Feykir - 17.09.2009, Síða 4
4 Feykir 34/2009
Skagastrond
1100 tonn af
brotajárni fjarlægð
A heimasíðu Skagastrandar
segir frá því að f vikunni
flutti Hringrás um 1100
tonn af brotajárni um borð í
flutningaskip sem þá lá í
Skagastrandarhöfn.
Er þetta einungis hluti af
því sem safnast hefur saman á
undanförnum misserum og
búast má við því að járnið
gangi nú í endurnýjaða lífdaga
og birtist hugsanlega aftur á
íslandi sem ísskápur, steypu-
styrktarjárn eða eitthvað
annað. Annar og stærri haugur
bíður útflutnings en það eru
bílflök sem hafa verið pressuð
saman.
Ástæðan fyrir því að þau
fara ekki með þessu skipi er að
vinnsluaðferðirnar eru ólíkar.
Bílflökin eru tætt í sundur og
síðan flokkuð og brædd en
járnið fer beint í bræðslu. Að
sögn forráðamanna Hringrásar
er ekki hægt að segja til um
hvenær bílflökin fara en
væntanlega er skammt í það.
Menning
Nemendakór Árskóla
endurvakinn
Stallsysturnar íris
Baldvinsdóttir og Jóhanna
Man'n Óskarsdóttir munu á
næstunni endurvekja
nemendakór Árskóla en
kórinn mun starfa í
samstarfi við Barnakór
Tónlistaskóla SkagaQarðar
sem stofnaður var fyrir tæpu
ári.
Kórinn verður í boði fyrir
alla nemendur Árskóla og
Tónlistaskóla Skagaíjarðar en ef
góð þátttaka verður mun
kórnum verða skipt upp í yngri
og eldri kór. -Auðvitað verða
jólalögin æíð upp þegar þar að
kemur en annars verður þetta
bara allt í bland. Bæði lög sem
þau þekkja og eru vinsæl í dag
og eins þessi gömlu góðu sem
við þekkjum öll, segja þær
Jóhanna og íris.
Verður inntökupróf í kórinn?
- Nei, ekki til þess að byrja með
alla vega. Við erum að fara að
vinna í því að koma þessari hefð
af stað að hér verði kór. Svo það
verði einhvern til þess að syngja
yfir okkur Jóhönnu þegar við
deyjum, segir fris og þær hlæja
báðar.
-Þetta er að verða svolítið
vandamál með endurnýjun
söngfólks í kóra í Skagafirði. Því
þegar ekki er barnakór verður
ekki unglingakór, ekld kór í
fjölbrautaskóla og í framhaldinu
skilar unga fólkið sér síður í
kóra á fúllorðinsaldri. Skag-
firðingar eru alls staðar þekktir
fyrir söng og gleði. f Skagafirði
hefur verið mikið hefð fyrir
söng og þetta er okkar framlag
til þess að halda í gamlar hefðir,
segir Jóhanna Marín.
Hvar verður hægt að skrá sig í
kórinn? -Það verður hægt að
skrá sig hjá ritara í Árskóla,
Jóhönnu Marín og Sveini í
Tónlistaskólanum.
Gagnaveita Skagafjarðar
Hofsós í betra samband
Tæknimenn frá Tengli ehf. á
Sauðárkróki unnu við það í
haustblfðunni að setja upp
sendi og móttökudisk fýrir
örbylgjusamband við Hofsós.
Reiknað er með því að geta
flutt 200 Mb samband
þessa leið og þar með
komast viðskiptavinir
Gagnaveitunnar á Hofsósi í
öruggt og gott samband við
umheiminn.
íbúar í Hlíðum eru orðnir
ansi langeygir eftir því að ljós-
leiðaragengið haldi innreið
sína í hverfið. Til stóð að byrja
að draga í rörin í vor, en það
hefur reynst erfiðara en
upphaflega stóð til að fjár-
magna svo umfangsmikið
verkefni. Stjórnfélagsinsleitar
allra leiða að leysa það og er
von til að það gangi eftir áður
en að það frystir aftur í haust.
Lagnaefni fyrir Akrahrepp
er komið til landsins og er
væntanlegt norður næstu
daga. Starfsmenn Tengils á
Sauðárkróld eru að gera sig
klára fyrir ídráttinn og ef að
allt gengur vel ættu
Blöndhlíðingar allir að hafa
aðgang að ljósleiðara á heimili
sínu fyrir jól.
Sauðárkrókur
Sparisjóður
í samstarf
við NFNV
Sparisjóður Skagafjarðar
og Nemendafélag
Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra
skrifuðu í gær undir
samstarfssamning sín á
milll.
Sparisjóðurinn verður
bakhjarl nemendafélagsins í
störfum þess í vetur auk þess
sem nemendum sem hafa
sín bankaviðskipti í spari-
sjóðnummun standaýmis-
legt spennandi til boða.
Verður efni samningsins
kynnt nemendum fljótlega.
Þau Karl Jónsson trygginga-
og markaðsfulltrúi Spari-
sjóðs Skagafjarðar og Eva
Pandóra Baldursdóttir for-
maður nemendafélagsins,
skrifuðu undir samninginn
á Ólafshúsi í vikunni í kaffi-
samsæti sem sparisjóðurinn
bauð stjórn nemenda-
félagsins til.
