Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1950, Page 12

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1950, Page 12
10 Alþingiskosningar 1949 1 kjördeild ................... 145 2 lcjördeildir ................... 51 3 — 21 4 — 10 5 — 1 38 — 1 229 Vegna þess að kosningar fóru að þessu sinni fram að áliðnu hausti, svo að búast mátti við, að veður kynni að hamla kjörsókn í sveitum, var svo ákveðið með hráðabirgðalögum 16. ágúst 1949, að kjördagar skyldu vera tveir, nema í þeim kjördeildum, sem að öllu leyti eru innan takmarka kaupstaðar eða kauptúns. Þó máttl ljúka kosningunni á einum degi alls staðar, þar sem kjörstjórn og frambjóðendur sam- þykktu það einróma. 89 kjördeildir á öllu landinu hafa notað sér þessa heimild og látið kosningarnar standa yfir í 2 daga. Hvar þær hafa verið á landinu, sést á töflu II (bls. 19—21). 3. Atkvæðagreiðsla utanhreppsmanna. Votants hors de leur district. Samkvæmt kosningalögunum má kjörstjórn leyfa manni, sem ekki stendur á kjörskránni, að greiða atkvæði, ef hann sannar það með vott- orði sýslumanns, að hann standi á annarri kjörskrá í kjördæminu og að hann hafi afsalað sér þar kosningarrétti. Við kosningarnar 1949 greiddu 283 menn atkvæði í öðrum hreppi heldur en þar sem þeir stóðu á kjörskrá, og var það 0.4% af þeim, sem atkvæði greiddu alls. Við undan- ar kosningar hefur þetta hlutfall verið: 1916 1.0% 1919 1923 l.i — 1927 1.4 — 1931 1933 1934 1937 ...................... 0.6 % 1942 Vi ................... 0.5 — 1942 i^io ................. 0.7 — 1944 ...................... 0.3 — 1940 ...................... 0.4 — 1949 .................... 0.4 — Þar sem slikar utanhreppskosningar aðeins geta átt sér stað i sýsl- unum, en ekki í kaupstöðunum, sem eru sérstök kjördæmi, væri þó réttara að hera tölu þessara atkvæða saman við greidd atkvæði utan kaupstaðakjördæma. Með' því móti hækkaði hlutfallstalan 1949 upp í 0.9%. Af þeim, sem kusu á kjörstað utanhrepps 1949, voru 152 karlar en 131 konur. I töflu I (bls. 18) er sýnt, hve margir kusu á jjennan hátt í

x

Hagskýrslur um kosningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.