Feykir


Feykir - 14.08.2008, Blaðsíða 7

Feykir - 14.08.2008, Blaðsíða 7
30/2008 Feykir 7 Stefán Skarp og Haraldur Hjálmarsson við Búðir. Snæfellsjökull í baksýn. Glæsilegt reiðfæri og frábært útsýni. venjulegum opnum trékloss- um. Þegar ég opinberaði undrun mína útskýrði hann íyrir mér að þetta væri það besta. Ef það kæmi fyrir að hann dytti af baki þá festist hann ekki í ístaðinu og ef hann blotnaði í fæturna þá væri svo auðvelt að hella úr klossunum og þar sem þeir væru opnir þá væru þeir fljótir að þorna. Mér fannst þetta vera mjög rökrétt. Þegar heim var komið tóku menn fram allar birgðir sem til voru af sólarvörn og báru á sig, fóru í sólbað og skelltu sér í heitu pottana sem voru við húsin. Aðrir fóru í skoðunarferðir um nesið og heimsóttu Búðir, Arnarstapa, Hellnar og fleiri staði. Einhverjir fóru í sundlaugina á Lýsuhóli sem er sérstök að þvi leyti að vatnið í henni er ölkelduvatn og enginn klór blandaður saman við. Er vatnið þess vegna slímugt og ólystugt fyrir suma að synda í en án efa heilnæmt. Um kvöldið var matast og þar næst gítarinn tekinn fram og sungið fram á nótt. Knapar með klofin andlit Morguninn eftir var sama dagskrá, morgunmatur kl. 7.30 og í hnakkinn kl. 9. Nú skyldu fjörurnar riðnar austur effir og endað á Ytra-Skógarnesi. Veðurspáin hljóðaði upp á enn betra veður þann daginn svo allar óþarfa flíkur voru skyldar eftir heima. Frá Hofi var riðið meðfram þjóðveginum og niður heim- reiðina að Tröðum og þar niður í fjöru. Þarna voru fjörurnar enn betri en hinar fyrri. Bæði voru þær meiri og harðari undir fót. Hrossin geisluðu af gleði og vilja og sjóböðin urðu tíðari eftir því sem á ferðina leið. Skeiðsprettir voru teknir á hörðum sand- inum og andlit knapanna var klofið í tvennt af brosi sem náði eyrna á milli. Við Stakkhamra er búið að koma upp góðri rétt með öflugum staurum og og þykkum stálvír á milli í stað grindverks sem væntanlega minkarviðhaldréttarinnar. Þar var staldrað við, hrossin hvíld og nestið tekið fram. Þaðan var síðasti spölurinn farinn yfir fjörur sem náðu einhverja kílómetra frá landi að sjó. Þyngdust þær nokkuð þar sem sandurinn varð gljúpur og seinfarnari.EníYtra-Skógarnes náði hópurinn áður en flæddi að og engin óhöpp komu upp sem vert er að segja frá. Þaðan var fólkinu keyrt aftur í Hof en hrossin urðu eftir og biðu þess að verða sótt daginn eftir. Sami háttur var hafður á og fyrri daginn þ.e. fólk baðaði sig ýmist í sólinni eða heitu pottunum. Þríréttaður kvöld- matur snæddur, söngolían tekin upp ásamt gítarnum og tekið til við að spila og syngja og enn kröftugra en kvöldið áður. Morguninn eftir fengu menn sér morgunmat áður en lagt var í heimferð og allir himinlifandi hvernig til tókst með „stóru ferðina“ þetta árið. ÚR ELDHÚSI LESENDA) Sólborg og Einar á Sköróugili Sprækur foli á spjóti Að þessu sinni eru það Sólborg Pálsdóttir og Einar Einarsson á Skörðugili sem bjóða okkur upp á góm- sætt folaldakjöt og eftirrétt sem hæfir árstíðinni f uppskriftum vikunnar. Sólborg og Einar skora á Jón Gíslason og Eline Schrijver á Hofi í Vatnsdal að koma með næstu uppskrift og láta það fylgja með að þau séu höfðingjar heim að sækja. Sprœkurfoli á spjóti með hnetusósu oggulum hrísgrjónum FYRIR 4 MATGRANNA EÐA 3 SVANGA Folald á spjóti 800 gr. gottfolaldakjöt (lundir eða file) soyasósa hvítlaukur Skerið kjötið í stóra teninga og leggið þá í skál. Hellið soyasósunni yfir svo rétt fljóti yfir kjötið. Hvítlauks- aðdáendur ættu að skutla 2-3 niðursöxuðum hvítlauks- rifjum í skálina. Öllu blandað saman og látið liggja í sósunni í a.m.k. 4 tíma. Að því loknu eru teningarnir þræddir upp á grillteina með uppáhalds grænmeti hvers og eins. Paprika, laukur, sveppir, blaðlaukur og kúrbítur henta t.d. mjög vel á teininn. Skellt á grillið ef vindstigin eru undir 10 m á sek. og hitastigið er yfir frostmarki, annars bara undir grillið í ofninum. Gott að pensla með marineringunni við og við á steikingartíma. Hnetusósa Skvetta af matarolíu 1 laukur, saxaður í litla bita 3 hvítlauksrif, söxuð smátt 1 tsk. rifin engiferrót 1 ‘A dl. vatn ‘A dl. soyasósa 4 msk. gróft hnetusmjör 2 msk. púðursykur Salt, pipar og sítrónusafi eftirsmekk Skellið olíu í pott ásamt lauki, hvítlauki og engiferrót. Steikið þar til laukurinn er farinn að mýkjast. Þá er vatni, soyasósu, hnetusmjöri og púðursykri bætt út í. Látið malla í smá stund. Bragðbætið með sítrónusafa, salti og pipar. Þynna má sósuna með vatni ef þurfa þykir. Gulu hrísgrjónin 1 laukur, saxaður 2 hvítlauksrif, söxuð 1 rauð paprika söxuð 3 dl. hrísgrjón 7-10 dl. vatn 1 kjúklinga- eða grœnmetisteningur 1 tsk. túrmerik 2 tsk. karrý Salt ogpipar eftir smekk Steinselja niðursöxuð Laukur, hvítlaukur og paprika er steikt á pönnu þar til laukurinn er orðinn mjúkur. Takið grænmetið af pönnunni og geymið. Steikið því næst hrísgrjónin í svolitla stund og kryddið. Bætið steikta grænmetinu, vatninu og grænmetisteningnum út í. Sjóðið þar til hrísgrjónin eru tilbúin. Gæti þurft að bæta við vatni á suðutímanum. Saxaðri steinselju stráð yfir áður en rétturinn er borinn fram. Þessa rétti er gott að bera fram með fersku salati og ofnsteiktum kartöflum. Bláber ogjarðarber með sérrýrjóma Nú er rétti tíminn til að hafa eftirréttina einfalda, t.d. ný- tínd biáber með vænni slettu af rjóma. Til tilbreytingar má þó bæta við gróft söxuðum jarðaberjum og hafa með því himneskan sérrýrjóma. Serrýrjómi 200-250 gr. makkarónu- kökur Vi 1. rjómi 1 dl. sérrý Makkarónurnar settar í skál og sérrýinu hellt yfir. Þegar sérrýið hefur mýkt upp makkarónurnar eru þær stappaðar. Rjóminn þeyttur og blandaður saman við makkarónu-sérrý-stöppuna.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.