Feykir - 14.08.2008, Síða 9
30/2008 Feykir 9
Mikið verður um að vera á
Norðurlandi vestra um helgina
SVEITASÆLA
Eintóm sœla
á Sveitasœlu
Landbúnaðarsýningin og
bændahátíðin Sveitasæla
2008 verður sett á
Svaðastöðum klukkan 18:00
á föstudag en sýningin sjálf
opnar klukkan 16:00. Þema
sýningarinnar í ár eru hestar
og hestamennska.
-Undirbúningur heför
gengið vel enda hefur
sýningin þegar fest sig í sessi
og sýnendur vita að hverju
þau ganga hjá okkur, segir
þau Rósa Vésteinsdóttir og
Eyþór Jónasson fram-
kvæmdastjórar Sveitasælu.
Á sýningunni verður
eitthvað fýrir alla því auk
kynningar á landbúnaðar-
vörum og afurðum verður
lífleg skemmtidagskrá alla
helgina. -Við verðum með
hæflleikakeppni gröfu-
mannsins, við munum leita
að fjölhæfasta og sterkasta
bónda Norðurlands, Sigga
Beinteins kemur með
Söngvaborg, fyrirlestrar og
ff æðslufundir um landbúnað,
kappreiðar verða á laugar-
dagskvöldinu og verða þær
haldnar á nýjum og glæsi-
legum velli Léttfeta, auk þess
sem líf og fjör verður á
veitingastaðnum og rúsínan í
pylsuendanum verður síðan
þegar við í fyrsta sinn á
sýningunni heilgrillum naut
ofan í gesti og gangandi en
það er landssamband kúa-
bænda sem býður í grill.
Er þessi sýning ekki bara
fyrir bændur? -Nei, nei, þó
aðbændurséumarkhópurinn
þá hafa allir gaman af því að
koma og sjá sýninguna.
Sýningin í ár er með breyttu
sniði frá því sem áður var og
verður meira spilað inn á
skemmtanagildi hátíðar-
innar en áður hefur verið gert
meðal annars sem kvöld-
vökum og lifandi tónlist.
Hvað kostar svo inn? -Það
kostar 1000 krónur fýrir 13
ára og eldri og fá menn þá
armband sem gildir afla
helgina.
HÓLAHÁTÍÐ
Árleg Hólahótíð fer
fram um helgina
Hólahátíðin hefst á föstudagskvöld með
málstofu í Auðunarstofu undir yfirskriftinni
-Útsaumur og aðrir textílar í kirkjulist. Þar
munu flytja erindi frú Elsa E. Guðjónsson
textíl- og búningafræðingur, Sigríður
Jóhannsdóttir veflistakona og Leifur Breiðfjörð
myndlistarmaður. Við þetta tækifæri verður
sýnd ný eftirgerð af kantarakápu Jóns Arasonar
biskups. Kápan, sem gerð var af Ólínu
Bragadóttur Weightman, verður tekin í notkun
í guðsþjónustu á sunnudaginn og afhent
Hóladómldrkju að gjöf. Það eru
vígslubiskupshjónin Margét Sigtryggsdóttir og
Jón Aðalsteinn Baldvinsson sem gefa hana til
minningar um dóttur sína Sigrúnu sem lést
árið 2004.
Á laugardeginum verða Pílagrímagöngur
heim að Hólum annars vegar frá Svarfaðardal
um Heljardalsheiði og hins vegar frá Flugumýri
um Hvammsdal. Eftir hádegi kl. 13 verður
helgiganga í Gvendarskál þar sem vigslu-
biskup, Jón Aðalsteinn Baldvinsson, syngur
stutta messu. Fornleifafræðingar munu vera á
staðnum til að ffæða þá sem vflja um
Hólarannsóknina.
Um kvöldið verður grillað að hætti
Hólamanna. Á sunnudeginum verður meðal
annars hátíðarmessa í Hóladómkirkju kl. 14
þar sem Dr. Einar Sigurbjörnsson prédikar. Jón
Aðalsteinn Baldvinsson vígslubiskup þjónar
fýrir altari ásamt sr. Sigríði Gunnarsdóttur. Að
loleum verður síðan hátíðarsamkoma f
dómkirkjunni kl. 16:30 þar sem Páll Skúlason
mun flytja hátíðarræðu.
