Feykir


Feykir - 10.01.2008, Blaðsíða 5

Feykir - 10.01.2008, Blaðsíða 5
01/2008 Feykir 5 dóttir menntamálaráðherra, kom færandi hendi í febrúar er hún tilkynnti í heimsókn sinni í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra að byggt yrði við verknámshúsið. * Enn var tekist á um skólamálin út að austan í Skagafirði og að þessu sinni var tekist á um ráðningu skólastjóra. Vildu fúlltrúar minnihlutans meina að illa hefði verið staðið að ráðningu Jóns Hilmarssonar skólastjóra á Hofsósi yfir skólunum út að austan. Eðlilegra hefði verið að auglýsa stöðuna lausa til umsóknar. * Sveitarfélagið Skagafjörður og ORF líftækni skrifuðu í lok febrúar undir samning um samstarf á sviði líftækni. Fól samkomulagið í sér að kannaðir verði kostir þess að taka upp sameindaræktun og próteinúmnnslu á afmörkuðu svæði í Skagafirði. Mars * Blönduósbær hélt íbúafúnd og var hann liður í umleitan sveitarstjórnarmanna til þess að konia á auknu íbúalýðræði. Það var Hulda Ragnheiður Ámadóttir.starfandibæjarstjóri, sem stýrði fundinum sem var vel sóttur. * Lagt var af stað með vinnu sem snéri að fjármögnun 6 deilda leikskóla sunnan Sauðármýrar á Sauðárkróki. I fjölmiðla. * Nemendur í Höfðaskóla sönnuðu hreysti sitt og höfnuðu í þriðja sæti í undankeppni Skólahreysti. Var þama um að ræða keppni rnilli skóla á Norðurlandi. * Kúabændur í Skagafirði héldu sinn aðalfund og þar kom fram að árið 2006 var mesta mjólkurframleiðsluár á landinu til þessa. Það var kúabúið í Egg sem bar af og var bæði afurðahæst auk þess að eiga afúrðahæstu kúnna en kýrin Búbót var afúrðahæst með 789 kílóum af verðefiium og mjólkaði alls 10.692 lítra. Sannkölluð búbót það. * Sveitarstjórn Höfðahrepps skoraði á samgöngunefúd Alþingis um að korna með breytingar á samgönguáætlun með því að setja endurbyggingu Skagastrandamegar inn á áætlun auk þess að taka til endurskoðunar nýja legu hringvegar norðan Svínavatns. * Þá ákvað Atvinnumálanefnd Húnavatnshrepps og aðilar í ferðaþjónustu í Húnavatns- hreppaðstillauppframkvæmda- og kostnaðaráætlun fýrir gerð reiðvegakorts fyrir Húnavatns- hrepp. * Jón Óskar Pétursson, viðskiptafræðingur á Hvammstanga, var ráðinn ffamkvæmdastjóri SSNV úr hópi sjö umsækjenda. * Þegar Alþingi fór í frí fýrir kosningar kom í ljós að mars voru 150 leikskólapláss á Sauðárkróki og er gert ráð fýrir að þeim fjölgi í 190 eftir byggingu hins nýja leikskóla. * Guðmundur Þór Guð- mundsson var kosinn formaður UMSS. * Leikfélag Hvammstanga setti upp Emil í Kattholti og er skemmst frá því að segja að sýningin kom sá og sigraði og hlaut verðskuldaða athygli Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri Grænna í Norður- landskjördæmi vestra hafði talað manna mest eða í rúmar 25 klukkustundir. * Mikiðvardeiltumhugsanlega legu hringvegar norðan Svínavatns í marsmánuði og sendu sveitarstjórnir bæði Blönduósbæjar og Skagastrand- ar frá sér ályktanir gegn henni. Á forsíðu Feylds þann 22. rnars greindi þáverandi samgönguráðherra Sturla Böðvarsson frá því að ekki væri á áætlun næstu fjögurra ára að fara í þær vegbætur. * 23. rnars var haldin mikil hátíð á