Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1914, Qupperneq 19
Alþingiskosningar 1908- 1914
15
dæmi sínu og voru 21 af þeim endurkosnir, en 1908 buðu aðeins
17 þingmenn sig fram aftur í kjördæmi sínu og voru 12 þeirra end-
urkosnir, en 5 þingmenn buðu sig fram i öðrurn kjördæmum og
náðu 2 þeirra kosningu (en kosning annars þeirra var síðar gerð
ógild).
Við kosningarnar 1914 voru kosnir 13 nýir þingmenn, 1911
sömuleiðis 13, en 1908 20. Af þessum nýju þingmönnum böfðu þó
sumir selið áður á alþingi, þótt ekki hefðu þeir átt sæti á næsta
þingi á undan kosningunum, af nýju þingmönnunum 1914 2 (Jón
Jónsson og Sigurður Gunnarsson), 1911 7 og 1908 6.
Samkvæmt kosningalögunum hljóta þeir kosningu, sem ílesl
atkvæði fá, enda þótt þeir fái eigi helming greiddra atkvæða. Við
kosningarnar 1914 voru kosnir 4 þingmenn, sem fengu færri en
helming atkvæða þeirra, sem greidd voru í kjördæminu. 1911 voru
3 þingmenn kosnir með færri en helmingi atkvæði og 1908 5 (en
kosning eins þeirra var síðar gerð ógild).
Eftirfarandi yfirlit sýnir, hve margir af framhjóðendunum
bjuggu i kjördæminu, sem þeir buðu sig fram í, og hve magir
utan J>ess.
Frambjóðendur alls 1914 1911 190K
Innanbjeraös .. 49 48 39
Utanhjeraös ... 14 25 28
Kosnir Samtals 63 73 67
Innanhjeraðs .. 24 20 17
Utanhjeraös ... 10 14 17
Samlals 34 34 34
Innanhjeraðsmönnum fjölgar meðal frambjóðenda, en ulanlijer-
aðsmönnum fækkar. Eðlilega íjölgar þá líka þingmönnum, sem hú-
sellir eru í kjördæminu, en hinum fækkar. Þó ná tiltölulega íleiri
kosningu af utanhjeraðsframbjóðendum heldur en af innanhjeraðs-
mönnum. Af innanhjeraðsframbjóðendum 1914 náði aðeins tæpur
helmingur kosningu, en af utanhjeraðsframbjóðendum rúmlega tveir
þriðju hlular. Af utanhjeraðsframbjóðendum voru 1914 11 búseltir
í Reykjavík og náðu 10 þeirra kosningu, 1911 voru 16 af þeím bú-
settir í Reykjavík og náðu 10 þeirra kosningu, en 1908 voru 18
búsettir í Reykjavík og náðu 13 þeirra kosningu. Reykvíkingar eru
þannig töluvert hlutskarpari lieldur en aðrir utanhjeraðsmenn.
Eftir atvinnu skiftusl frambjóðendur og þingmenn Jiannig við
þrjár síðuslu kosningarnar.