðinga.
Gengið frá Hafragili á Laxárdal ytri að
Hafragilsseli og Bjarnarvötnum
> Knattspyrna á Blönduósi M.fl. karla - 3.
deild, Hvöt — Afríka, kl. 14.00
> Dagsferð í Laugarfell með JRJ jeppa-
ferðum. Farið frá Varmahlíð kl. 11
> Fornleifarölt á Hólum kl. 13.00 - Kaffi-
hlaðborð á veitingastaðnum Undir Byrðunni
frá kl. 18.00
3. júlí
> Fjölskyldudagur á hestaleigunni,
Lýtingsstööum í Skagafirði
> Dagsferð í Laugarfell með JRJ jeppa-
ferðum. Farið frá Varmahlíð kl. 11
> Helgistund i bænhúsinu að Gröf í
Skagafirði kl.21.00. Boðið uppá kaffisopa
og meðlæti undir kirkjuveggnum að athöfn
lokinni.
> Guðsþjónusta í Hóladómkirkju kl. 11.00.
Tónleikar í Hóladómkirkju kl. 14.00
> Helgistund að Þingeyrum í Austur-Húna-
vatnssýslu
> Kirkjudagur í Húnaþingi vestra Allar kirkjur
á svæðinu opnar gestum milli kl. 10 -18
4. júlí
> Skotfélagið Ósmann með opinn skotvöll-
inn, frá kl 18-21 við Sauðárkrók
> Knattspyrna á Blönduósi. 2. fl. kvenna.
Hvöt - Álftanes kl. 20:00
5. júlí
> Fjallaskokk þvert yfir Vatnsnesfjallið í boði
USVH:: Húnaþing vestra
> Barnadagar á Hólum í Hjaltadal, dagskráin
hefst kl. 15.00
6. júli
> Ólafshússmótaröðin í golfi 07 á Sauðárkróki
6. - 7. júlí
> Hérðasmót USAH í frjálsum íþróttum á
Blönduósi
söffn & sýningar
Á NORDURLANDIVESTRA
Glaumbær - opið alla daga frá 9-18
Minjahúsið á Sauðárkróki - opið alla daga
frá 14-17
Víðimýrarkirkja - opið alla daga frá 9-18
Vesturfarasetrið - opið alla daga frá 11-18
Vatnalífssýningin á Hólum - opið alla daga
frá 10-18
Samgönguminjasafn Skagafjarðar - opið
aila daga 13-18
Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi - opið
alla daga frá 10-17
Byggðasafnið á Reykjum - opið alla daga
frá 10-18
upplysingar@skagafjordur.is