Feykir - 17.09.2009, Síða 10
lO Feykir 34/2009
Nemendur Árskóla fengu í síðustu viku góöa gesti
Comenius verkefnið
í Árskóla
Nemendur á unglingastigi Árskóla og kennarar þeirra fenguð
góða heimsókn í síðustu viku en þá komu í heimsókn 59
nemendur og 11 starfsmenn frá þremur löndum í tengslum
við Comeniusverkefni sem Árskóli á hlut að. Gerðu nemend-
urnir ýmislegt skemmtilegt á meðan á dvöl þeirra stóð. Fóru í
ratleiki, heimsóttu skólastofur og héldu stóra skemmtun í
íþróttahúsinu þar sem sýndir voru dansar og leikir frá
heimalöndum nemenda. Feykir spurði Óskar Björnsson,
skólastjóra Árskóla út í verkefnið auk þess sem myndavélin
var óspart munduð á meðan á heimsókninni stóð.
Að sögn Óskars hefúr
samstarfiðviðBalwearieskólann
í Skotlandi staðið í 11 ár, Seaton
Burn í Englandi í 4 ár og við
Höjelseskólann í Köge í
Danmörku í 2 ár. Skólastjóri
Höjelseskólans var hins vegar í
Hastrupskóla þegar Árskóli átti
í nemendaskiptum við Hastrup
í 10 ár og þessi nemendaskipti
hafa gert skólaferðalag 10.
bekkinga mögulegt þrátt fyrir
aukinn kostnað.
-Samstarfið er einnig
starfsmannamiðað. Sem dæmi
má nefna að skoski skólinn
hefúr aðstoðað okkur í Árskóla
við sjálfsmat skólans. Þess má
geta að 1750 nemendur eru í
Balwearie og hefur skólinn
fengið ýmsar viðurkenningar
fyrir farsælt skólastarf. Gordon
Mackenzie skólastj óri Belwearie
var að koma hingað í Árskóla í
fjórða sinn og Karen Lönstrom
skólastjóri Höjelseskóla í þriðja
sinn, útskýrir Óskar sem var
himinsæU með vel heppnaða
heimsókn.
En hvaða þýðingu skildi
samstarf sem þetta hafa fyrir
skólana fjóra? -Allir skólar
hafa gott af þvi að kynnast
öðrum skólum. Við höfúm lært
margthveraföðrum.Alþjóðlegt
samstarf eykur viðsýni og
þekkingu nemenda og fag-
mennsku starfsfólks.
Alheimskreppan hefur ekki
haft áhrif á samstarfið?
-Þó það hljómi öfugsnúið þá
hefúr kreppan að nokkru marki
hjálpað, þvi Evrópustyrkur
Árskóla er greiddur í evrum og
því mun hærri í krónum en við
áætluðum. Einnig fengu
erlendu skólarnir mun meira
fyrir peninginn sinn hér á
landi.
Verkefnið er kostað af
Evrópusambandinu með styrk í
flokki sem kenndur er við
Comenius og snýr að nem-
endaskiptum. En mennta-
áætlun Evrópusambandsins,
The Lifelong Learning
Programme, tókgildi 1. janúar
2007 og stendur til 2013.
Markmið menntaáætlunar-
innar er að stuðla að þróun
öflugs þekkingarsamfélags í
Evrópu. Sérstök áhersla er lögð
á samstarf og samnýtingu
reynslu og þekkingar um
menntun og þjálfun innan
Evrópu.
Óskar segir að verkefnið sé
auðvitað fyrst og fremst fyrir
nemendur sem með sam-
skiptum við nemendur annarra
landa kynnist annarri menn-
ingu um leið og þau æfi sig í
tungumálum. Verði víðsýnni
og umburðarlyndari gagnvart
breytileikanum.
-Mörg eignast vini sem þau
halda sambandi við árum
saman. Það má segja að þessi
samskipti opni að vissu marki
gluggann að alþjóðasamfél-
aginu. Þetta er einnig mikil til-
breyting í skólalífinu og hefúr
aukið ánægju og stolt okkar
nemenda af skólanum sínum
og umhverfinu okkar, segir
Óskar að lokum.