Feykir


Feykir - 10.01.2008, Blaðsíða 6

Feykir - 10.01.2008, Blaðsíða 6
6 Feyklr 01/2008 * Karsten Rummelhoff bakari hjá Sauðárkróksbakaríi hafnaði í öðru sæti í brauðsamkeppni Kornax fyrir svokallað Króksbrauð. * SAH Afurðir ehf héldu sinn fyrsta aðalfund síðan félagið var stofhað en félagið er í eigu Sölufélags Austur- Húnvetninga, Kjarnafæðis, starfsmanna og bænda. Voru rekstartekjur SAH afúrða ehf 917 milljónir króna og skilaði reksturinn 3,8 milljónum í hagnað eftir fjármagnsliði og skatta. * Þá skilaði Sölufélag Austur- Húnvetninga einnig hagnaði og var hagnaður af rekstri þess 3,6 milljónir króna. * Þegar tveir dagar voru í alþingiskosningar stefhdi í mjög spennandi kosningar en athygli vakti að Frjálslyndir höfðu tapað miklu fylgi og voru ekki með mann inni samkvæmt könnunum. Þarna leit einnig út fyrir að slagurinn um síðasta þingsætið yrði á milli Herdísar Sæmundardóttir og Ingibjargar Ingu Guðmundsdóttur. * Húsnæðisverð í Skagafirði hækkaði um tíu til fimmtán % á milli ára og var hreyfing á húsnæðismarkaði á fyrri hluta ársins góð. * Á Blönduósi var haldið málþing undir vinnuheitinu Bjargráð í byggðamálum. Var þingið vel sótt og hið fjörugasta. * Stór flugslysaæfmg var haldin á Alexandersflugvelli en á æfingunni var sett á svið flugslys þar sem 30 farþegar og 2 flugmenn slösuðust mismikið. Fengu viðbragðsaðilar í Skagafirði góða einkunn út úr þessari æfingu en önnur svipuð æfing var haldin hér 6 árum áður. * Úti á Skaga tóku menn sig til og hafist var handa við endurbætur á gömlu kirkjunni í Ketu. Ketukirkja var vígð árið 1896 og var farin að láta verulega á sjá. * Eftir að kosið hafði verið til Alþingis kom í ljós að einungis einn alþingismaður kjördæmisins í dag hefði einnig verið fúlltrúi hins gamla Norðurlandskjördæmis vestra. Eftirspennandikosninganóttþar sem þriðji rnaður Samfylkingar, þriðji maður sjálfstæðismanna og annar maður framsóknar skiptust á að vera inni urðu úrslitin þau að sjálfstæðismenn voru sigurvegarar í þessi kjördæmi með þrjá þingmenn, því næst kom Samfylking með t\'o menn og framsókn, Vinstri grænir og ffjálslyndir náðu allir einum manni inn auk þess sem Kristinn H. Gunnarsson fór inn sem uppbótarmaður. * Engin kona náði kjöri í kjördæminu og talning sóttist seint sökum þess hversu víðfermt það er. * Ágúst Þór Bragason á Blönduósi var kjörinn nýr formaður í heilbrigðisnefiid Norðurlands vestra og var felld tillaga írisar Baldvinsdóttur um að Sveitarfélagið Skagafjörður fengi formannssætið. * Þegar ársreikningur Húna- vatnshrepps fyrir árið 2006 var gerður upp kom í ljós að sveitarfélagið hafið verið rekið með hagnaði. En rekstrarhagn- aður sveitarsjóðs nam um 30,6 milljónum króna. * Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti að taka þátt í stofnun hlutafélags sem hafi það að markmiði að koma á nýrri atvinnustarfsemi í húsnæði Laugarbakkaskóla. Samþykkti sveitarstjórn að leggja ffam 2 milljónir króna sem hlutafé að því tilskyldu að hlutafé félagsins verði að lágmarki 10 