Feykir


Feykir - 08.05.2008, Síða 11

Feykir - 08.05.2008, Síða 11
18/2008 Feykir 11 (GUÐMUNDUR VALTÝSSON) Vísnaþáttur475 Heilir og sælir lesendur góðir. í þeim djöfuls norðan brunakulda sem ríkt hefur nú að undanförnu, riíjaðist ósjálfrátt upp þessi ágætis vísa eftir Skagfirðinginn snjalla, síðar bónda á Harrastöðum í Miðdölum, Bjarna Gíslason: Þetta hversdagslega líf lamar sálarkraftinn, að hafa hvorki vín né víf að verma á sér kjaftinn. Annar snjall og kunnur í Skagafirði og víðar á síðustu öld, Einar Sigurðsson, sem kenndur var við Reykjarhól, mun hafa ort svo fallega til Kristjáns Gíslasonar kaupmanns á Sauðárkróíd: Margan Kristján gleðurgest góðsemd hans ei dvíni. Mér hann hefur manna best miðlað brennivíni. Ef ég man rétt mun Bakkus hafa einhverju sinni glatt menn með nœrveru sinni í Borgarfirði, eftir nœstu vísu Einars Beinteinssonar að dœma: Vín á könnu og kvœðablað kœti vekurgeði. Ungum mönnum þykirþað þarfleg stundargleði. Fleira geta menn dundað við, sér til dcegrastyttingar og munu ncestu vísur ortar af Teiti Hartmann er hatm sat að tafli við Guðmund lcekni á Eskifirði: Þig hefur ofraun þessi blekkt það verð ég að segja. En skratti varþað lœknislegt að láta manninn deyja. Gvendur lœknargigt í hupp ogglepur elli. Kerlinguna yngdi hann upp í einum hvelli. Varla þarf mikið að kynna hér norðanlands hinn magnaða hagyrðing Hallgrím Jónasson kennara. Eitt sinn mun hann hafa ort svo til stökunnar: Hún er hvorki dul né dýr dálítill vafafengur. Augnabliksins œvintýr eins og bcerður strengur. JMögnuð hringhenda kemur hér næst eftir Hallgrím: Geld égskuld og ber á bug best í þuldum stökum. Meðan kuldinn hjarta oghug herpir duldum tökum. Að lokum þessi eftir hinn ágæta hagyrðing: Þegar hvorki vífné vín vermir lundu slaka. Finnst mér hálfgert hundalíf heila nótt að vaka. Þegar undirritaður situr við gerð þessa þáttar, berast þau tíðindi á okkar ágætu rás I í ríkisútvarpinu, að núverandi fjármálaráðherra í ríkisstjórn íslands njóti stuðnings 8 prósent þjóðarinnar. EkJd skal undra slíka útkomu og rifjast upp nokkuð gömul umræða um slíka pilta sem mig minnir að hafa farið fram haustið 1974. Var þá sami ættleggur þar við völdin. Kona í Hafnarfirði, sem ég man því miður ekki nafn á, mun hafa ort svo, er hún heyrði þáverandi fjármálaráðherra mæla fyrir fjárlögum skömmu fyrir jól og segja að sú mikla hækkun þeirra, sem hefði orðið milli ára, mundi ekki snerta venjulegt fólk. Vegna þessa talsmáta varð eftirfarandi hugleiðing til: Svofrábœr að eðli ogfullkomin í sinni list eru fjármálaráðherrans verk með íslenskri þjóð. Að kraftaverk þau sem kennd hafa verið við Krist kallast nú ei nema tœplega miðlungigóð. Síðan kom Mathiesen fjármálaráðherra í sjónvarpið og boðaði slæma kreppu. Mun þá konan i Hafnarfirði hafa ort svo: Ráðvillt er kirkjan og rislág vor nýárssól og rausið prestanna drukknar í kaupsýslu-glymnum. Þá stígur Mathiesen ráðherra uppá stól ogstartar kreppu oggengishruni á himnum. Gaman að rifja næst upp eina laglega eftir Heiðrek Guðmundsson frá Sandi: Stríðsins ógnum aldrei linnir eða slokknar hatursbál. Nema sjálfurfyrst þúfinnir frið íþinni eigin sál. Þegar loks varð staðreynd að þaggaðist niður í kanaútvarpi, orti Magnús Stefánsson á Fáskrúðsfirði svo: Komast nú málin loks í lag lausninni þjóðin fagnar. Lofa skal þennan dýrðardag dátanna útvarp þagnar Næst rifjast upp ágæt limra, sem mig minnir að sé eftir Hallmund Kristinsson: Skotinn í Guðrúnu skapríku var Skafti sem þrœlaði ífabriku. Hann