Feykir


Feykir - 26.04.2006, Síða 2

Feykir - 26.04.2006, Síða 2
2 Feykir 16/2006 SoroptimistaklúbburSkagafjarðar__ Góð stemning á alþjóðlegu kvenna- kvoldi í varmahlíð Stjórn Soroptimista- klúbbs Skagafjarðar hefur aflað upplýsinga um fjölda þeirra erlendu kvenna sem eiga lögheimili í Skagafirði. bær reyndust vera liðlega 30 sem hafa hcr fasta búsetu. Til að bjóða þær velkomnar og fá örlitla innsýn í þeirra reynslu- og menningarheim ákvað stjórnin að bjóða þeirn í kvöldverð á Hótel Varmahlíð í byrjun mars. Um það bil helmingur þeirra hafði tök á að mæta þetta kvöld og er skemst frá því að segja að sú samverustund var öll hin ánægjulegasta. Dagskráin var fremur óformleg og vildum við ffemur blanda við þær geði í léttu spjalli fremur en að vera með stíft prógram og var mikið spjallað Konur í Soroptimista- klúbbi Skagafjarðar telja einsýnt að þetta sé einungis fyrsta skrefið að frekari kynnum og var bundist fastmælum að gera þetta að árlegum viðburði að hittast og njóta samvista við þær erlendu konur sem hafa kosið að setjast að í Skagafirði. Soroptimistaklúbbur Skagafjarðar er einn af 16 samsvarandi klúbbum hérl- endis eri Soroptimistaklúbb- arnir á íslandi eru hluti af alþjóðlegri hreyfingu kvenna. Þessir klúbbar hafa það meðal annars að markmiði að vcita þjónustu í sinni heimabyggð og landi og á alþjóðavettvangi. Einnig að vinna að mannréttindum öllum til handa og að bættri stöðu kvenna. Jón Kristjánsson félagsmálaráðherra Ekki fyrirsjáanlegar breytingar á starrseminni á Saudárkróki Jón Kristjánsson, félagsmálaráðherra segir að fyrirhugaðar breytingar á íbúðalánasjóoði og fyrirkomulagi lána hafi ekki í för með sérfyrirsjáanlegar breytingar eru á starfsemi sjóðsins á Sauðarkróki. Ekki er ennþá ljóst hvenær Alþingi tekur endanleg afstöðu til þeirra breytinga sem lagðar verða til en ef slíkar ákvarðanir verða teknar þá kemur málið væntanlega til kasta þingsins á fýrstu dögum þess næsta haust. I febrúar sl. setti þáverandi félagsmálaráðherra á fót þriggja manna stýrihóp sem falið var að efna til víðtæks samráðs um framtíðarstefriumótun um hlutverkogaðkomu stjórnvalda að íbúðalánamarkaðnum. Stýrihópnum var falið að skipuleggja og sinna formlegu samráði við hagsmunaaðila um kosti og galla óbreytts fyrir- komulags Ibúðalánasjóðs og hugsanlegar nýjar leiðir í aðkomu hins opinbera að húsnæðismarkaðnum. Jafri- framt var hópnum falið að vinna skýrslu og móta tillögur til ráðherra á grundvelli samráðsins. Hópurinn skilaði af sér áfangaáliti, nú fyrir skemmstu. „Stýrihópurinn hefur unnið eftir þeirri stefnumörkun að við breytingar á íbúðalána- kerfinu verði í engu fórnað markmiðum húsnæðisstefnu stjórnvalda sem Ibúðalána- sjóður sinnir í dag,” segir Jón Kristjánsson, félagsmála- ráðherra, í viðtali við Feyki. „I álitinu kemur fram það mat hópsins að rétt sé að þróa hlutverk íbúðalánasjóðs í þá átt að hann dragi sig út af smásölumarkaði en hafi það hlutverk að vera bakhjarl fyrir lánveitingar til almennings. Slíkt myndi áfram tryggja stærðarhagkvæmni, auka á fjármálalegan stöðugleika, styðja við samkeppni á íbúða- lánamarkaði, tryggja jafnræði í aðgangi landsmanna að hús- næðislánum og draga úr notkun ríkisábyrgða í