Feykir - 13.07.2005, Blaðsíða 8
13. júlí 2005 :: 27. tölublað :: 25. árgangur
Feykir
SHELL SPORT SKAGFIRÐINGABRAUT29 SAUDÁRKROKI SÍMI 453 6666
Vestur-Hunvetnmgar
Vinna með
Gretti sterka
Færeyingar við minnismerki Asdisar á Bjargi 2004
Framkvæmdir eru haf nar við Grettisból á Laugarbakka
í Miðfirði, en þar verður í framtíðinni veglegt fræðslu-
og menningarsetur með skemmtiívafi og byggt á
sögu Grettis sterka.
Grettissaga er ein kunnasta
af íslendingasögum og hefur
verið þýdd á fjölmörg tungu-
mál. Sögu Grettis sterka
kannast fjölmargir við og mun
því vera auðvelt að fá mikinn
fjölda fólks til að heimsækja
söguslóðir hans. I Grettisbóli
verður móttaka gesta, ásamt
smáverslun og útisvæði sem
hentar til samkomuhalds og
leikja. Stefnt er að opnun þess
sumarið 2006. Síðar verða í
Grettisbóli sýningarsalir og
uppákomusalur, þar sem gestir
fá innsýn í atburði sögunnar.
Grettisból ntun einnig k)Tina
aðrar áhugaverðar sögur
Hrútafjörður
Árekstur og
útafakstur
Samkvæmt lögreglunni á
Blönduósi hefur umferð-
in að mestu gengið stór-
áfallalaust þessa vikuna.
Þó var tilkynnt um útafak-
stur í Hrútafirði aðfararnótt
þriðjudags en þar voru á fer-
ðinni þrjár konur sem sakaði
ekki. Gistu þær í Staðarskála
um nóttina og héldu för sinni
áfrarn í gær.
Þá varð árekstur milli tveg-
gja vörubíla á mánudag, einn-
ig í Hrútafirði, en svo virðist
sem annar vörubílstjórinn hafi
verið að taka framúr fólksbíl
og lent beint frarnan á vörubíl
sem kom á móti.
Unnið var að því í allan
gærdag með stómrkum vinnu-
vélunt að koma vörubílunum
af slysstað en þeir reyndust með
öllu óökufærir eftir áreksturinn.
Einn maður fótbrotnaði í slys-
inu en tildrög slyssins munu
vera í nánari rannsókn.
héraðsins og auðvelda þannig
þeirn sem vija fræðast unr það
aðgengi að upplýsingum um
héraði í heild.
Hiutafélagið Grettisból ehf
mun standa að uppbyggingu
og rekstri Grettissetursins og
binda menn rniklar væntingar
við þetta framtak.
Árleg Grettishátíð
Grettishátíðin verður haldin 5.
-7. ágúst og verður nú
Héraðshátíð með þátttöku
Ferðamálafélagsins í héraðinu
og einstökum félögum innan
þess.
Ætlunin er að ná til
fjölskyldufólks og fá það til að
dvelja í héraðinu yfrir heila helgi.
Margvísleg tilboð verða hjá
ferðaþjónustunni, gisting,
veitingar, hestaútleiga, veiði,
ratleikuro.fi. Álaugardagskvöld
verður dagskrá í Grettisbóli á
Laugarbakka og á sunnudag
verður þölskylduhátíð á Bjargi í
Miðfirði.
Það verður m.a. árleg
kraftakeppni, þar sem konur
og karlar reyna sig og keppa
um Grettisbikara, undir stjórn
þekktra kraftamanna. Hefur
Grettishátíð þótt hin besta
skemnrtun.
gangan.is____________
Haltur leiðir
blindan
Vikuna 22,- 28. júlí
munu félagarnir Guð-
brandur Einarsson,
nuddari, kennari og
bóndi, sem er nærri
blindur, og Bjarki Birgis-
son, sundþjálfari og
afreksmaður í sundi,
sem er hreyfihaml-
aður, ganga í gegnum
Skagafjörðinn og
Húnavatnssýslurnar á
hringgöngu sinni um
landið.
Tilgangur göngunnar er
að vekja athygli á málefnum
barna með sérþarfir. Kap-
parnir ganga u.þ.b. 1200 km
leið á tæpum sjö vikunt eða að
meðaltali 24 km á dag.
Hægt er að fýlgjast með því
sem á daga göngugarpanna
drífur á leið þeirra urn landið
á heimasíðunni www.gangan.
is.
® 455 5300
Spara&u regluleg* 1 □ með KB sparifé Tl KB BANKI Wmm -krafturtil þín!
Unnið við að ýta í eitt gilið á Lágheiðinni í siðustu viku. mynd ÖÞ:
Unnið við 3ja kílómetra langan kafla_
Fjarðarmenn gera
nýjan veg á Lagheiði
Verktakafyrirtækið
Fjörður sf. í Skagafirði
er að gera nýjan
þriggja kílómetra lang-
an veg á Lágheiði milli
Ólafsfjarðar og Fljóta.
Þeir áttu lægsta tilboð
þegar verkið var boðið
út í vor tæpar 23 millj.
króna.
Nýi vegurinn byrjar
skammt norðan við fjárrétt-
ina (Reykjarétt) í Ólatsfirði
og tekur af hlykkjóttasta kaf-
lann upp heiðina. Þó vantar
1.3 kílómetra að hann nái
upp að sýslumörkum efst á
heiðinni. Mun nú vera orðin
talverður áhugi fólks beggja
megin við heiðina og einnig
hjá alþingismönnum fyrir
að þessi kafli verði tekinn í
sumar. Kemur þar til að þar-
na er um einn snjóþyngsta
kaflann á heiðinni að ræða
og ennfremur að verktakinn
mun skyla verkinu mun fyrr
en kröfur voru urn og gæti
því þessvegna auðveldlega
tekið þann spotta sem eftir
verður.
í samtali við Svein Árna-
son flokksstjóra hjá Firði sf.
kom fram að bvrjað var á
verkinu 13 júní sl. og stefna
þeirra er að hleypa umferð á
nýja veginn í lok júlí, en þá
verður að vísu eftir vinna við
ýmiskonar frágang.
Sveinn sagði að vegstæðið
væri nokkuð beint og mesti
halli væri innan við 6% þetta
er alveg gagnstætt því sem
áður var enda sá vegur áratu-
ga gamall.
Vegurinn verður mikið
uppbyggður, hæstu mel-
arnir eru teknir niður um
allt að sjö metra og uppfyl-
ling-in í dýpstu giljunum er
6-7 metrar. Sveinn hefur trú
á að vegurinn muni verja sig
nokkuð vel fyrir snjó.
Hann sagði að verkið
hefði gengið ágætlega til
þessa enda væru þeir langt
á undan þeim tímamörkum
sem vegagerðin setti, en
verklok áttu að vera sam-
kvæmt útboði 15. septem-
ber.
ÖÞ:
QLI RAFVERKTAKAR
'tlUl.ÍE - sérverslun
BÚSTAÖUR
með raftæki
^ rafsjá hf
SÆMUNDARGÖTU 1 SAUÐÁRKRÓKI SÍMI453 5481