Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1950, Page 11

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1950, Page 11
Alþingiskosningar 1949 9 Þegar litið er sérstaklega á hluttöku karla og kvenna í kosningunum, þá sést á 1. yfirliti (bls. 7), að hluttaka kvenna er minni en hluttaka karla. Við kosningarnar 1949 greiddu atkvæði 92.3% af karlkjósendum, en ekki nema 85.9% af kvenkjósendum. Við kosningarnar 1946 voru bæði þessi hlutföll lægri (91.5% og 83.5%), og er hækkunin nú meiri meðal kvenna en karla. í töflu I (bls. 18) sést, hve margir af kjósendum hvers kjördæmis hafa greitt atkvæði við kosningarnar 1949. Hve mikil kosningahluttakan var hlutfallslega í einstökum kjördæmum, sést á 1. yfirlitstöflu (bls. 7). Mest var kosningahluttakan í Snæfellsnessýslu (93.9%), en minnst var hún í Suður-Þingeyjarsýslu (81.8%). í Vestur-Skaftafellssýslu var kosn- ingahluttaka karla hæst (97.c%), en kvenna í Hafnarfirði (92.o%). Ivosningahluttaka karla var minnst í Barðastrandarsýslu (86.7%), en kvenna i Suður-Þingeyjarsýslu (75.2%). Hluttaka kvenna var minni í 17 kjördæmum (af 28) heldur en hluttaka lcarla, þar sem hún var minnst, en i 2 kjördæmum, Gullbringu- og' Kjósarsýslu og Norður-ísa- fjarðarsýslu, var hluttaka kvenna meiri en karla. í tölu II (bls. 19—21) er sýnt, live margir kjósendur greiddu atkvæði í hverjum lireppi á landinu 1949. Er þar hver kjósandi talinn í þeim hreppi, þar sem hann stóð á kjörskrá, en ekki þar sem hann greiddi atkvæði, ef hann hefur greitt atkvæði utanhrepps. Með því að bera tölu greiddra atkvæða saman við kjósendatöluna í sömu töflu fæst kosninga- hluttakan í hverjum hreppi. Hvernig hrepparnir innan hvers kjördæmis og á landinu í heild sinni, að meðtöldum kaupstöðunum, skiptust eftir kosningahluttöku, sést á 2. yfirlitstöflu (bls. 8). 46% af hreppum og kaupstöðum voru með hluttöku meiri en 90%. í þessum 7 hreppum var kosningahluttakan 98% og þar yfir. Fellshreppur i Strandasýslu ........................ lOO.o % Álftavershreppur í Vestur-SUaftafellssýslu ......... lOO.o — Haukadalshreppur i Dalasýslu ....................... 98.s — Hafnahreppur í Gullbringusýslu .............-....... 98.j — Skaftártunguhreppur i Vestur-Skaftafellssýslu ...... 98.i — Leiövallarlireppur i sömu sýslu .................... 98.o — Staðarsveit i Snæfellsnessýslu ..................... 98.o — í 3 hreppum aðeins var hluttakan minni en 75%, í öxarfjarðar- hreppi (74.3%), Skútustaðahreppi (73.2%) og Þórshafnarhreppi (71.o%), öllum í Þingeyjarsýslu. Heimildin til þess að liafa fleiri en einn kjörstað í hreppi eða kaup- stað hefur verið notuð á ýmsum stöðum, svo sem sjá má í töflu II (bls. 19—21). í Reykjavík voru 38 kjördeildir, en annars staðar voru þær flestar 5, á Akureyri. Eftir tölu kjördeilda skiptust hreppar og kaup- staðir þannig:

x

Hagskýrslur um kosningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.