Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1943, Qupperneq 7

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1943, Qupperneq 7
Inngangur. Introdudion. 1. Tala kjósenda. Nombre des élecleurs. Við alþingiskosningarnar 5. júlí 1942 var tala kjósenda á kjörskrá 73 440, en við kosningarnar 18. og 19. október 1942 73 560. Var það tæpl. 60 % af landsmönnum. Síðan alþingi fékk löggjafarvald hefur tala kjós- enda við almennar alþingiskosningar verið sem hér segir: Kjósendur Af ibúatolu Kjósendur Af ibuatöli 1874 ... . ... 6 183 8.« °/o 1916 . . 28 529 31.7 °/« 1880 ... 9.i 1918 . . 31143 33.7 — 1886 ... 9.s — 1919 . . 31870 34.7 1892 ... 6 841 9.5 — 1923 . . 43 932 45.2 — 1894 ... 9.» — 1927 . . 46 047 44.9 — 1900 ... .. . . 7 329 9.o — 1931 46.i — 1902 .... 9.5 — 1933 . . 52 465 46.7 — 1903 .... 9.« — 1934 . . 64 338 56.4 — 1908 ... . . . . 11 726 14.i — 1937 . . 67 195 57.i — 1911 ..., . ... 13 136 15.4 — 1942 bh . . . . 73 440 59.7 — 1914 ..., 15.s — 1942 ,8/io . .. 73 560 59.7 — Árið 1918 fóru ekki fram alþingiskosningar, en þá fór fram atkvæða- greiðsla um sambandslögin meðal allra alþingiskjósenda. Fram að 1903 (og að því ári meðtöldu) nemur kjósendatala 9—10 % af íbúatölu lands- ins. Með stjórnarskrárbreytingunni 1903 var aukaútsvarsgreiðslan, sem kosningarréttur var bundinn við, færð niður í 4 kr. Var kjósendatala síðan 14—15 % árin 1908—14. Með stjórnarskrárbreytingunni 1915 var auka- útsvarsgreiðsla afnumin sem skilyrði fyrir kosningarrétti og konum og hjúum veittur smávaxandi kosningarréttur, þannig að aldurstakmark þeirra var í fyrstu 40 ár, en lækkaði svo á hverju ári um eitt ár. Við þetta komst kjósendatalan upp yfir 30% og smáhækkar siðan el'tir því sem aldurstakmark þessara nýju kjósenda lækkar. En með stjórnarskránni 1920 var hið sérstaka aldurstakmark þessara kjósenda alveg fellt burtu, og hækkaði þá kjósendatalan svo, að hún komst upp í hérumbil 45 %. Og með stjórnarskrárbreytingunni 1934 var aldurstakmark allra kjós- enda lækkað niður í 21 ár og sveitarstyrkþegum veittur kosningarréttur.

x

Hagskýrslur um kosningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.