Feykir


Feykir - 08.05.2008, Page 7

Feykir - 08.05.2008, Page 7
18/2008 Feykir ~7 ) J \ Jón Gunnar Einarsson og Guðrún Hjálmtýsdóttir með börnin sín Einar Hjálmtýr 3 ára og Rögnu Katrínu nýskírða (er núna rúmiega 6 mánaða) Jón Gunnar Einarsson slasaðist alvarlega í mótorkrossslysi A batavegi en á langt í land Jón Gunnar Einarsson, ungi maóurinn sem slasaðist alvarlega f mótorkrossslysi er á batavegi en hann hóf endurhæfingu á Grensás fyrr í vikunni. Ekki er Ijóst hversu miklum bata Jón Gunnar mun ná og Ijóst að framundan er löng og ströng endurhæfing. Jón Gunnar og eiginkona hans Guðrún Hjálmtýsdóttir eiga tvö börn, Einar Hjálmtý, 3 ára, og Rögnu Katrínu rúmlega 6 mánaða auk þess sem að í september er von á þriðja barni þeirra. Áður en í ljós kom að von var á þriðja barninu hafði Jón Gunnar ráðgert að fara í nám og sagði hann því lausu plássi sínu á frystitogaranum Arnari. Jón Gunnar er því réttindalaus og íjölskyldan mun tekjulægri en gert haíði verið ráð fyrir. Feykir náði sambandi við móður Jóns Gunnars, Þorbjörgu Rögnu Þórðar- dóttur, sem dvalið hefur hjá honum frá slysinu auk föður hans og bróður. Þá hafa systur hans skipst á að fara suður eins og þær hafa getað. -Við höfum notið velvildar Landsspítalans og fengum íbúð á hans vegum út apríl mánuð, erum þar raunar enn en þurfum að fara ef einhver annar þarf á henni að halda, segir Þorbjörg. -Guðrún hefur búið inni á bróður sínum með börnin en hún þarf nauðsynlega að fá íbúð til þess að geta dvalið hér hjá Jóni Gunnari í sumar en eins og leiguverð er kljúfa þau varla þau útgjöld, bætir hún við. Þorbjörg segir að Jón Gunnar hafi hlotið blæðingu í hægra heilahveli sem valdi því að vinstri hlið líkama hans er öll mun máttminni en sú hægri. Þó hefur hann hreyfigetu í öllum líkamanum og vonast menn til þess að með endurhæfingu komi það allt saman til baka þó svo að í dag sé Jón Gunnar í hjólastól. Andlega hefur Jón Gunnar komið til baka nema hvað minni hans er skert og segir móðir hans að hann muni ekkert sem gerðist fyrir síðustu jól. Læknar segi hins vegar að það sé skiljanlegt og geti og eigi trúlega eftir að koma til baka. En hvað var það sem gerðist? -Það er ekki alveg vitað. Hann var með allan öryggisbúnað í lagi og heldur ekki á mikilli ferð. Hjálmurinn hans er heill en læknarnir segja að hann hafi fengið slink á höfuðið sem hafi orðið til þess að undist hafi upp á heilann og þá hreinlega slokkni á mönnum en hvernig þetta vildi til veit enginn, svarar Þorbjörg. Aðspurð segir hún að Jón Gunnar hafi það eftir atvikum gott en sé auðvitað óþolinmóður og áhyggjufullur yfir því að vita af Guðrúnu, eiginkonu sinni, einni með börnin tvö þetta langt gengin með það þriðja. Þeir sem vilja leggja ungu hjónunum lið geta gert það með því að leggja inn á reilcning: 0160-26-61400 Kt:290483-3799. mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmammmmmmmmmmmm Fyrirtæki vikunnar Þessa vikuna standa yfir innritunardagar í Tónlistarskóla Skagafjarðar fyrir næsta skólaár. Og með tilliti til alls þess gríðarlega