KÁNTRÝDAGAR
Kúrekar og
skreyttar hjólbörur
Kántrýdagar verða haldnir á
Skagaströnd um helgina og
er þetta í þriðja sinn sem
hátíðin er haldin með þessu
sniði og er óhætt að fullyrða
að dagskráin er sérlega
glæsileg og inniheldur
eitthvað fyrir alla, krakka,
konur og kalla.
Markmiðið með hátíðinni
er að íbúar skemmti sér með
gestum sínum og þó að allir
séu á hátíðina velkomnir er
markmiðið í sjálfu sér ekki að
fýlla bæinn. Undirbúningur
daganna hefúr farið ffarn um
allan bæ og ekki síst inni á
heimflum þar sem leynifúndir
hafa verið haldnir og eru íbúar
á þeim fundum að undirbúa
skreytingar gatna sinna sem
mikill metnaður er lagður í.
-Á fimmtudag verður
tekið forskot á sæluna með
buskaranámskeiði en sjálf
hátíðin hefst klukkan 18 á
föstudag með því að börnin
bjóða íbúum í heimsókn á
kofavelli þar sem þau hafa af
myndaskap reist lítinn bæ.
Brúðubfllinn verður á
staðnum og börnin bjóða upp
á léttar veitingar, segir Magnús
Jónsson, sveitarstjóri. -Því
næst höldum við í hátíðar-
tjaldið þar sem öllum verður
boðið upp á Kántrýsúpu auk
þess sem strákarnir í Janusi
undir stjórn Guðmundar
Jónssonar spfla létta tónlist.
*
Neðar í bænum eða í
Bjarmanesi fer síðan Sigríður
Klingenberg með gamanmál,
bætir Magnús við.
Á laugardag verður
gengiðáfjöfl,dorg\'eiðikeppni
verður haldin, listsýningar
verða opnaðar á tveimur
stöðum í bænum að
ógleymdri barna-dagskrá f
tjaldinu þar sem Dóri Gylfa
og Sigga Beinteins verða við
stjórnvölinn. -Þar á eftir
tekur unga fólkið við en
strálcarnir í Fúsalegri helgi
sjá um þá dagskrá þar sem
þeir sj álfir spfla auk Ingunnar
Kristjánsdóttur og Guðlaugs
Ómars. Þá mun Stranda-
maðurinn Gunnsi Jó vera í
Bjarmanesi og í spákonu-
tjaldinu verður hægt að láta
skyggnast inn í framtíðina,
þylur Magnús sveitarstjóri
upp. -Síðan kemur að
grillveislunni þar sem hver og
einn kemur með sitt á grfllið
og verða í þeirri veislu veitt
verðlaun tfl handa þeim sem
koma með amboð sitt á
flottasta búnaðinum. Þarna
koma allir með vel skreyttar
hjólbörur eða hjól undir sitt
hafúrtask og þeir allra
hörðustu taka fram kristalinn í
tflefni dagsins. Þarna verða
buskarar komnir á stjá og eftir
matinn verður skemmti-
dagskrá þar sem Ingó og
Veðurguðirnir hita upp fýrir
dansleik næturinnar, KK mun
skemmta ásamt Leogfllespie
og Þorleifi, Sigga Beinteins
verður með innlegg að
ógleymdri endurkomu hjórn-
sveitarinnar JóJó frá Skaga-
strönd, bætir Magnús við.
Lítið verður um hátíðarhöld
á sunnudeginum þó margir
vilji meina að hápunktur
hátíðarinnar verði í tjaldinu á
sunnudagsmorgun þar sem
haldin verður Gospelmessa
undir stjórn Óskars
Einarssonar og Séra Fjölnis
Ásbjörnssonar sóknarprests.
-Kirkjukórinn okkar er orðin
mjög góður Gospelkór og
messan löngu orðin ómissandi
þáttur Kántrýdaga, segir
Magnús að lokum.