Feykir - 19.10.2005, Blaðsíða 1
Fyrsta skófíustungan
I gær var tekin fyrsta Igröfu/skóflustungan að nýju einbylishúsi við Iðutún á Sauðárkróki. Það er Hagnhildur Þórðardóttir sem byggir með
góðrí aðstoð bróður sins og fóður, Jóhanns og Þórðar Hansen. Með Ragnhildi á myndinni sonur hennar Þórður Hólm. MyndÁG
Skagafjarðaraeitur kaupa
Hitaveitu Hjaltadals
Jarðboranir á Reykjum og í Kýrholti
Stjórn Skagafjarðarveitna ehf. hefur samþykkt
samning milli fjármálaráðuneytisins og Skaga-
fjarðarveitna ehf. um kaup á 96% hlut Ríkissjóðs í
Hitaveitu Hjaltadals sf. og yfirtöku á vatnsveitu að
Hólum.
Skagaíjarðarveitur skuld-
binda sig með þessum
samningi til að fullnægja
vatnsþörf Hitaveitu Hjaltadals
sf, sem er skuldbundin til að
sjá Hólaskóla fyrir nægjanlegu
heitu vatni til frambúðar.
Einnig skuldbinda Skaga-
fjarðarveitur ehf. sig til að
vatnsveitan að Hólum fullnægi
þörfum Hólastaðar og kröfum
heilbrigðiseftirlits og bruna-
varna. Samningurinn verður
undirritaður að hálfu seljanda
með fyrirvara um heimild
Alþingis til sölunnar.
Þetta var samþykkt á fundi
stjórnar Skagafjarðarveitna sl.
föstudag. Þar var einnig
heimilað að heíja boranir á
nýjan leik að Reykjum í
Hjaltadal og hefur verið samið
við Ræktunarsamband Flóa
og Skeiða urn borun á
vinnsluholu, sem verður
staðsett um 50 m. frá
núverandi vinnsluholu að
Reykjum.
Þá verður að sögn Páls
Pálssonar, veitustjóra Skaga-
fjarðanæitna, að öllum líkind-
um boruð ný tilraunahola í
landi Kýrholts í Viðvíkursveit
í beinu framhaldi af borun-
inni á Reykjum.
Endanlegar niðurstöður
rannsókna á borholunni í
Hrolllaugsdal hafa staðfest að
vatnsmagnið er nægjanlegt
fýrir hitaveitu á Hofsósi. Það
er hins vegar í höndurn stjórn-
ar Skagafjarðarveitna að taka
ákvörðun um hversu hratt
verður ráðist í framkvæmdir.
Byggingariðnaður í Skagafirði_
Aukið framboð af
lánsfé skiptir sköpum
Töluverð þensla hefur
verið á byggingarmarkaði
í Skagafirði undanfar-
in misseri og skortur á
iðnaðarmönnum eins og
víðar á landinu.
Viðmælendur Feykis eru
almennt sammála um að bætt
aðgengi að lánsfé til bygginga
hafi hleypt lífi í markaðinn.
Mest hefur verið byggt á
Hólum í Hjaltadal en þar he-
fur dótturfélag KS, Þrá ehf.,
byggt 40 íbúðir og áformar
byggingu á 22 til viðbótar.
Þá hafa húsnæðissam-
vinnufélög á Sauðárkróki
byggt tugi íbúða en þessar
framkvæmdir eru að lang
mestu leyti fjármagnaðar með
hagstæðum langtímalánum
frá Ibúðalánasjóði.
Sjá nánar fréttaskýringu á
blaðsíðu 3.
Hlýindi í upphafi rjúpnavertíðar__________
Veiði fer rólega af stað
„Ég held að þetta hafi farið Sarna segja veiðimenn í
frekar rólega af stað, samt Fljótum og Húnavatnssýslum.
hafa allir fengið eitthvað, frá Veiðin fer rólega af stað vegna
einni upp í tíu á mann, en ég rigninga og hlýinda. Almennt
hef ekki heyrt stórar tölur,” eru menn þó sammála um að
segir Jón Pálmason, skot- mikið sé af rjúpu og til dæmis
veiðimaður á Sauðárkróki um hafi gangnamenn séð talsvert
rjúpnaveiðina. af fugli í haust.
Kirkjumiðstöð á Akureyri í tilefni 9 alda afmælis Hóla
„Undarleg afmælisgjöf"
A Kirkjuþingi í Reykjavík
á laugardag er áætlað að
lögð verði fram tillaga um
stofnun kirkjumiðstöðvar
á Akureyri í tilefni af níu
alda afmæli biskupsstóls
á Hólum í Hjaltadal.
Séra Gísli Gunnarson, for-
seti sveitarstjórnar í Skagafirði
segir það undarlega afmælis-
gjöf að flytja störf er tengist
vígslubiskupsembættinu til
Akureyrar.
„Á sínum tíma var tekist
á um það, hvar aðsetur
vígslubiskups skyldi vera og
var ákveðið að biskup yrði á
Hólum”, sagði Gísli í samtali
við Feyki. Gísli segir að síðan
þá hafi orðið mikil uppbygg-
ing á Hólum og störf eins og
umsjónarmaður kirkjugarða
og prestssetra eigi þar vel
heima í tengslum við embætti
vígslubiskups.
„Ef kirkjuþing ætlar
að byggja þessi störf upp á
Akureyri, finnst mér ekki
rökrétt að tengja það 900 ára
afmæli Hóla. Ég hefði vænst
þess að kirkjustjórnin mundi
nota þessi tímamót til þess að
efla Hólastað, sem hefur verið
höfúðstaður Norðurlands um
aldir.”
Almenn raftækjaþjónusta
- frysti og kæliþjónusta
- bíla- og skiparafmagn
- véla- og verkfæraþjónusta
—CTewytll ehj3—
Bílaviðgerðir
hj ólbarðaviðgerðir
réttingar og sprautun
ÆrW*'Wbílaverksfæ<ji
Aðalgötu 24 550 Sauðárkrókur Sími 453 5519 Fax 453 6019
Sæmundargötu lb 550 Sauðárkrókur Sími 453 5141