Feykir - 14.02.2007, Blaðsíða 1
Láttu ekki vandræðin
verða til vandræða
Ibúðalánasjóður
www.ils.is
Úr verinu
Sextíu tonna skip
gert út frá Hofsósi
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Jón Magnússon verkfræðingur hjá Vegagerðinni skoða aðstæðurí Norðurárdalnum
Samgönguráðherra kynnti nýja samgönguáætlun fyrir árið 2007 -2018
Framkvæmdum á Þverár-
fjallsvegi ekki flýtt
Sturla Böóvarsson, samgönguráðherra, kynnti
á mánudag samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar.
Heildartekjur og framlög til samgönguáætlunar verða
381,4 milljarðar króna.
Af þeirri upphæð renna 324
milljarðar til vegamála. Hvað
Norðvestur svæðið varðar þá
er gert ráð fyrir að ljúka vegi í
Norðurárdal þann 20. ágúst
á þessu ári en ekki er gert ráð
fyrir að flýta ffamkvæmdum
á Þverárfjallvegi líkt og
Byggðarráð Skagafjarðar
hafði lagt áherslu á. Þá er
Alexandersflugvöllur á Sauðár-
króki ekki nefhdur sérstaklega í
áætluninni.
Sturla Böðvarsson var
staddur í Skagafirði í liðinni
viku og var hann þá að kynna
sér ffamkvæmdir í héraðinu
áður en lokahönd yrði lögð á
áætlunina. Aðspurður sagði
Sturla að vegur yfir Kjöl yrði
ekki settur á samgönguáætlun
en sér litist vel á hugsanlega
einkaffamkvæmd.
Samkvæmt samgönguáætl-
un á að verja um 42 milljörð-
um tfl vegaffamkvæmda á
landsbyggðinni, 37 miUjörðum
á höfuðborgarsvæðinu og þá
verði 38 milljörðum varið til
jarðgangagerðar. Einnig er
gert ráð fyrir 45 milljörðum
til ákveðinna verkefha svo sem
breikkun Hringvegarins út ffá
Reykjavík og ffamkvæmdum
við Sundabraut.
Greiðari samgöngur eru
taldar mikilvægar og þá stytting
leiða á mUIi byggðakjarna til
þess að lágmarka ferðatíma.
Undir þetta markmið falli
fjöldi ffamkvæmda svo sem
að stytta leiðir miUi staða
með nýffamkvæmdum, gerð
jarðganga, breiðari brýr, nýjar
hafnir og stækkun flugvalla.
Sauðárkrókur
Viggó Einarsson útgerðar-
maður á Hofsósi og eigandi
fyrirtækisins Sjóskips keypti
seint á síðasta ári 60 tonna
bát frá Hvammstanga.
Báturinn hét áður Harpa
en heitir nú Óskar og ber
einkennisstafina SK 131.
„Það er búið að stunda
ýmiskonar veiði á þessum
bát, rækju, snurvoð og net, en
undanfarið hef ég verið að gera
hann kláran fýrir línuveiði.
Ég var með hann í Siglufirði
á dögunum. Var að láta þá
hjá JE vélaverkstæði breyta
svolitlu, setja nýjan spUbúnað
og svo höfum við áhöfnin verið
að vinna í honum erum að
breyta þannig að við komum
fleiri körum fýrir. Við ætlum
að kæla aUan afla í ískrapa þá
er fiskurinn um mínus eina
gráðu þegar hann kernur í land.
Þannig teljum við okkur koma
með úrvals hráefni að landi.
Þannig vflja þeir fá vöruna
sem eru að flytja út ferskan fisk
með flugi”, sagði Viggó. Gert er
ráð fýrir að fjórir verði í áhöfn
Byggja á nýjan
Það vakti athygli að í
atvinnuauglýsingu sveitar-
félagsins Skagafjarðar
sem birtist í öllum helstu
fjólmiólum núna um helgina
var tekið fram að hefja ætti
byggingu á nýjum leikskóla
á Sauðárkróki á árinu
2007.
Unr 36 börn eru nú þegar
á biðUsta eftir leikskólaplássi,
sum hver eru þó yngri en
eins árs. I dag eru börn skráð
á biðUsta frá 6 mánaða aldri
en viðmiðið er að taka þau
inn á leikskóla við 18 mánaða
aldurinn og eins og staðan er í
dag er í járnum að það takist,
segir Rúnar Vífilsson, fræðslu-
og íþróttafuUtrúi.
Viggó Einarsson um borð inýja
bátnum. Mynd ÖÞ:
bátsins og segir Viggó að stefhan
sé að róa með einfalda setningu
sem eru 42 balar í róðri. Þá er
skUyrðið að róðurinn sé ekki
lengri en einn sólarhringur tU
að ná línuívilnuninni. Hann
segist hafa farið út í þetta til
að tryggja stöðugra hráefni
og svo verður hann ekki eins
háður veðri og áður en gamli
báturinn sem hann hefur gert
út undanfarin ár er aðeins 12
tonn. Aflinn mun fara að hluta
tU í fiskvinnslu Viggós á Hofsósi
en eitthvað mun væntanlega
fara í vinnslu á Sauðárkróki og
á markaði. ÖÞ:
Það þótti því Ijóst að ef ætti
að laða fleiri íbúa til bæjarins
væri brýnt að bregðast við
þessari vaxandi eftirspurn
eftir leUcskólarýmum. Fyrir
eru tveir leikskólar í bænum,
Glaðheimar sem tekur 84
börn á þremur deildum og
Furu- og Krflakot sem taka
65 börn á þrernur deUdum.
Meirihluti Framsóknarflokks
og Samfylkingar vinnur nú að
nánari útfærslu á málinu og
vænta má ffekari ffétta af því á
næstu vikum.
VIÐ BONUM OG RÆSTUM!
Daglegar ræstingar og
reglubundið viðhald á bóni
í fyrirtækjum og stofnunum
upZESminrjg
Bílaviðgerðir
hjólbarðaviðgerðir
réttingar .
ogsprautun »
BOm
Hringdu núna eða sendu tölvupóst
Sími: 893 3979 * Netfang: siffo@hive.is
jj/JtfJbifreiðaþjónusta
Sæmundargötu 1b,
SauOárkrókur -S: 453 5141