milljónir króna. * Vel heppnuð Sæluvika var haldin í Skagafirði en meðal þeirra atburða sem í þeirri viku báru hæst var sýning Óperu Skagafjarðar á La Traviata en uppfærslan náði landsathygli og í ffamhaldinu ferðaðist óperan nreð verkið um landið. * Hreppsnefird Höfðahrepps samþykkti á fúndi sínum í byrjun maí að láta gera könnun samhliða alþingiskosningum á viðhorfi íbúa sveitarfélagsins til þess að breyta nafni staðarins úr Höfðahreppi \'fir í Sveitarfélagið Skagaströnd. Var þessi tillaga sveitarstjórnar samþykkt nteð meirihluta atkvæða og fóru nafnaskiptin ffam síðar á árinu. * Höfðahreppur samþykkti í maí ársreikning sveitarfélagsins og var niðurstaða hans sú besta í sögu sveitarfélagsins. Sýndi rekstrarniðurstaða samstæðunnar 67,2 milljóna jákvæða niðurstöðu. * Þegar niðurstöður rekstrar- reiknings ársins 2006 voru lagar fyrir síðari umræðu Sveitarstjórnar Skagafjarðar kont í ljós að niðurstöður reikningsins voru jákvæðari en áætlanir höfðu gert ráð fyrir. Allir flokkar vildu eigna sér hina góðu niðurstöðu og sagði Páll Dagbjartsson að hún staðfesti ábyrga Ijármálastjórn meirihluta V G ogsjálfstæðismannaá síðasta kjörtímabili. Gunnar Bragi Sveinsson benti hins vegar á að þetta væri fyrsti ársreikningur ffá nýjum meirihluta og væri það vilji þeirra að stuðla að hallalausum rekstri sveitasjóðs strax á næsta ári. * Á árlegum Skeifúdegi á Hólum var það Sonja Líndal Þórisdóttir sem bar sigur úr bítum en Sonja var á hryssunni Dagrós sem er í eigu Sonju og móður hennar Elínar Líndal. * Húnavaka, hið glæsilega rit Ungmennasambands Austur- Húnvetninga kom út í 47. sinn á árinu og að venju var það Stefán Á Jónsson sem ritstýrði. * Brautskráning fór ffam ffá FNV en að þessu sinni brauðskráðust 75 nemendur ffá skólanum. 40 nýstúdentar, 1 nemandi af starfsbraut, 2 iðnnemar, 5 húsasntiðir, 7 rafvirkjar, 6 vélsmiðir, I sjúkraliði 1 af uppeldisbraut, 1 af vélstjórnarbraut 2. stigs og 7 af vélstjórnarbraut 1. stigs. * Þegar ný ríkisstjórn Sjálf- stæðisflokks og Samfylkingar leit dagsins ljós í maí kom í ljós að Einar Kristinn Guðfinnsson myndi stýra ráðuneyti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytum. Hins vegar var samgönguráðuneytið flutt yfir til Samfylkingar og því missti Sturla Böðvarsson þann stól og var kosinn forseti Alþingis. * 8. bekkur Höfðaskóla á Skagaströnd sigraði Evrópu- keppni meðal reyklausra 7. - 8. bekkja. Fengu krakkarnir að launum Danmerkurferð fyrir allan bekkinn. Var þetta í annað sinn sem Höfðaskóli vinnur þessa samkeppni en það gerði hann líka fyrir 6 árum. * Hólaskóli, Háskólinn á Hólum úrskrifaði í fyrsta sinn nemendur eftir að skólinn varð háskóli og að því tilefni vígði Skúli Skúlason, rektor, nýja rektorskápu sem vakti mikla athygli. Var þetta í fyrsta sinn sem skólinn útskrifaði nemendur með BA próf. Brautskráðir voru nemendur með effirfarandir gráður; 28 hestaffæðingar og leiðbeinendur, 15 tamninga- menn, 14 þjálfarar og reið- kennarar, 1 nemandi með diplómagráðu í ferðamálaffæði og 