Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1943, Page 11
Alþingiskosningur 1942
9
hlultakan var hlutfallslega í einstökum kjördæmum, sést á 1. yfir-
litstöflu (l)ls. 7). Mest var kosningahluttakan bæði um sumarið og
haustið i Vestur-Skaftafellssýslu (í)0.» og 92.2%), en minnst var hún um
sumarið í Strandasýslu (73.o%), cn um haustið í Vestur-Húnavatns-
sýslu (72.o%). í Vestur-Skaftafellssýslu var kosningahluttaka karla um
sumarið 95.o%, en um haustið 96.i% og kosningahluttaka kvenna um
sumarið 85.o%, en um haustið 88.3%, og var það mesta hluttaka karla
og kvenna við báðar kosningarnar, nema hvað konur í Hafnarfirði
urðu ofurlítið hærri um sumarið (86.0%). Kosningahluttaka karla var
minnst um sumarið i Gullbringu- og Kjósarsýslu (79.0%), en uin
liaustið í Borgarfjarðarsýslu (80.8%). Kosningahluttaka kvenna var
minnst um sumarið í Strandasýslu (63.5%), en um haustið í Vestur-Húna-
vatnssýslu (58.8%). Við sumarkosningarnar var hluttaka kvenna minni
í 18 kjördæmum heldur en hluttaka ltarla, þar sem hún var minnst, en
um haustið í 22 kjördæmum.
í töflu III (bls. 23—29) er sýnt, hve margir kjósendur greiddu atkvæði
í hverjum hreppi á landinu 1942. Er þar hver kjósandi talinn i þeim
hreppi, þar sem hann stóð á kjörskrá, en ekki þar sem hann greiddi
atkvæði, ef hann hefur greilt atkvæði utanhrepps. Með því að hera tölu
greiddra atkvæða saman við kjósendatöluna í sömu töflu fæst kosninga-
hluttakan í hverjum hreppi. Hvernig hrepparnir innan hvers kjördæmis
og' á landinu í heild sinni, að meðtöldum kaupstöðunum, skiptust eftir
kosningahluttöku sést á 2. yfirlitstöflu (hls. 8). Við báðar kosning-
arnar voru flestir hreppar og kaupstaðir með hluttöku milli 80 og 90 %,
jafnmargir við báðar kosningarnar, 121 eða 55 % af allri tölunni. Við
lyrri kosningarnar var kosningahluttaka meiri en 96 % aðeins i einum
hreppi, Austur-Eyjafjallahreppi (97.2%), en við síðari kosningarnar i
tveim, Fróðárhreppi og Álftavershreppi (100% í báðum). Við fyrri
kosningarnar var hluttakan í 4 hreppum minni en 60 %, í Bessastaða-
hreppi (58.a%), í Múlaliréppi (57.1%), í Grýtubakkahreppi (56.2%) og
i Skeggjastaðahreppi (51.8%). En við síðari kosningarnar var aðeins
einn hreppur fvrir neðan 60%, Fremri-Torfustaðahreppur (59.s%).
3. Atkvæðagreiðsla utauhreppsmanna.
Votanis hors (lc leur dislrict.
Samkvæmt kosningalögunum má kjörstjórn leyfa manni, sem ekki
stendur á kjörskránni, að greiða atkvæði, ef hann sannar það með vott-
orði sýslumanns, að hann standi á annarri kjörskrá í kjördæminu og
að hann hafi afsalað sér þar kosningarrétti. Við kosningarnar um sum-
arið 1942 greiddu 274 menn atkvæði í öðrum hreppi heldur en þar sem
2