Skotta
kvikmyndafjelag
Kraftur í
Kringlubíó
Skotta kvikmyndafjélag
efur skrifað undir
samning við Sambfóin
um sýningarrétt á
heimildarmyndinni
Kraftur. Kraftur verður
sýnd í Kringlubíói og er
stefnt á fyrstu sýningu
þann 30. september
næst komandi.
Kraftur var tekin á
árinu 2007 og fjallar um
Þórarinn Eymundsson og
keppnishest hans Kraft frá
Bringu sem árið 2007 urðu
tvöfaldir heimsmeistarar
í hestaíþróttum. Myndin
hefúr nú þegar verið sýnd á
kvikmyndahátíðinni í Gimli
í Kanada þar sem henni var
gríðarlega vel tekið. -Þetta
er mjög mikil viðurkenning
fyrir oJckur sem stöndum
að baki myndinni og hvetur
okkur til dáða. Það eru
gerðar mjög miklar kröfur
um gæði og afþreyingargildi
til þess að komast inn í
digital bíó. Myndin er tekin
í fúllri háskerpu og það er
því frábært að fá tældfæri til
þess að sýna hana við bestu
mögulegu aðstæður, segir
Árni Gunnarsson.
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR
Áheitahlaup til styrktar Þuríði Hörpu
Króksbrautarhlaup
um helgina
Glaðbeittir skokkarar í Króksbrautarhlaupi haustið 2006.
Laugardaginn 19. sept. n.k.
ætlar skokkhópur Árna Stef
að halda hið árlega
Króksbrautarhlaup en nú
með breyttu sniði. Þetta
verður áheitahlaup til
styrktar Þuriði Hörpu þó
með þeim formerkjum að
fólk getur Ifka gengið eða
hjólað vegalengdirnar.
Nokkur fyrirtæki í bænum
ætla að heita á þá sem taka þátt
og borga fyrir heildar
kílómetrafjölda sem þeir leggja
að baki þannig að til mikils er
að vinna.
Árni Stefánsson íþrótta-
kennari leggur á það áherslu að
hlaupið er öllum opið sem vilja
leggja málefninu lið og þurfa
ekki að tengjast skoldchópnum
á nokkurn hátt. -Það myndi
létta mér undirbúningsvinnuna
ef fólk sem ætlar að taka þátt
hefði samband við mig í
vikunni, segir Árni og vill hvetja
sem flesta til að leggj a málefninu
lið. -Fólk er parað saman miðað
við hlaup- eða gönguhraða en
hlaupið byggist á því, að hvaðan
sem þú hleypur, þá er komið í
mark við sundlaugina milli
klukkan 12.40 og 13.00. svo
býður sveitarfélagið ókeypis í
sund á eftir.
-Fólk getur komið sér sjálft á
þann stað sem það ætlar að
hlaupa ffá, á leiðinni Sauðár-
krókur - Varmahlíð, segir Árni
en einnig verður rúta á ferðinni
sem sleppir fólki út á þeirra
upphafshlaupastað.
Er hægt fyrir almenning að
taka þátt í áheitum? -Já, það er
hægt. Fólk getur lagt pening í
púkk fýrir hlaup ef það vill t.d.
500 eða 1000 krónur sem dæmi
en ég ítreka það að það kostar
ekkert að taka þátt í hlaupinu,
segir Árni.
Árni vill brýna fýrir öllum
að fara eftir umferðarreglum,
hlaupa á móti umferð í beinni
röð og að ökumenn sýni aðgát.
Árni vill ítreka að þetta er
ekki bara hlaup heldur er ganga
og hjólreiðar fúllgild líka þar
sem verið er að höfða til
almennrar útivistar.
Hægt er að hafa samband
við Árna í síma 864 3959.
Síðasta umferðin í 2. deildinni á laugardaginn
Allir á völlinn!
Það verður allt undir hjá
Tindastólsmönnum þegar
þeir fá nágrannana frá
Blönduósi í heimsókn í
sfðustu umferðinni í 2. deild
en leikið verður á Króknum
kl. 14:00.
Tindastólsmenn náðu loks
sigri í síðustu umferð þegar
þeir lögðu Magna á Grenivík
1-2. Bjarki Árnason og
Kristmar Björnsson gerðu
mörk Stólanna en sigurinn var
sanngjarn. Þar með skutust
Stólarnir upp úr fallsæti en það
er þó ljóst að til að tryggja sætið
í deildinni dugar ekkert annað
en sigur gegn Hvöt nema
önnur úrslit verði hagstæð.
Hvöt gerði jafntefli í síðasta
heimaleik sínum gegn hinu
óútreiknanlega liði KS/Leifturs.
Gestirnir leiddu í hálfleik 1 -2 og
komust í 1-3 snemma i fýrri
hálfleik. Blönduósingar gáfúst
ekki upp og náðu að skora tvö
mörk á tveggja mínútna kafla
seint í leiknum. Orri Rúnars-
son, Muamer Sadikovic og
Halldór Halldórsson gerðu
mörk heimamanna í leiknum.
Þá er bara lokaleikurinn eftir
og eru stuðningsmenn hvattir
til að fjölmenna á völlinn!