9 nemendur með BA gráðu í ferðamálafræði. * Fíkniefiiahundurinn Freyja, sem starfar hjá Blönduós- lögreglunni, stóð sig vel á árinu og var dugleg að finna eftir ekki síst sem falin voru í bifreiðum sem leið áttu í gegnum Húnavatnssýslurnar. * Gunnar Bragi Sveinson lagðist stutta stund undir feld undir lok maímánaðar og íhugaði að bjóða sig ffam sem varaformaður Framsóknarflokksins. Ekki lá Gunnar Bragi lengi undir feldi og ekkert varð af framboði hans til varaformanns að þessu sinni. Júní * Helga Margrét Þorsteins- dóttir úr USVH varð íslands- meistari í sjöþraut kvenna á Meistaramóti íslands í fjölþrautum frjálsíþrótta. Sigraði Helga Margrét með 5285 stigum og var aðeins 119 stigum frá íslandsmetinu, sem í ljósi þess að Helga Margrét er aðeins 16 ára gömul, ótrúlegur árangur. * Lánasjóður sveitarfélaga ákvað á fúndi sínum að greiða arð til hluthafa sinna á næstu fjórum árum. Ekki hafði verið gert ráð fyrir þessum peningum í fjárhagsáætlunum sveitarfélaga og í Skagafirði tóku rnenn fénu fagnandi og ákváðu að þeim liluta arðgreiðslunnar sem kæmi til greiðslu á þessu ári yrði varið til kaupa á húsnæðinu að Sæmundargötu 7 annars vegar og hins vegar yrði komið upp mötuneytisaðstöðu í Árskóla. * Listasetrið að Bæ á Höfða- strönd opnaði með pompi og prakt í byrjun júní. Listasetrinu er ætlað að hýsa tímabundið listamenn og voru fyrstu gest- irnir væntanlegir á setrið strax í fyrstu viku opnunnar þess. * Annar áfangi Selaseturs íslands á Hvammstanga var opnaður sunnudaginn 3. júní og var hið glæsilega Selasetur vel sótt síðasta sumar og laðaði marga ferðamenn til Hvammstanga. * Atv'innu og ferðamálanefird Skagafjarðar lagði til við sjávarúrvegsráðuneytið að allur byggðakvóti Skagfirðinga færi til Hofsós eða urn 222 tonn. Var úthlutunin þó bundin þeim skilyrðum að löndun og vinnsla fisksins yrði í höndum fyrirtækja með lögheimili í byggðarlaginu Hofsósi. * Lambe)TÍ í Lýtingsstaða- hreppi afhenti í júní hús númer 27, en húsin eru öll byggð á verkstæði fyrirtækisins og síðan flutt á áfangastað í heilu lagi þannig að aðeins á eftir að tengja það við vatn og rafmagn. * Potturinn og pannan opnaði útibú á Blönduósi í kringum þjóðhátíðarhelgina í sumar en að staðnum standa athafnamennirnir Björn Þór Kristjánsson, sem sér um allan daglegan rekstur og Lárus B. Jónsson. Það er skemmst ffá því að segja að staðnum var vel tekið og fúllt út úr dyrum svo til allt sumarið. * Gagnaveita Skagafjarðar fór af stað með framkvæmdir sínar í júnímánuði en Gagnaveitan var stofnum síðla árs 2006. Tilgangur Gagnaveitunnar er að leggja ljósleiðara inn á hvert heimili á Sauðárkróki og taka þátt í uppbyggingu á háhraðatenginum í dreifbýli Skagaljarðar. * Mikil knattsp)Tnuhátíð var haldin í Skagafirði þann 16. júní en þá hélt knattspymudeild félagsins upp á 100 ára afmæli sitt með glæsilegri hátíð í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. * Ungmenni á Norðurlandi vestra náðu góðum árangri

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.