Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1950, Qupperneq 19

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1950, Qupperneq 19
Alþingiskosningar 1949 17 lil Sjálfstæðisflokksins, 4 til Alþýðuflokksins og 4 til Sósialistaflokks- ins. Til þess að finna, hverjir frambjóðendur þingflokks, sem ekki hafa náð kosningu í kjördæmum, skuli þá uppbótarþingsæti, er farið aðallega eftir persónulegri atkvæðatölu þeirra í kjördæmunum, en þó getur þing- flokkurinn einnig haft nokkur áhrif á það með því að senda landskjör- stjórn skrá yfir frambjóðendur flokksins í þeirri röð, er flokkurinn ósk- ar, að þeir hljóti uppbótarsæti. Ekki koma til greina sem uppbótarþing- menn fyrir sama flokk fleiri en einn frambjóðandi í kjördæmi, og cr það sá, sem liæsta hefur persónulega atkvæðatölu, ef um fleiri en einn er að gera. Frambjóðendum hvers flokks, sem til greina geta komið sem uppbótarþingmenn, raðar landskjörstjórn sumpart beinlínis eftir at- kvæðatölu þeirra, sumpart eftir atkvæðatölunni í hlutfalli við gild atkvæði og sumpart eftir óskum hlutaðeigandi þingflokks. Efstur verð- ur sá, sem hefur hæsta atkvæðatölu, næstefstur sá, sem að honum frá- gengnum hefur hæsta atkvæðatölu í hlutfalli við gild atkvæði í kjör- dærninu, þriðji sá, sem þingflokkurinn hefur sett efstan á raðaðan landslista, fjórði sá, sem hefur hæsta atkvæðatölu þeirra, sem eftir eru, fimmti, sem hefur hana hlutfallslega hæsta, sjötti sá, sem er næstefstur á röðuðum landslista o. s. frv. Eftir þessari röð eru svo valdir uppbótar- þingmenn flokksins. í töflu V B (bls. 34—35), er sýnt, hvernig frambjóð- endum Alþýðuflokksins, Sósíalistaflokksins og Sjálfstæðisfloklcsins var raðað að þessu lej'ti. í töflu V C (bls. 35), er skýrt frá, hvaða framhjóðendur hlutu uppbótar- þingsætin og hverjir urðu varamenn.

x

Hagskýrslur um kosningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.