Feykir - 23.08.2007, Blaðsíða 3
31/2007 Feykir 3
Umhverfísverðlaun Skagafjarðar 2007
Þau eru til fyrirmyndar
Þau veittu umhverfisverðlaunum Skagafjarðar 2007 viðtöku. mynd ÖÞ
A landbúnaðarsýningunni Sveitasæla 2007 voru afhent
verðlaun fyrir fallegt umhverfi í Skagafirði. Sveitarfélagið
Skagafjörður veitir verðlaunin en Soroptimistaklúbburinn
skipar dómnefnd.
Ingibjörg Sigfusdóttir
formaður fjáröflunarnefndar
klúbbsins k)omti verðlauna-
hafana auk þess sem Þórdís
Friðjónsdóttir, flutti ávarp fjTÍr
hönd sveitafélagsins og afhenti
verðlaunin. Verðlaun hlutu;
Hólaskóli, Háskólinn á Hólum
var sú stofnun sem fékk
viðurkenningu fjTÍr umhverfi
sitt. Ártún var valin fallegasta
gatan á Sauðárkrók, Daufá,
snyrtilegasta býlið með hefð-
bundinn búskap. Þar búa
Efernía Valgeirsdóttir og Egill
Örlygsson. Engihlíð, sn>Tti-
legasta býlið, þar sem ekki er
um hefðbundinn búskap að
ræða. Þar býr Oddný Angan-
týsdóttir.
Hótel Tindastóll fékk
fýrirtækjaverðlaunin og garður
Jónu Gísladóttur í Úthlíð í
Varmahlíð var valinn fallegasti
garðurinn.
Ákall frá Selasetrinu
Sjálfboða-
liðar
óskast
Laugardaginn 25. ágúst,
frá kl. 12:00 - 16:00,
mun Selasetur íslands
standa fyrir selatalningu
við Vatnsnes. Markmið
dagsins er stórt, þ.e. að
telja heildarfjölda sela
við Vatnsnes.
Sjálfboðaliðar munu ganga
fjörur frá Miðfjarðarósi og að
Sigríðarstaðaósi. Áhuga-
sömum er bent á að skrá sig
fýrir kl. 18:00 föstudaginn 24.
ágúst.
Mæting í Selasetrið kl.
11:00 á laugardag. Kakó,
kleinur, viðurkenningarskjöl
ogskoðunarferð um Selasetrið
í boði að talningu lokinni.
Skráning og allar frekari
upplýsingar í síma 451 2345
eða á tölvupóstfangið
selasetur@selasetur.is.
Mannlíf
Fjölmenni á flottri sýningu
Fjöldi fólks var við opnun sýningarinnar. Hérmá sjá m.a. þá bræður Aage Michelsen og
Kristinn Michelsen.
Fjölmenni var við opnun sýningarinnar Úr myndaalbúmi
Michelsenfjölskyldunnar, laugardaginn 18. ágúst
síðastliðinn.
Fram kernur á heimasíðu ánægjulegt hafi verið hversu
Héraðsskjalasafirsins að einkar margir úr fjölskyldunni sáu sér
fært að koma norður heiðar.
Þará meðal voru þrír eftirlifandi
synir Jörgen Frank Michelsen
og Guðrúnar Pálsdóttur, þeir
bræður Franch, Kristinn og
Aage.
Alls komu um 150 manns á
sýninguna fýrsta daginn og
hefur verið góð aðsókn aðra
daga. Myndirnar eru frá
árunum í kringum 1940 ogþeir
sem muna þá tíma höfðu um
rnikið að spjalla á opnuninni.
Þá er ekki spurning að
sýningin ætti að veita yngra
fólkinu skemmtilega innsýn í líf
og störf Króksara á þessum
árurn.
Sýningin verður opin virka
daga frá 13:00 - 17:00 og næstu
helgi frá 14:00 - 17:00.
smáauglýsingar... o
Hvolpur fæst gefíns Fimm vikna gamall tikarhvolpur fæst gefins.Þetta er blendingur.foreldrar mjög Ijúfir og góðir. Upplýsingarísíma 4671054.
Sendið smáauglýsingar til birtingar á feykir@nyprent.is
BOLFISKVINNSLA : FLÖKUN : LAUSFRYSTING : PÖKKUN : ÞURRKUN
Framtíöaratvinna
FISK Seafood hf. er sjávarútvegsfyrirtæki sem gerir
út 4 togara og rekur landvinnslur á Sauöárkróki,
Skagaströnd og Grundarfiröi.
Fólk vantar til starfa í landvinnsluna á Sauöárkróki til
hefðbundinna fiskvinnslustarfa.
Vinnutíminn er frá kl. 07,00 - 15,30
Einnig vantar starfsmann i þrif seinni part dags.
Nánari upplýsingar gefur Tómas Árdal
í síma 455 4411 og á staónum.
Er eitthvað að frétta?
Hafðu samband - Síminn er 455 7176
FJOLBREYTT TILBOÐ
OG FRÍÐINDI
í GEGNUM NETKLÚBB GOLFKORTSINS
Sæktu urii Golfkortið á www.golfkort.is l
KAUPÞING
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra verður settur
sunnudaginn 26. ágúst kl. 17:00.
Foreldrar eru hvattirtil að mæta.
Kennsla hefst skv. stundaskrá mánudaginn 27. ágúst kl. 08:00.
Skólameistari
FJÖLBRAUTASKÓLI NORÐURLANDS VESTRA Á SAUÐÁRKRÓKI
UMF. TINDASTOLL
Ungt fólk á öllum aldri í svaka stuði!