Feykir - 08.11.2006, Síða 6
6 Feykir 41/2006
molar
Leitað að
rjúpnaskyttum í
Húnavatnssýslum
Tvær rjúpnaskyttur týndust í
Húnavatnssýslu síðastliðinn
föstudag en fundust uppúr
kl. 21 urn kvöldið heilar á
húfi í Sauðadal, sem er milli
Svínadals og Vatnsdals. Sjö
björgunarsveitarbílar voru
kallaðir út til leitar á svæðinu.
Mennirnir voru í slagtogi
með tveimur öðrum rjúpna-
skyttum en þeir ákváðu að
skipta liði. Þeir ætluðu svo
að hitta félaga sína aftur við
bæinn Hrafnbjörg í Svínadal
klukkan 16. Þeir skiluðu
sér hinsvegar ekki sökurn
þess að þeir týndu áttum
í þokuslæðingi. Að sögn
lögreglu voru mennirnir ekki
með GPS-staðsetningartæki
á sér.
Mennirnir voru kaldir og
hraktir þegar þeir fundust
enda hafði gengið á með
rigningu.
Fræðaþing
landbúnaðarins
Fræðaþing landbúnaðarins
2007 verður haldið 15. og 16.
febrúar 2007. Markmið þess
er að miðla niðurstöðum úr
rannsókna- og þróunarstarfi
á sviði landbúnaðar og efla
faglega umræðu.
Fræðaþing landbúnaðarins
hefur á undanförnum árum
vakið verðskuldaða athygli á
því öfluga fræðastarfi sem
fram fer hjá stofnunum
landbúnaðarins, auk þess
sem það er mikilvægt til að
efla samvinnu og samstöðu
á meðal starfsmanna stofn-
ananna.
Fræðaþingið er bæði vett-
vangur til að kynna niður-
stöður nýrra rannsókna og til
að fjalla um afmörkuð fagefni
eða þverfagleg efni sem varða
íslenskan landbúnað og
umhverfi hans. Þá er þingið
einnig vettvangur fyrir yngri
vísindamenn og námsmenn
á sviði landbúnaðarfræða.
Að þessu sinni koma fleiri
stofnanir að undirbúningi
og framkvæmd þingsins
en nokkru sinni fýrr. Þær
eru Bændasamtök íslands,
Hólaskóli, Landbúnaðar-
háskóli íslands, Landbúnað-
arstofnun, Landgræðsla
ríkisins, Skógrækt ríkisins og
Veiðimálastofnun.
Þessi vaska sveit mætti í hádegismat 18. september s.l. ískjólsælum reit við Hraksíðuána. Aldursforsetinn Hjálmar Guðmundsson Korná og Rögnvaldur Árnason verkstjóri
Sauðárkróki eru fremstir á myndinni. Mið röð frá vinstri: Árni Þorgilsson býr á Blönduósi, Reynir Pálsson frá Starrastöðum, Eirikur Orri Hermannsson Skagaströnd, Georg Kristján
Guðmundsson, Rúnar Sveinsson Viðimel, Björgvin Jónsson Hofsósi, Sveinn Árnason verkstjóri Viðimel, Eyjólfur Sveinsson frá Ingveldarstöðum, Sigurður Kárason Syðra Vatni,
Feykir Sveinsson Viðimel og Kristján Kristjánsson Jósepssonar Efri röð frá vinstri: Smári Stefánsson Valdimarssonar, Jóhannes Ólafsson Álftagerði, Ingimar Ástvaldsson frá
Kelduvík, Hlöðver Þórarinsson frá Fossi, Snæbjörn Guðmundsson frá Hafgrimsstöðum, Árni Jón Rögnvaldsson þriðji maður frá Kota Valda og Sigurður Eiriksson, Sigga í Drangey.
Hörður Ingimarsson fjallar um Þverárfjallsveg
4ra mánaða
meðganga...
.. .og kominn um 11 km langur
vegur með fyllingu og neðra
burðarlag. Verkið hófst 6. júlí
2006. Það hefur verið haldið á
spöðunum við þessa vegagerð á
Laxárdalsheiði og í Göngu-
skörðum sem er alls 12,4 knt að
lengd af 7,5 m breiðum vegi.
Ekki kæini á óvart þó
verkinu lyki 1. ágúst á næsta ári.
Árinu fýrr en skilaffestur er úti.
Eina sem getur tafið þessi
verklok er brúargerðin á
Gönguskarðsá sem var boðin út
sérstaklega og er með verklok 1.
ágúst 2007. Allt var á floti á
brúarstæðinu 6. nóvember eftir
mikið vatnsveður og talsvert
brimrót um liðna helgi.
Texti og myndir: hing
Þegar gert er ræsi er snjallt aðgera hjáleið. Þá verður allt verkið auðveldara og
mönnum og tækjum vinnst vel. Þetta er bráðabirgðaræsi á myndinni og vegtenging yfir
Kallá IHeiðará) austan Tunguréttar. Horft er í norðvestur til Heiðarhnjúks
18. septembers.l.
Hvenær Heiðaráin varð að Kallá er nokkuð á reiki en liklegt að það sé á árabilinu 1950-
1953. En um miðja síðustu öld var Kallá sem kemur úr Vatnaöxl og rann til norðurs veitt
til suðurs við gamla Heiðarselið eða Dalsá til að auka rennslið til Gönguskarðsárvirkj-
unar. Viða í heimildum má sjá að Heiðaráin rann um Heiðardalinn og Kálfáin féll i hana
og runnu þær síðan i Gönguskarðsá. Myndir sýna glögglega árfarvegi er Kalláin rann til
norðurs. Siðar er ástæða til að gera grein fyrir þessu isérstökum pistli.
Svo komu vaskir menn og skrúfuðu og settu saman mikið ræsi og svona leit þaðút 25.
september. Hjáleið Kallárinnar er til vinstri. Ræsið er gert úr stálplötum og vegur um 87
tonn og um 140 bolta þurfti á hvern lengdarmeter eða um 9400 bolta. Meðal rennsli Kall-
ár við Tungurétt er um 1,8 m3 á sekúndu en getur orðið allt að 70 m3 á sekúndu miðað
við flóð með 100 ára endurkomutima, en flóð sem koma með tveggja ára millibili eru oft
um 25 nf á sek. Og ræsið verður að geta tekið við öllum þessum vatnsflaum.
8. október leit ræsið svona út er smiðir unnu við uppslátt til beggja enda. Stærðin á ræs-
inu er mikil sem sjá má afmanninum sem nálgast að vera um 1,90 m á hæð. Vatnasvið
Kallár IHeiðarár) er um 42 knf' við Tungurétt. Þetta mikla ræsi á Kallá, um 7Om langt
með öllu, ernú komið á kaf ijarðveg og mun þjóna mörgum kynslóðum vegfarenda.
Á Nafarhorninu neðan Gönguskarðsár 4. október. Á fögrum morgni fangar moksturs-
armur gröfunnar gömlu Drangey sem verður heldur lítil um sig i þessum hlutföllum.
Það er búið að moka og moka í Nafarhorninu dögum og vikum saman besta efni sem
hægt eraðfá til vegagerðar. Það verður gaman aðfara út úr Króknum um ósa Göngu-
skarðsár og um Nafahornið með eyjarnar og Reykjaströnd á hægri hönd og auðvitað til
vinstri er komið er heim á ný. Ekki er víst aðÁsta Begga fyrrum Blöndhliðungur greini
sláturhúsið ef hún kemur þessa nýju leið í Krókinn (sbr. viðtal i siðasta Feyki).