hús- næðislánakerfmu. Félagsmálaráðherra hefur falið stýrihópnum að vinna áfram að þróun framtíðarkerfis á næstu vikurn, með aðkomu sérfræðinga og í samráði við þá sem hagsmuna eiga að gæta af framtíðarfyrirkomulagi á íbúðalánamarkaði. Gert er ráð fyrirþvíaðtillögurstarfshópsins liggir fyrir eigi síðar en í lok maímánaðar nk. I tillögunum verður tekið á uppbyggingu hins nýja íbúða- banka, þ.e. rekstrarformi, fjármögnun og hvernig hagað verði samskiptum hans og samstarfsaðila á markaðnum. Þá verður kynnt útfærsla á því hvernig markmiðum stjórn- valda um framboð lána á sömu kjörum, óháð búsetu eða félagslegri stöðu, verði náð. Þegar þær tillögur liggja fyrir er fyrst hægt að taka endanlega afstöðu til þeirra breytinga sem lagðar verða til.” Leiðari Nýbúar Ekki eru allir hrifnir nffjölgun fólks af erlendum upprutm hér á landi. Þó ber að haf í huga að um 27.000 íslend- ingar búa um þessar mundir erlendis ogþeir erufleiri en “nýbúarnir” hér heitna. Stœrstur hluti íslendingatma flytur heim aftur og margir taka með sér erlendan maka. Þessufólki höfum við ávalt tekið vel enda hefur það á margan hátt auðgað samfélagið. Sötnu leiðis höfum við tekið vel erlendu fólki er sinnir stör- fum sem viðgetum ekki mannað sjálf. Vonandi berum við áfram gœfu tilþess að taka vel á móti þeim sem hér vilja búa til langframa og auðveldum þeim að taka virkan þátt í íslensku samfélagi. Árni Gunnarsson Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum Útgefandi: Feykirhf Skrifstofa: Aðalgötu2i, Sauðárkróki Blaðstjórn: Árni Gunnarsson, Áskell Heiðar Ásgeirsson, Guðbrandur Þorkell Guðbrandsson, Herdis Sæmundardóttir og Jón Hjartarson. Ritstjóri & ábyrgðarmaður: Árni Gunnarsson arnig@krokur.is Simi 455 7100 Blaðamenn: Óli Arnar Brynjarsson Pétur Ingi Björnsson feykir@krokur.is Sími 455 7175 Póstfang Feykis: Box 4,550 Sauðárkrókur Askriftarverð: 210 krónur hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 250 krónur með vsk. Setning og umbrot: Nýprent ehf. Prentun: Nýprent ehf. Vélvirkjar - bifvélavirkjar Bifvéla- eða vélvirkja vantar til starfa í Áhaldahúsi Sveitarfélagsins Skagafjarðar á Sauðárkróki Starfið felst m.a. í viðhaldi og viðgerðum á fasteignum, tækjum, áhöldum, vélum, lögnum og fl. Laun samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaganna og Öldunnar eóa Starfsmannafélags Skagafjaróar. Æskilegt er aó viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Upplýsingar gefur Gunnar Pétursson í síma 894 7466. il Skagafjörður RAÐHUSIÐ SKAGFIRÐINGABRAUT 21 SAUÐÁRKRÓKUR SÍMI 455 6000 HEILBRIGÐISSTOFNUNIN SAUÐÁRKRÓKI AUGLÝSIR Sjúkraliðar Okkur bráóvantar sjúkraliða til afleysinga og í fastar stöður á hjúkrunardeildum. Starfshlutfall, starfstími samkomulag. Allar nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri á staönum og í síma 455 4011 Strákar og stelpur Starfsfólk óskast til sumarafleysinga Enn eru lausar stöóur viö aöhlynningu á hjúkrunardeildum í sumar. Vaktavinna, starfsh- lutfall og starfstími samkomulag. Lágmarksaldur 18 ár. Allar nánari upplýsingar veitir Herdis Klausen hjúkrunarforstjóri á staðnum og í síma 455 4011, netfang: herdis@hskrokur.is Heimasiða HS: www.hskrokur.is I Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.