tónlistaráhuga sem er ríkjandi alsstaðar í samfélaginu ákvað Feykir að forvitnast um skólann. Skólastjóri Tónlistarskóla Skagafjarðar, Sveinn Sigurbjörnsson, verður fyrir svörum og byrjar að segja frá því að níu ár eru síðan hann tók við stjórn skólans þegar Tónlistarskóli Sauðárkróks og Tónlistarskóli Skagafjarðar sameinuðust undir merkjum hins síðarnefnda. Hann er nú starfandi á fimm stöðum ífirðinum með alls 300 nemendur. Á Sauðárkróki eru 148 nemendur, í Varmahlíð 100 nemendur, á Hofsósi er kennt í Höfðaborg og þar eru 30 nemendur, 11 á Hólum og þar er kennt í grunnskólanum og að endingu eru 11 nemendursem sækja skólann í Fljótunum. Við skólann starfa 13 kennarar. Á hvaða hljóðfæri er vinsælast að læra? -Stærsta deildin er píanódeildin. Það er mjög vinsælt og gott fyrir krakka að hefja tónlistarnámið á píanó eða hljómborð. En einnig er fiðlan hentugt hljóðfæri fyrir byrjendur en í Suzukídeildinni læra börnin að spila eftir eyranu og foreldrar geta fylgst með kennslu og æfa með þeim heima. Fiðludeildin er gríðarlega sterk og öflugt starf sem fer þar fram. Fleiri hljóðfæri sem gott er að byrja á eru t.d. trommur. Trommusettin eru lítil og henta vel fyrir unga krakka og eru geysilega vinsæl. Svo eru blásturshljóðfæri svo sem kornet og althorn sem henta vel fyrir byrjendur. Gítarinn er líka mjög vinsæll. Hvemig er með blokkflautuna gömlu og góðu? -Blokkflautan er meira forskólahljóðfæri. í forskóladeildinni er farið í meiri kynningar á tónlist með söng og einföldum hljóðfærum s.s blokkflautu og ásláttarhljóðfærum. Forskóladeildin er ætluð börnum frá flögurra ára aldri. Hún er reyndar ekki fjölmenn. -Svo erum við með almenna deild. Þar gefst fólki kostur á að koma og læra á hljóðfæri á sínum forsendum, þeirsem ekki hafa grunnnám í tónfræðum úr áfangadeildum. Kennt er í 30 mín. á viku og nemendur þurfa ekki að taka próf nema þeir ætli sér áfram í framhaldsdeild. Ákveði þau hins vegar að halda áfram og taka fyrsta stig, taka þau próf í lok annarinnar. Eru einhverjar hljómsveitir starfandi á vegum tónlistarskólans? -Já, við skólann eru starfandi lúðrasveit, harmonikkusveitir og strengjasveit. Þessar sveitir spila við hátíðleg tækifæri og á tónleikum. Nú í lok Sæluviku hélt strengjasveitin tónleika í félagsheimilinu Héðinsmynni ásamtstrengjasveit frá Reykjanesbæ. Þeir tónleikar heppnuðust mjög vel. En hvernig er með söngdeildina, er einhverra breytinga að vænta þar? -Já við fórum f skipulagsbreytingar í söngdeildinni um áramótin síðustu. Nú verða þær nýjungar helstar í söngdeildinni að við ætlum að vera með námskeið í samsöng lítilla hópa svo og kóra bæði stórra sem smárra. Þarætlum við að bjóða upp á ýmsa leiðbeinendur í söngtækninni. Svo verður í boði metnaðarfullt námskeiðaform sem Helga Rós Indriðadóttir söngkona kemurtil með að stýra, en við vorum með tvö slík námskeið í vetur. Þau tókust virkilega vel. Og svo verður kenndur söngur í einkatímum eins og verið hefur undanfarin ár. Tónlistarskóli Skagafjarðar

x

Feykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.