Hólum er opnuð var 3.300 fermetra reiðhöll. IJað var þáverandilandbúnaðarráðherra Guðni Ágústsson sem bauð til veislu og var tilefni veislunnar auk opnunar hússins, stað- festing laga um Hólaskóla, Háskólans á Hólurn. Það var KS sem fór fýrir hópi fjárfesta við byggingu hallarinnar og við þetta tilefni gaf Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri, út þá yfirlýsingú að hann hygðist fara fýrir hópi fjárfesta og einkaaðila þegar kæmi að uppbyggingu menningarhús við Hóla. Reiðhöllin hlaut nafitið Brúnastaðir. * Hólanefnd úthlutaði í f\Tsta sinn úr sjóði Guðmundar góða og hlaut Hallgrímur Eymundsson styrk að þessu sinni. * Forsætisráðherra kom færandi hendi í Skagafjörðinn í mars en hann skrifaði undir samning sem tryggði Vesturfarasetrinu 137 milljónir tilársins 2011. * LiljaPálmadóttirogSteinunn Jónsdóttir vöktu athygli landans er þær skrifuðu undir lok marsmánaðar, undir samning við Sveitarfélagið Skagafjörð þess efúis að þær hygðust færa sveitarfélaginu sundlaug að gjöf og skyldi sundlaugin vera staðsett á Hofsósi. Mun sundlaugin sem þegar hefúr verið hönnuð verða urn 25 metrar á lengd með tilheyrandi aðstöðu. Sveitarfélagið mun síðarsjá unr reksturlaugarinnar. Einnig skuldbatt sveitarfélagið sig til þess að hraða vinnu við aðalsldpulag þéttbýlis á Hofsósi og greiða götu gefenda í þessu máli. Apríl * I byrjun apríl kom Magnús Stefánsson, þáverandi félags- málaráðherra, færandi hendi norður á Skagaströnd þar sem Reiknistofa atvinnuleysisbóta opnaði á staðnum. Líney Árnadóttir forstöðumaður VinnumálastofhunaráNorður- landi vestra veitir stofúnni forstöðu en auk hennar var gert ráð fýrir sex stöðugildum. * Grímur Gíslason, heiðurs- borgari á Blönduósi, lést á 96. aldursári. Grímur var veður- athugunarmaður og fféttaritari útvarps til fjölda ára og með honum er genginn mikill heiðursmaður. Blessuð sé minning Grírns Gíslasonar. * Hugmyndir um byggingu sundlaugar á Blönduósi tóku að þróast og nú var tekist á um hvort laugin skyldi vera yfirbyggð eður ei, eða hvort hún skyldi vera 16 eða 25 metrar. í ff amhaldi af miklum umræðum var ákveðið að stofiia starfshóp urn málið. * Milljónatjón varð f rnildu aurflóði á Sauðárkróki um rniðjan apríl þegar vatnsstokkur úr Gönguskarðsvirkjun brast með þeirn afleiðingum að rnikið magn vatns flæddi niður Nafirnar með tilheyrandi aurflóði. Mikil mildi þótti að ekki urðu slys á fólki en flóðið varð snemma á sunnudagsmorgni og því engir á ferli. Við tók gríðarlega mikið hreinsunarstarf enda fylltust kjallarar surnra húsa af vatni og aur. Eitt þeirra húsa sem varð illa úti í flóðinu var Villa Nova eitt elsta og söguffægasta hús bæjarins. * Sveitarstj órn í Sveitarfélaginu Skagafirði ákvað á fúndi sínum um miðjan apríl að ffesta sldpulagningu þeirra svæða sem ætluð höfðu verið undir Skatastaða- og Villinganesvirkjanir. Fyrr hafði legið ffammi tillaga ffá fulltrúum minnihluta þess efnis að til þess að flýta fýrir samþykki aðalskipulags fýrir Skagafjörð yrði horfið frá þeirri ætlan að hafa Villinganesvirkjun inni á tillögu að aðalskipulagi fýrir sveitarfélagið og að skipulagi á