Feykir


Feykir - 19.10.2005, Side 6

Feykir - 19.10.2005, Side 6
6 Feykir 39/2005 Ársæll Guðmundsson og Viggó Jónsson skrifa Uppbygging íþróttaleik vangs a Sauðarkróki íþróttaleikvangurinn á Sauöárkróki sumarið 2004. Undirritaðir hafa notið þeirra forréttinda að starfa í framkvæmdanefnd um uppbyggingu íþróttaleik- vangs á Sauðárkróki sem tekin var í notkun á Landsmóti UMFÍ 2004. Framkvæmdanefndin sem hélt rúmlega 30 fundi, mun skila af sér skýrslu um störf sín við fornilega athöfn í Ljósheimum á morgun, fimmtudaginn 20. október kl 20:00. Þangað eru allir íbúar velkomnir og sérstaklega hvetjum við alla þá fljölmörgu sem hjálpuðu okkur að gera þennan skemmtilega leikvang. Það var í mars árið 2002 sem ákvörðun var tekin um að Landsmót UMFÍ árið 2004 skyldi haldið í Skagafirði en þá voru liðin 33 ár frá því Landsmót UMFÍ var haldið þar síðast. Þess má geta að Gísli Sigurðssonffjálsíþróttaþjálafiri hafði barist fyrir því að halda landsmót í Skagafirði í nol<kur ár en þegar vestfirðingar gáfu landsmótið frá sér var allt sett á fullt og var þá búið að spekulera mikið í teikningum og frum hönriun á leikvangnum, þannig að leikvangurinn nýttist sem best fyrir allar íþróttir. öllum sem að ákvörðuninni komu vissu að framundan var mikið verk og þyrfti samstillt átak íbúa í Skagafirði að koma til svo byggja mætti upp íþróttamannvirki sem stæðust kröfúr. Framkvæmdanefnd um uppbyggingu íþróttaleik- vangsins var skipuð snemma sumars 2002 og fékk einnig það hlutverk að afhenda tjaldsvæði tilbúið til notkunar á Nöfunum. Samningur var gerður við UMSS og UMFÍ varðandi uppbyggingu og afhendingu leikvangsins fyrir Landsmótið 2004. Ákvörðun var síðan tekin árið 2004 að Unglingalandsmót UMFI skyldi einnig haldið á Sauðárkróki um verslunar- mannahelgina það ár. I upphafi var reiknað með að kostnaður yrði rúmar 78 milljónir en þegar upp var staðið kostaði leikvangurinn 147,7 milljónir kr, en það var að sjálfsögðu allt önnur framkvæmd, ekki var reiknað með áhaldahúsi , heitu vatni undir brautir, að byggja upp fótboltavöllinn, eða setja upp vallarhús, svo eitthvað sé nefrit. Ríkissjóður greiddi kr. 65 milljónir, sveitarfélagið Skaga- fjörður60,3 milljónirogUMSS lagði til kr 22,4 milljónir í formi vinnuframlags og styrkja. Þetta hefði ekki verið hægt nema með aðkomu fjí'ilmargra sjálfboðaliða og styrkveitenda og samstilltu átaki íbúa í Skagafirði. Þykir okkur það vera einsdæmi hversu samtaka allir voru í að láta verkefnið ganga upp. Þetta sýnir enn og aftur hvað hægt er að gera ef menn hafa trú á því sem er verið að gera, allt það fólk sem kom og hjálpaði til, beðið og óbeðið, hvort heldur var verið að moka skurð draga í leggja þökur eða gefa fólki að borða, þetta stiður allt hvað annað. Það er ekkert mál að fá fólk til að koma og vinna í sjálboðavinnu það þarf bara að láta það vita af því, að það sé velkomið. Margvísleg óvænt verkefni urðu á vegi framkvæmda- nefndarinnar við gerð íþrótta- leikvangsins. Má þar helst nefna að skipta þurfti út öllu undirlagi nýja vallarins þar sem gamli völlurinn reyndist halla of mikið og jarðvegurinn reyndist ekki standast kröfur. Jarðvegsmön var byggð en meiningin var að setja allt það efni sem úr vellinum kom í hana og planta síðan trjám og víði til að mynda skjól á norðurhluta vallarins en þegar í ljós kom að það þurfti að skipta um efni undir hlaupabrautunum var ákveðið að flytja efni burt af svæðinu sem ekki var upphaflega áætlað, einnig var ákveðið að staðsetja áhaldageymslu í möninni. Það urðu töluverðar umræður um upphitun hlaupabrauta en nefndin taldi það nauðsynlegt til að nýta mannvirkið allt