reyni hana við að riddara sið. Þau rœkta nú tómat ogpapriku. Gott að enda með þessari ágætu vísu eftir Þingeyinginn Baldur Baldvinsson: Vísa sem að verður til um vorið eða fossinn þarf að veita öllum yl eins ogfyrsti kossinn. Verið þar með scel að sinni. Guðmundur Valtýsson Eiríksstöðum 541 Blönduósi Sími 452 7154 ( ÚR ELDHÚSl LESENDA) Bankið rifin með hendinni og skerið fáeinar raufar í fitukantinn svo að þær verpist ekki við steikingu. Veltið þeim upp úr hveiti, blönduðu salti og pipar og steikið í 6-8 mín. á hvorri hlið. Færið rifin yfir í eldfast mót, setjið vatn á pönnuna til að búa til soð úr safanum og hellið í mótið. Skerið sveppina í sneiðar og steikið í 1-2 msk. af smjöri í ca. 1 mín við háan hita. Lækkið hitann, stráið 1 msk. af hveiti og hrærið sítrónusafa eða hvítvíni og 1 dl. af rjóma saman við. Látið þetta sjóða létt í 2-3 min. Hrærið saman eggjarauðurnar og restina af rjómanum og blandið í sveppajafninginn, sem nú má ekki sjóða lengur. Bragðbætið með salti og pipar. Hellið jafningnum yfir rifin og stráið þunnu ostlagi yfir. Bakist í 10 mín. við ca. 250C° fer eftir ofnum. Stráið fínskorinni steinselju yfir og berið fram með soðnum kartöflum og salati. Það er líka rosalega gott og gera kartöflugratín. EFTIRRÉTTIR Marengsterta (1 stór botn eða 2 litlir) • 4 eggjahvítur • 200gr. flórsykur • 100gr. súkkulaði • 1 bolli döðiur Stífþeytið eggjahvítur og flórsykur. Brytjið súkkulaði og döðlur í frekar smáa bita og setjið út í marengsinn. Bakist við 150° í ca. 30 mín. Fer eftir ofnum. • 5 kókosbollur • 5 borgarar • 13 konfekt rommflöskur (eða 6fl. + rommessen) • Ca. 34 rjómi (Lítil terta) 3 kókosbollur, 3 borgarar, 7-8 flöskur eða 3 fl.+rommesses + rjómi. Rjóminn er stífþeyttur og út í hann eru allt gúmmúlaðið kramið og hrært varlega saman. Svo er þessu smurt á botnana og látið standa í helst nokkra klukkutíma til að bleyta aðeins upp í marengsinum. Þetta er algert sælgæti svo það tekur því ekki að búa til litlu útgáfuna því þá er hún strax búinn. Takkfyrir okkur og verði ykkur að góðu! Magnea Jóna og Halldór Bjartmar kokka Svínarif að hætti svínabænda Það eru svínabændurnir Magnea Jóna Pálmadóttir og Halldór Bjartmar Halldórsson sem bjóða lesendum Feykis upp á uppskriftir vikunnar og að sjálfsögðu elda þau aðalréttinn úr íslensku svíni. Þau skora á foreldra Magneu, hjónin Pálma og Ásu í Garðakoti og munu uppskriftir þeirra birtast að hálfum mánuði liðnum. AÐALRÉTTUR Hrísgrjónaréttur • 2 bollar soðin hrísgrjón • 200 gr. Rcekjur • 1 grcen paprika • 1 rauð paprika • ‘A dós Ananas • 1 msk. Provencale kryddið frá KNORR • 2-4 tsk. karrí • Ristað brauð Sjóðið hrísgrjónin og setjið karríið saman við áður en þau kólna svo þau taki í sig litinn. Stundum kaupi ég líka karríhrísgrjón og sýð þau og bæti út í venjulegu hrísgrjónin, það er rosalega gott líka. Saxið paprikurnar í litla bita og setjið út í hrísgrjónin ásamt ananasnum og rækjunum. Kryddið síðan eftir smekk, oft er ekki nóg 1 msk. af provencale-kryddinu, bara smakka til. Sumum þykir líka gott að setja svolítið hvítlauksduft. Berið fram með sinnepsósu og ristuðu brauði. • 4 msk. scett sinnep • 3 msk. hunang • 150 gr. majónes, eða lOOgr. sýrðurrjómi • 50gr. majónes Ofnbökuð svínarif • 4 þykk rif • Hveiti, salt, pipar og smjör • 250-500gr. sveppir (líkagott að hafa brokkotí) • 2 msk. sítrónusafi eða hvítvín • 1 dl. kjötsoð • 2 dl. rjómi • i-2 eggjarauður • 3 msk. rifinn ostur • Steinselja

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.