Feykir - 07.09.2005, Page 8
Það er vissu leyti gaman að láta busast. Mynd: Addi
422 nemendur hófu nám á haustönn við FNV
Busar vígðir í
Fjölbraut
Nynemar - busar - voru
teknir í heldri nemenda
tölu síðastliðinn föstu-
dag en þá fór fram sú
sérkennilega athöfn
busavígsla í nágrenni
Fjölbrautaskóla Norður-
lands vestra.
Nú síðustu árin hefur
busavígslan farið franr í fyrstu
viku skólaársins og eru senni-
lega bæði busar og starfsfólk
skólans fegin því að svo sé
því hér áður fyrr fór busavíg-
slan oft fram um mánuði eftir
að kennsla hófst við skólann
með tilheyrandi linnulitlum
busapyntingum.
Að þessu sinni þurftu
busar að vaða Sauðána, þeir
fengu mjólk og hveiti yfir sig
og fengu að bragða á græn-
leitum graut og ýmislegt
fleira rnáttu þeir ganga í gegn-
um. Um kvöldið var 'síðan
busaball í Miðgarði þar senr
hljómsveitin Á móti sól lék
við hvurn sinn fingu.
Nemendur við FNV eru
422 nú á haustönn og eru
111 nemendur á heimavist
skólans. Mest aðsókn er að
félagsfræðabraut en þar eru
113 nemendur skráðir til
náms. Ein helsta nýungin í
skólastarfinu er sú að bætt
hefur verið við námi á vél-
stjórnarbraut 2. stigs en þar
stunda 16 nemendur nám.
545 4100
www.bustadur.is
BÚSTAÖUR
FASTEIGNASALA
A LANDSÐYGGÐINNI
RAFVERKTAKAR
- sérverslun
með raftæki
^ 455 5300
KB greiSsluþjónusta
KB B A N K I
-krafturtil þínl
Tölvur og netnotkun fyrirtækja í Skagafirði
Viðamikil könnun
í undirbúningi
Undanfarnar vikur hefur verið í undirbúningi
spurningakönnun sem send verður öllum bændum
og flestum fyrirtækjum í Skagafirði. í könnuninni er
lögð áhersla á tölvur og netsamband, tengimögu-
leika, kostnað, tövukunnáttu og fleira. Um er að
ræða viðamestu könnun sinnar tegundar í
Skagafirði.
Könnun þessi er hluti af
BIRRA-verkefninu (Broad-
band in Rural and Remote
Area), sem er samstarfsverkefni
þjóða á norðurslðóð. Inn-
lendir þátttakendur eru
Byggðastofnun, Póst- og fjar-
skiptastofnun Sírninn, Sveit-
arfélagið Skagafjörður, fsafjarð
arbær,Leiðbeiningamiðstöðin
á Sauðárkróki og Gallup. Auk
fslendinga taka aðilar frá
Skotlandi, Svíþjóð og Finnlandi
þátt í verkefninu.
BIRRA er skammstöfun á
enska heitinu á breiðbands-
tengingum eða háhraða-
tengingum í dreifbýli.
Verkefnið er í nokkrum
liðum en ætlunin er meðal
annars að kanna hversu mikið
smærri fjTÍrtæki og bændur
nota netið og tölvupóst, hvort
fólk telji að auka megi
fjarvinnslu með bættum teng-
ingum, kostnað við netnotkun.
Þá er jafnframt markmið
verkefnsins að miðla á milli
þátttökulanda upplýsingum
urn nýjustu tæknilausnir á
sviði gagnaflutninga.
Spurningalistar verða
væntanlega sendir út í næstu
viku en aðstandendur segja
mjög mikilvægt að sem flestir
svari. BIRRA-verkefninu lýkur
í lok næsta árs og verður hægt
að nýta niðurstöður þess m.a.
sem vinnuplagg við skipu-
lagningu byggðaaðgerða.