Feykir


Feykir - 08.11.2006, Qupperneq 8

Feykir - 08.11.2006, Qupperneq 8
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri MæK og vegið! Hérmásjá Skagfirð- inginn Sindra Gíslason (th) og ísgeir Aron Hauksson, starfsmenn Landbúnaðarháskóla íslands, þar sem þeir eru að mæla og skrásetja helstu stærðarmál á nýfæddum nautkálfi. Þetta er liður í stórri rannsókn á orsökum smákálfadauða. Snorri Sigurðsson, framkvæmdastjóri bú- rekstrarsviðs Lbhl, sagði að undanfarnar vikur hefði staðið yfir rannsókn á burðaratferli kúa í fjósinu á Hvanneyri, þar sem fylgst væri með kúnum við burð með stafrænum myndavélum. „Við væntum þess að ljúka gagnasöfnun vegna rannsóknarinnar fyrir áramót. Fyrstu niðurstöður verða birtar á Fræðaþingi landbúnaðarins í byrjun næsta árs.” Sveitarfélög á Norðurlandi vestra Menningarsamning- ur í undirbúningi Nýskipað Menningarráð fyrir Norðurland vestra vinnur nú að undirbúningi Menningarsamnings við ríkið. Stefnt er að því að ljúka þeirri vinnu um næstu áramót. Menningarsamningurinn verður væntanlega á milli Menntamálaráðuneytisins og Samgönguráðuneytisins annars vegar og Sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hins vegar. Samningurinn getur náð til margvíslegar starfsemi á sviði lista og menningar en áætlað er að sveitarfélögin á Norðurlandi vestra verji árlega samanlagt um 170 milljóna kr. til ýmiss konar menningarmála. Formaður Menningarráðs er Guðrún Helgadóttir. SHELL SPORT SKAGFIRÐINGABRAUT 29 SAUÐARKROKI SIMI 453 6666 SMIs, Þjófar á ferð í Skagafirði Brotist inn í Árgarði og Varmahlíð Brotist var inn í félagsheimilið Árgarð í Steinstaðahverfi og Varmahlíðarskóla um síðustu helgi Brotist var inn í Árgarð aðfararnótt laugardags og stolið þaðan skiptimynt. I Varmahlíðarskóla var brotist inn seint á laugardaskvöld. Þar var stolið fjórum fartölvum, skjávörpum, tveimur staf- rænum myndavélum og einni stafrænni vídeómyndavél. Þjófurinn eða þjófarnir brutu upp hurð vestan á húsinu og ollu talsverðu tjóni. Að sögn lögreglu er málið í rannsókn og allar vísbending- ar vel þegnar. Laugarbakki í Miðfirði Víkingasverðið risið hjá Grettisbóli Lokið er við að reisa tíu metra hátt járnsverð í víkingastíl í væntanlegum skemmtigarði Grettisbóls á Laugarbakka í Miðfirði. I Grettisbóli, sem heitir í höfuðið á frægasta útlaga íslandssögunnar, Gretti Ásmundssyni ffá Bjargi í Miðfirði, verður byggt upp útivistarsvæði þar sem lögð verður áhersla á að setja upp leiki fyrir alla aldurshópa. Áhersla verður á aflr aunir og íþróttir er tengjast siðum og menningu fornmanna. Handverk og vinnsla þess verður sýnd á svæðinu og settir upp leikþættir og sýningar. Starfsmenn Bílagerðis ehf smíðuðu og settu upp þetta 10 metra háa sverð. Sverðið er hannað af Ráðbarði sf og Jóni Hámundi Marínóssyni. Kaupfélag Skagfirðinga þakkar bændum fyrirgottsamstarfá • • BÆNDADOGUM Starfsfólk Kaupfélags Skagfirðinga

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.