Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1938, Blaðsíða 44
Hagstofa íslands
gefur út eftirfarandi rit:
I. Hagskýrslur íslands. Þar eru birtar itarlegar skýrslur um þau
efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar. Skýrslurnar koma út i
sjálfstæðum heftum og fást þau keypt einstök. Af Hagskýrslun-
um er ut komið:
Yerslunarskýrslur 1912—1935.
Búnaðarskýrslur 1912—1936.
Alþingiskosningar 1908—1937.
Fiskiskýrslur og hlunninda 1912—1935.
íslensk mannanöfn 1. des. 1910.
Barnafræðsla 1909—1920.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um sambandslög 1918.
Mannfjöldaskýrslur 1911—1930.
Skýrslur um skipakomur 1913—1917.
Manntal á íslandi 1. des. 1920.
Sparisjóðir 1911—1925.
Dómsmáíaskýrslur 1913—1925.
Menn geta gerst áskrifendur að Hagskýrslunum með því að snúa
sér beint til Hagslofunnar. Áskriftargjald er 5 krónur um árið.
II. Hagtíðindi, mánaðarblað. Eru þar birtar mánaðarskýrslur um
innflutning og útflutning, smásöluverð og ýmislegt fleira, sem
ekki þykir taka að birta í sérstöku hefti af Hagskýrslunum.
Ennfremur bráðabirgðaskýrslur um ýmislegt, sem síðar koma
um itarlegri skýrslur. Af Hagtiðindum eru komnir út 21 ár-
gangar (1916—1936). Áskriftargjald er 1 króna og' 50 aurar
um árið.
III. Árbólc Hagstofu íslands. Er þar birtur útdráttur úr þeim tal-
fræðiupplýsingum, sem til eru á öllum sviðum, án þess fai'ið
sé mikið út í einstök atriði. Ennfremur eru þar allmargar töflur
með alþjóðlegum yfirlitum. Af árbókinni er út lcominn 1. árg.
1930. Kostar 3 krónur.
IV. Manntal á íslandi árið 1703 tekið að tilhlutun Árna Magnús-
sonar og Páls Yídalín. Er það prentað í heild sinni og kemur
út eilt hefti á ári. Komin eru út 13 hefti, sem ná yfir alt landið
nema nokkurn hluta af Árnessýslu. Hvert hefti kostar 3 krónur.