Feykir - 15.11.2007, Side 9
43/2007 Feykir 9
Rithöfundur á Blönduósi
Verðlaunahöfund-
ur í Póstinum
Hilmar Örn Óskarsson 32 ára starfsmaður hjá íslandspósti
er mikið skúffuskáld. Hilmar hefur þó tekið eitthvað af
verkum sínum upp úr skúffunni og unnið til verðlauna.
Hann hlaut meðal annars 2. verðlaun í smásagnakeppninni
Gaddakylfunni fyrir sögu sína Brúður.
Hilmar Örn Óskarsson er
upprennandi rithöfundur
fæddur og uppalinn í Breið-
holtinu. Hiirnar er þriggja barna
faðir í fullu starfi hjá Islandspósti
á Blönduósi. Hann er stúdent af
félagsfræðibraut Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti og kiárar
nám í bókmenntafræði frá
Háskóla Islands um áramótin.
Fjölskylduhagir hans eru frekar
heíðbundnir en hann er elstur af
þremur systkinum og er eini
strákurinn í hópnum. Hann á
sjálfúr þrjú börn með eiginkonu
sinni Margréti.
Dagar í lífi Hilmars eru frekar
venjulegir en hann byrjar á að
koma börnunum í skóla og
leikskóla og fer svo í vinnuna og
rítst við yfirmanninn. Þegar
vinnunni er lokið verslar hann í
matinn og fer svo heim þar sem
hann eyðir mestum tíma þess
sem eftir lifir dags í bömin þó að
auðvitað fari stundum einhver
smá tírni í skriftimar.
Hilmar hefúr búið í Reykjavík
nánast alla sína æ\’i og segist því
kunna vel við sig í góðri
umferðarteppu. Hann bjó fyrstu
22 ár ævi sinnar í Breiðholtinu
en fluttist svo í Hlíðahverfið en
fór svo þaðan aftur í gamla góða
Breiðholtið. Hann flutti svo til
Blönduóss fyrir tæpum tveimur
árurn síðan og sagist kunna
ágætlega við sig.
„Það dettur bara yfir
mann“
Aðspurður hvemig honunt datt
í hug að verða rithöfúndur sagði
hann „Það var ekki beint þannig
að mér dytti það í hug, það datt
frekar í mig.” Þegar Hilmar var
17 ára byijaði hann að fikta við
að semja ljóð sem hann segir að
séu varla birtingarhæf nokkrum
manni en ljóðagerðin þróaðist
seinna út í smásagnaritun.
Innblástur fær hann hvaðanæva
að, til að mynda frá tónlist,
fólkinu í kringum hann og
sjónvarpi.
Hilmar segir það taka sig um
tvær til þrjár vikur að skrifa eina
smásögu en tímann finnur hann
með endalausum málamiðl-
ununt við konu og börn.
Verðlaun ísumar
Hilrnar tók þátt í tveimur
smásagnakeppnum í ár, önnur
var á vegum tímaritsins Nýs Lífs
en hin Mannlífs en hann ffétti af
þeim báðum gegnum heimasíðu
sem heitir Rithringur. I báðum
keppnissmásögunum er framin
glæpur og spurðunt \rið Hilnrar
hvort hann væri svolítill
„krimmi” í sér. Hann viidi nú
ekki meina það og sagði að vegna
skilyrðis um glæp í annarri
sögunni hafði liún líklega haft
áhrif á hina. Þess má geta að
Hilmar náði í annað sætið í
smásagnakeppni Manlífs
Gaddakylfúnni.
Daníel er persóna í sögunni
„Uppvakningar" eftir Hilmar og
fomtnuðumst \’ið um hvemig
hún varð til. Hilmar sagði að
hugmyndin hafi bara komið upp
í sambandi \ið atburði sögunnar.
Honum fannst Daníel vanta
aðeins lit í sitt gráa líf og segist
ánægður lifa sjálfúr aðeins lit-
ríkara lífi heldur en Daníel. Aðal-
hetjan í sögunni „Brúður' er
kvenkyns svo við áætluðum ekki
samsvörun við Hilmar þar...
Tengdamamma góður
gagnrýnandi
Hilmar ráðleggur ungum og
óreyndum rithöfúndum að lesa
( TÖLVUPÓSTURINN )
Guómundur Jónsson, oft kenndur vió Sálina hansjóns míns,
er uppalinn á Skagaströnd og hefur kappinn haldió tryggó vió
heimahagana. Guómundur mun núna á laugardagskvöld eiga sitt
annaó framlag í Söngvakeppni Sjónvarpsins, Laugardagslögunum.