svæðum sem tengjast hugmyndum um virkjun við Skatastaði verði ffestað. Kont þá meirihlutinn ffam með tillögu þess efnis að ffesta skipulagningu þeirra svæði sem ætluð væru undir Skatastaða og Villinganesvirkjanir. Var sú tillaga samþykkt en fulltrúi vinstri grænna sat hjá. * Á síðasta aðalfúndi KS ákvað stjórn félagsins að færa félagi eldri borgara 10 milljónir að gjöf til uppbyggingar að á félags- og tómstundaaðstöðu fýrir eldri borgara í Skagafirði. * Séra Guðbjörg Jóhannes- dóttir, sóknarprestur við Sauðárkrókskirkju, sagði starfi sínu lausu undir lok aprílmánaðar með þriggja mánaða uppsagnaffesti. Ástæða uppsagnar Guðbjargar voru fýrirhugaðir búferlaflutningar fjölskyldunnar. * Aðalfúndur Kaupfélags Skagfirðinga var haldinn í lok apríl og þar kom ffarn að árið 2006 hafði verið besta rekstrarár í sögu Kaupfélagsins. Var rekstrarhagnaður samstæði Kaupfélags Skagfirðinga 3.574 milljónir króna í samanburði Hð 1.002 milljónir árið 2005. Þá hækkaði veltufé félagsins um milljarð á milli ára. Var bókfært eigið fé samstæðunnar urn 10 milljarðar króna í árslok 2006. Var ákveðið á fúndinum að leggja 35 milljónir króna til Menningarsjóðs félagsins. * Jón Eiríksson, oft nefndur Jón Drangeyjarjarl, var útnefndur Ferðaffömuður ársins 2007 af Samtökum ferðaþjónustunnar. Maí ' * 1 byrjun maí samþykkti Félags- og tómstundanefnd Sveitarfélagsins Skagafjarðar að réttast væri að sameina starfsemi íþróttahúss, sundlaugar og íþróttavallar undir stjórn eins forstöðumanns. Var því öllum þrernur forstöðumönnum mannvirkjanna sagt upp störfúm og störfin þrjú auglýst sem ein staða. Þrír sóttu um starfið en á haustmánuðum var horfið ffá fýrri áætlunum, án þess að nefiidin hefði komið saman og enginn hinna þriggja umsækjenda ráðinn. Þá var forstöðumaður íþróttavallar endurráðinn og er hann einnig yfir íþróttahúsi. Forstöðumaður sundlaugar hélt áfrarn starfi þar til hann sagði sjálfur upp starfi sínu á haustmánuðum. Olli þessi gjörningur pirringi meðal starfsmanna sem ekki náðist að leysa að fullu fýrr en rétt fýrir áramótin 2007 - 2008. » Starfsbraut FNV fékk 3. verðlaun í stuttmyndakeppni starfsbrauta ffamhaldsskólanna senr haldin var í Háskólabíói. Myndina gerðu þrír nentendur þau Steinunn Ósk Indriðadóttir, Eðvarð Sigurjónsson og Tinna Rut Sigurbjörnsdóttir. Myndin hét Gilitrutt. * Heilbrigðisstofnunin á Sauðárlcróki hélt upp á 100 ára afmæli sitt með miklum glæsibrag. Opnuð var sýningin 100 ár í heilbrigði, auk þess sem gefiðvarútveglegtafmælisrit. Þá var haldin glæsileg afmælishátíð þann 6. maí. * Mikið var rætt um veginn í Hegranesi í upphafi maímánaðar en þá ultu tveir flutningabílar í einni og sörnu vikunni. Vegurinn er rnjór og vegkantar rnjúkir og í báðurn tilvikum gaf vegkanturinn sig undan þunga bílanna. Óttuðust bændur að næst yrði það mjólkur- eða olíubíllinn sem þarna færi á hliðina. Hjá Vegagerðinni vildu menn ekki kannast við að þessi vegur væri meiri slysagildra en aðrir og sögðu menn þar á bæ að þennan veg yrði að keyra eftir aðstæðum eins og svo marga aðra hér á landi.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.