Feykir - 05.11.2009, Blaðsíða 4
4 Feykir 41/2009
Sauðárkrókur
Kampselur í heimsókn
Kampselurinn sem heimsótti Krókinn.
Kampselskópur lá makinda-
lega í sólinni við smábátar-
ampinn í Sauðárkrókshöfn
sl. mánudag og lét fbrvitna
bæjarbúa ekki raska ró sinni
þó þeir væru að mynda hann
og skoða í návfgi.
Samkvæmt Wikipedia
alfræðiritinu er kampselur
sjaldgæfur flækingur við
strendur Islands og er oftast
einn á ferð. Yfirleitt eru það
ung og ókynþroska dýr sem
hingað koma og er hann
algengastur fyrir norðan og
austan land að vetrarlagi.
Skagafjörður
Ingólfur Sveinsson bóndi á
Lágmúla segir þó að hann
þekki það vel að kampselur
komi að ströndum landsins en
hann sé algengari á vorin eða
seinni part vetrar. Kampselur
eða granselur eins og hann er
líka kallaður hafi verið veiddur
hér áður fýrr og sérstaklega
eftirsóttur fyrir þá sem söltuðu
spik en það var allt að þriggja
tommu þykkt og var þá til
helminga kjöt og spik. Ingólfur
sagðist oft hafa borðað kjöt af
kampsel og þykir herra-
mannsmatur.
Vinningsliðið í Stíl
Föstudagskvöldið 23. okt.
var haldin undankeppni Sb'ls
hjá Félagsmiðstöðinni Friði á
Sauðárkróki. Alls tóku 6 lið
þátt að þessu sinni.
Þrjú liðanna komu frá
Sauðárkróki, tvö frá Varmahlíð
og eitt frá Hofsósi. Öll liðin
komumeð frábærarhugmyndir
og var keppnin virkilega hörð
þetta árið.
Vinningsliðið að þessu sinni er
skipað þeim Vigdísi Sveins-
dóttur, Söndru Sif Eiðsdóttur,
Önnu Lilju Sigurðardóttur og
Ingu Margréti Jónsdóttur en
þessar ungu og efnilegu stelpur
munu halda í Vetrargarðinn í
Smáralindinni og taka þátt í Stfl
2009 þann 21. nóvember
næstkomandi.
Til hamingju stelpur!
Varmahlíðarskóli Skagafirði
Vegna forfalla vantar kennara,
frá l.janúar nk,til að
kenna íslensku og ensku
í efri bekkjum skólans.
Upplýsingar gefur
Páll Dagbjartsson, skólastjóri
ísíma 453 8225 eða 861 8815.
Umsóknir berist til undirritaðs
Akrahreppur
Háhraðatengdur
Það em ekki mörg
sveitarfélög á landinu sem
geta státað af
háhraðatengingum í gegnum
Ijósleiðara en innan t'ðar
bætist Akrahreppurinn í hóp
Seltjarnarness, Hellu og
Hvolsvallar.
Idráttur á ljósleiðara í
Akrahreppi gengur þokkalega
þessa dagana segir á vef
Gagnaveitunnar og stofninn
ff á Grund að Flatatungu er klár
og flestar heimtaugar. Næst
verður ráðist í að koma stofni
frá Grund að Dýrfinnustöðum,
en vinna við heimlagnir er
langt komin á þeim legg.
Sauðárkrókur
Sveitarfélaginu afhent
gamla bílaverkstæðið
Jón Örn Berndsen t.h. tekur viö lyklinum úr hendi Gunnars Valgarössonar.
Garnla bílaverkstæðið við
Freyjugötu var formlega
afhent sveitarfélaginu í gær
þegar Gunnar Valgarðsson
verkstæðisformaður
afhenti Jóni Erni Berndsen
skipulags- og bygginga-
fulltrúa lyklana að húsinu.
Húsið í hefld hefur þjónað
margvíslegri starfsemi í gegn-
um áratugina en þar var m.a.
bflabúðin, rafmagns-, véla- og
nú síðast bflaverkstæðið
auk fiskeldis Máka í nyrsta
hlutanum. Hússins bíða þau
örlög að verða rifið en á lóðinni
er ætlunin að byggja íbúðarhús.
Ekki er búið að ákveða hve-
nær farið verður í rif hússins
en ljóst er að ekki verður langt
að bíða að sú vinna fari af
stað.
Austur
Húnavatnssýsla
Sauðfjár-
slátrun
lokið hjá
SAH
Haustslátrun sauðfjár
hjá SAH Afurðum ehf.
er nú lokið. Slátrað var
rúmlega 91 þúsund
fjár og var meðalvigt
um 15.9 kg. Þetta er
svipaður fjöldi og verið
hefur undanfarin ár.
Vertíðin gekk í alla
staði mjög vel og stóðu
starfsmenn sig með mikilli
prýði. Tíðarfar var að mestu
hagfellt þannig að flutningar
gengu vel og engin áföll urðu
í flutningum. Nú um helgina
fækkar ibúum Blönduóss
um ríflega 60 þegar erlendir
starfsmenn hverfa til síns
heima eftir vel heppnaða
dvöl á Blönduósi eins og
segir á heimasíðu SAH.
Sauðfjárslátrun verður
hjá SAH Afurðum þann
11. nóvember og þeir sem
hafa hug á að nýta þennan
dag eru hvattir til að hafa
samband við sláturhússtjóra
sem fyrst í síma 8962280.
GSM eftirlitsmyndavélarnar henta fyrir
heimilið, sumarbústaðinn, bátinn og hjólhýsið
1
m
B1 VEUN m VÉUN
KR 57900 kr 59900
EHF.
Pardus-Raf Suðurbraut Hofsósi
sími 453 7380 og 863 1228 netfang rafmagn@pardusehf.is