Feykir sendi Guómundi tölvupóst og spurói frétta.
Ekki hægt aö
keppa í tónlist
>
>
Hvað er nú að frétta úr
Reykjavíkurhreppi? -Það er allt
bærilegt að frétta, takk fyrir. í þessum
pikkuðum orðum hefur rigningunni
slotað um stund og loftið er svalt og
kalt sem mentholbrjóstsykur.
En af þér sjálfum? -Ég er tiltölulega
góður. Takk fyrir. Er óðum að skrfða
saman eftir skemmtilega hljóm-
leikaferð um landið, þar sem ég
ásamt félaga mínum og velgjörða-
manni Þorsteini K, hef verið í lungann
úr októbermánuði. Ég var að fylgja
eftir nýútkominni plötu minni Fuður
sem er síðasti hluti af þríleik nokkrum,
Japl Jaml og Fuður sem ég hef verið
með í smíðum síðastliðin 3-4 ár.
Fyrir þá sem ekki vita þá ert þú
Skagstrendingur, ekki satt? -Jú, það
má segja það. Ég flutti 5 ára ásamt
fjölskyldu minni til Skagastrandar
og ólst þar upp í góðu yfirlæti til
unglingsára, er ég flutti á mölina.
Þarna mannaðist maður, kynntist
fyrstu ástinni, byrjaði að drekka brennivín, lærði að spila á gítar, reif kjaft á kjarnyrtri íslensku og bast
tryggðarböndum við bændur og búalið.
Ertu duglegur að rækta heimahagana? -Já, ég held það. Fjölskyldan er að vísu flutt frá staðnum en
ég er svo heppinn að eiga nokkra góða vini á Ströndinni. Ég er nýbúinn að halda þarna sólótónleika
í Kántrýbæ og einu sinni eða oftar hittumst við félagarnir í æskuhljómsveitinni Janus og sláum upp
tónleikum við mikinn fögnuð - sérstaklega okkar.
Þú ert nú þegar kominn með eitt lag áfram í Laugardagslögunum, áttu eftir að koma fram með
fleiri þar? -Það hef ég ekki hugmynd þar um. Ég hef alltaf sagt að það sé ekki hægt að keppa í
tónlist enda lít ég ekki á þetta sem keppni, heldur sjónvarpsþátt sem gerir mér kleyft að búa til þrjú
popplög með landsins færasta fólki og vonandi get ég hlustað á þetta kinnroðalaust á komandi
tímum. Þessi iðja að hnoða saman tónlist er auðvitað það sem ég fæst við daglega svo ég er
afskaplega sáttur við hvernig sem fer.
Hverjir flytja þau? -Ég er þessa daganna að hljóðrita lag nr. 2. sem heitir Straumurinn og koma þeir
Einar Ágúst og Sigurjón Brink með að syngja saman það lag 17.nóv. n.k. Síðasta lagið verður flutt
8. des og syngur Þóra Gísladóttir þann ópus sem ber nafnið; Að eilífu.
Einhver speki svona að lokum?
- Me goum o ginnagid
Je gei gonna bett
Nía nugg og níabid
Na e nommunett
>
>
alls konar bækur og prófa sig
áfram og hann sagði að einnig
væri gott að nota Rithringinn,
ekki gefast upp og taka sér góðan
tíma í þetta.
Það er lítið unt skáldskap í
ætt Hilmars en pabbi hans
skrifaði nokkrar sögur og þykir
Hilmari ekki ólíklegt að hann
hafi fengið bakteríuna frá honunr
- tengdamamma hans skrifar
einnig og er iðin við að gagnrýna
það sem tengdasonurinn sendir
frá sér. Hilntar var byrjaður að
vinna að skáldsögu áður en hann
byrjaði að skrifa fyrir smá-
sagnakeppnirnar. Hann stefiiir
að því að klára hana og gefa hana
út - ef einhver útgefandi fæst tii
þess.
Hægt er að finna smásögur
Hilmars í öllum betri bóka-
búðum landsins í áðurnefndum
smásagnaheftum Nýs lífs og
Mannlífs.
Greinin erunnin af fjöimiðlavali
Grunnskólans á Blönduósi