Feykir - 13.07.2005, Blaðsíða 1
Malbikað á Eyrínni
i'fr' Alltf r_ i ■ r-T—
Mmm
í - - sæiP i***- mEi*
Matur & menning á Blönduósi og Hafnardagur á Króknum
Húllumhæ á Norðurlandi
vestra um helgina
Það verður mikið um að vera bæði á Blönduósi og á
Sauðárkróki um næstu helgi. Á Blönduósi verður
hátíðin Matur og menning haldin í þriðja sinn og á
Sauðárkróki verða Hafnardagar haldnir hátíðlegir.
Nýmæli er hinsvegar að
þessi tvö bæjarfélög standi að
einhverju leyti sarnan að
þessum hátíðum en það er ekki
nema urn 30 mínútna akstur á
milli þeirra sé farið um
Þverárfjallsveg.
Það er því óhætt að fullyrða
að maður verði manns gaman
þessa helgina en meðal þess
sem boðið verður uppá er
lifandi tónlist, sýningar
ýmiskonar, matreiðslukeppni,
víðavangshlaup, gönguferðir,
varðeldur, opinn markaður,
flugeldasýning og fleira og
fleira.
Þá er einnig vert að minna á
sýninguna „Strandmenning
við Húnaflóa” í Kaffi Viðvík á
Skagaströnd fýrir þá sem
hyggjast skjótast yfirurn og
korna handan að aftur um
helgina!
Starfsemi Byggðasafns Skagfirðinga aldrei meiri
Lukka með safnadaginn
Það var fjölmenni í Glaum-
bæ, samanlagt komu hálft
fimmta hundrað gesta þen-
nan dag og var stenmiingin
góð þrátt fyrir rok og hálfgerð
ólæti í veðrinu.
I Víðimýrarkirkju komu
um 150 manns en nokkuð
færri í Minjahúsið. Þar var
samt mikið um að vera en
Ragnheiður Traustadóttir
sagði frá Hólarannsókninni
og fágætum forngripum
sem komið hafa úr jörðu á
undanförnum árurn, Bragi
Skúlason sýndi handbrögð og
áhöld við smíðavinnu, sem og
Ingólfur Sveinsson sem sagði
frá verkstæðunum og mörgu
skemmtilegu af Króknum og
Unnar Ingvarsson sagði frá
sýningunni Glöggt er gests
augað.
Starfsmenn safnsins vilja
koma á framfæri þakklæti til
þeirra sem tóku þátt í dag-
skránni með þeim, ekki síst
starfsfólki Áskaffis.
Einkaaðilar vilja malbika Kjalveg
Hálendisvegur aftur
til umræðu'
I fréttum Ríkisútvarpsins
í gær kom fram að unnið
væri að stofnun félags á
Suður- og Norðurlandi
um að byggja upp í
einkaframkvæmd malbi-
kaðan heilsárs hálendis-
veg yfir Kjöl með teng-
ingu niður í Skagafjörð.
Er tengingin við Skagafjörð
talin vera ein meginforsenda
framkvæmdarinnar því með
henni styttist leiðin á milli
byggðarlaga fyrir meginþorra
Norðlendinga.
Að hinu nýja félagi sten-
dur m.a. félagið Norðurvegur,
sem kannað hefur möguleika
á hálendisvegi um Stórasand á
ntilli Borgarfjarðar og Skagaf-
jarðar. Þeim hugmyndum var
fálega tekið, m.a. af Blöndu-
ósingum og umhverfissin-
num.
Því er talið að rneiri sátt
muni ríkja urn þessa tillögu
en Stórasandsleiðina, en kost-
naður við framkvæmdina er
áætlaður um 5 - 5,5 milljarðar
króna.
S vína vatnshreppur_________
Háhraðatenging verður
að veruleika innan tíðar
Að sögn Ægis Sigur-
geirssonar, bónda í
Stekkjardal í Svínavatn-
shreppi, gengur áskrif-
endasöfnun á háhraða-
internettengingu við
fyrirtækið Emax framar
björtustu vonum.
Nú þegar hefúr hvert ein-
asta heimili í Svínavatnshreppi
skrifað sig fýrir þjónustunni,
allir bæir í Bólstaðahlíðarhrep-
pi sem möguleika eiga á að ná
sendingunum auk nokkurra
bæja í Langadal, alls um 40
bæir.
Þá mun Húnavallaskóli
einnig tengjast inn á kerfið. Nú
er verið að reisa þá senda og
endurvarpa sem til þarf til að
veita þjónustuna í sveitinni, en
samningaþóf við Símann unt
aðstöðu í fjarskiptastöðinni
á Tungunesmúla liefur tafið
verkefnið nokkuð. Þegar ljóst
var að samningar næðust ekki,
var sú leið valin að Svínvetn-
ingar reistu sinn eigin sendi
við hliðina á aðstöðu Símans.
Þjónustan ætti því að komast
í gagnið á allra næstu vikum
þegar öllum tilskyldum ski-
lyrðum hefur verið fúllnægt.
Tilkynning
Feykir í sumarfrí
Feykir tekur sér nú tveggja slunarmannahelgi, eða nánar
vikna sumarfrí og kernur næs- tiltekið 4. ágúst. Þá er bara að
ta blað út í vikunni eftir ver- vona að sólin skíni!
Almenn raftækjaþjónusta
- frysti og kæliþjónusta
- bíla- og skiparafmagn
- véla- og verkfæraþjónusta
—CTcHfill ehp—
Bílaviðgerðir
hjólbarðaviðgerðir
réttingar og sprautun
Æí
bílaverkstæöi
Aðalgötu 24 550 Sauðárkrókur Sími 453 5519 Fax 453 6019
Sæmundargötu lb 550 Sauöárkrókur Sími 453 5141