Feykir - 01.11.2007, Blaðsíða 4
4 Feykir 41/2007
Ægir Ásbjörnsson hannaði útlit á sviði
og lýsingu á tónleikum Megasar
„Heiður að vinna
með Megasi”
Megas hélt á dögunum
stærstu tónleika sem
hann hefur haldiö en
tónleikarnir fóru fram
í Laugardalshöll á
dögunum. Þaö væri
kannski ekki í frásögur
færandi nema fyrir þaö
aö Króksarinn Ægir
Ábjörnsson sá um
sviðsmynd og lýsingu.
-Þetta kom til af því að ég
var þriðja árið í röð að sjá um
Ijós á Bræðslutónleikunum
sem eru haldnir á Borgarfirði
eystri helgina fyrir Verslun-
armannahelgi ár hvert. Þetta
sumarið sá ég um umgjörðina
alla, það er bæði ljósin og
sviðið. Megas var að spila á
þessum tónleikum og honum
og hans fólki leist það vel á
þetta að þeir ákváðu að fá
nrig til þess að vinna fyrir sig
Laugardalshöll, útskýrir Ægir
aðspurður unr hvernig þetta
konr allt til.
Kári Sturluson, umboðs-
maður Megasar talaði við
Ægi strax eftir tónleikana í
sumar og síðan höfðu þeir
aftur samband sex vikum fyrir
tónleika og staðfestu ósk sína
unr að Ægir kæmi.
Umgjörð Ægis vakti tölu-
verða athygli, þótti einföld
en áhrifamikil. Á vísi.is var
henni lýst svona; -Umgjörðin
var mjög falleg og gaf þeim
hátíðlegan blæ. Sviðsmyndin
var einföld (eitt tré og
ljósasería) og lýsingin var
látlaus en áhrifamikil.
En hvaðan skyldi hugmyndin
hafa komið? -Hún var má
Jólahlaðborð
7. desember 2007
Blönduósi
Forréttir
2 tegundir af síld. Graflax,
reyktur lax, fiskipaté og sveitapaté
Brauð: laufabrauð, rúgbrauð, ristað brauð.
Kjötréttir:
Fyllt “flæske steik”, kalkúnn, hangkikjöt,
hamborgarahryggur.
Meðlæti: Rauðvínssósa, grænar baunir, jólasalat, rauðkál,
hvítar kartöflur í jafning, sykurbrúnaðar kartöflur.
Desert:
“Ris a la Mande”, mokka frómas, kaffi og konfekt.
Verð: 3.980,- á mann.
Borðapantanir í síma 453 5060
UfíjNN^?
POTTUfílNN
OG
PRNÉBHB^M
-------"í'
NORÐURLANDSVEGI4 BLÖNDUÓSI
segja einfölduð frá Borgar-
firði. Svipað konsept en
einfaldað og haft stílhreinna.
Exton útvegaði öll ljós og
mannskap í þetta verkefni og
í raun og veru var ég búinn að
gera plan sem þeir voru með
í höndunum og voru byrjaðir
að vinna þegar ég fór suður.
Ég sá síðan um að stilla allt
inn velja liti og þess háttar.
Þurfti því ekki að vinna þessa
hörðu vinnu. Síðan hafði ég
hauk í horni í mági mínum
honum Jóni Þóri Bjarnasyni
sem aðstoðaði nrig við þetta
allt saman.
Ertu Megasar aðdáandi? -Já,
ég hef alltaf fílað hann og á
einhverjar sjö, átta plötur með
honum.
Hefur þetta útvegað þér
einhver önnur verkefni?
-Nei, ekki enn sem komið
er enda myndi það ekki
gerast alveg strax. Það er
ekki oft sem tónleikahaldarar
leggja svona mikla áherslu
á leikhústilfinninguna eins
og þarna var gert þannig að
ég geri ekki ráð fyrir að það
gerist endilega. Þetta var
svona eitthvað sem maður tók
af því að maður vildi prófa
þetta. Kannski bara forvitni
að vinna í svona stóru húsi og
eins er það heiður að vinna
með Megasi.
Ég geri ekki ráð fyrir að
fara að vinna mikið fyrir
sunnan enda hef ég engan
tíma í það. En auðvitað er
rnjög skemmtilegt að fá að
ráða útliti á heilum tónleikum
þannig að ég hugsa að ef rétta
tilboðið bærist myndi ég slá til
á nýjan leik.