árið og einnig nýttust hlaupabrautirnar fjTÍr eldri borgara og þá sem eiga erfitt með útivist þegar snjór og krapi er á göngubrautum. Aðalleikvangurinn var færður frá Sundlaug Sauðárkróks, þ.e. í suður til að þrengja ekki um of að byggingarreit sundlaug- arinnar. Gerviefnið sem valið var í hlaupabrautirnar var vandlega valið með tilliti til veðráttu og notkunar. Stökk- gryfjur fýrir langstökk og þrístökk voru hafðar fjórar í stað tveggja eins og hefðbundið er en það eykur afköst vallarins til mikilla muna. Fram- kvæmdanefridin lagði mikið kapp á útsjónarsemi og sparnað í hvívetna. T.d. er vallarhúsið við austurhlið vallarins smíðað úr fimm vinnuskúrum. Voru þeir sniðnir saman og er húsið nú prýði á vellinum. Styrktaraðilar hafa verið margir og jákvætt hugarfar einstakt hjá öllum til að gera íþróttalekvang Skagfirðinga sem veglegastan. Gunnar Sigurðsson á Ökrum gaf t.d. tímatökuhúsið sem stendur utan í Nöfunum við suð- vesturhorn vallarins og Egill Benediktsson gaf veglega klukku sem hangir á suður- hlið áhaldageymslunnar í möninni. Verktakar stilltu gjaldtöxtum sínum verulega í hóf og gleymdu þeim á stundum og ber að þakka það sérstaklega. Töluverð sam- skipti voru við Menntamála- ráðuneytið og reyndist starfs- fólk þess okkur einstaklega vel. Þingmenn og ráðherrar studdu okkur mjög vel, enda hækkaði framlag ríkisins töluvert frá því sem upphaflega var áætlað. Landsmótin árið 2004 eiga eftir að vera lengi í minnum höfð í Skagafirði. Veðrið skartaði sínu fegursta og framkvæmdin bar öllum þeim sem að henni komu fagurt vitni. Við vonum að íþróttaleikvangurinn á Sauð- árkróki eigi eftir að nýtast íbúum Skagatjarðar og íþróttaiðkendum á íslandi vel um ókomna framtíð. Við erum stoltir af verkinu og þökkum öllum okkar sam- starfsaðilum kærlega fyrir gott og gæfuríkt samstarf. Ársœll Guðmundsson, sveitarstjóri Viggó Jónsson, formaður framkvœmdanefnar Magnús H. Gíslason skrifar Úr handraðanum Eitt sinn voru þeir Jóhannes Kjarval list- málari ogThorVilhjálms- son rithöfundur á ferð um Austurland og komu þá við á Eiðum. Þeir kvöddu dyra og gerðu boð fyrir Þórarinn skóla- stjóra. Han fór til dyra, bauð þeim félögum að ganga í bæinn en þeir töldu sig ekki mega vera að því en í stað þess dró Kjarval upp hálffulla brennivínsflösku og bauð á báða bóga. Þegar flaskan var tæmd tók Kjarval við henni, virti hana fýrir sér og segir að nú haldi allir orðið á flösku og sagðist vera alve hættur að biðja um kopp. Það sé svo leiðinlegt að vita afblessuðum stúlkunum vera að hella undan manni daginn eftir. Hann taki svo flöskuna með sér þegar hann fari úr herberginu og fleygi henni í næstu ruslatunnu. Enginn veitti þessu athygli því allir séu með flöskur. Allt í einu snéri hann sér að Thor og segir. “Hefurðu aldrei pissað í flösku?” “Ne- hei, ne-hei”, segir skáldið og sperrir upp brýrnar. “Þá eigið þér mikið eftir”, segir Kjarval. „Það er alveg stórkostlegt, heil symfónía undir sænginni, sem hljómar svo undur- samlega í næturkyrrðinni. Fyrst heyrist í bassahljóð- færunum á meðan flaskan er að fyllast að neðan. Síðan hækka tónarnir eftir því sem ofar dregur og þegar komið er upp í stútinn hljóma diskantarnir. Þetta er alveg stórkostlegt, herra rithöf- undur, þetta þurfið þér endi- lega að prófa. “Ja-há, alveg stórkostlegt”, tók rithöfundurinn upp eftir meistaranum en hann hafði drukkið hvert orð af vörum Kjarvals á meðan hann lét dæluna ganga er hann var að lýsa þeirri merkilegu uppgvötun sinni að það væri á færi hvers karlmanns að gerast stjórnandi symfóníu- tónleika. Magnús H. Gíslason

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.