Morgunblaðið - 11.08.2015, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.08.2015, Blaðsíða 1
ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 2015 ÍÞRÓTTIR Fótbolti Atli Viðar Björnsson átti stóran þátt í sigri FH á Skaganum og hefur nú skorað alls 104 mörk í efstu deild. FH-ingar héldu toppsætinu með sigri en KR og Breiðablik unnu einnig 2-3 Íþróttir mbl.is Íslands- og bikarmeistarar Stjörn- unnar verða í dag fyrsta íslenska liðið í sjö ár sem tekur þátt í forkeppni Meistaradeildar kvenna í knatt- spyrnu. Stjarnan mætir þá Hib- ernians frá Möltu í fyrsta leik sínum í C-riðli forkeppninnar sem leikinn er á Kýpur. Önnur lið í riðlinum eru KÍ frá Færeyjum og Apollon frá Kýpur. Apollon var úthlutað gestgjafa- hlutverkinu í riðlakeppninni sem þýð- ir að allir leikir riðilsins fari fram á heimavelli liðsins í þessari viku, í dag, á fimmtudag og á sunnudag. Íslandsmeistarar hafa frá árinu 2008 átt fast sæti í 32ja liða úrslitum Meistaradeildarinnar, vegna góðs ár- angurs árin þar á undan þegar bæði Valur og Breiðablik komust í átta liða keppninnar með árs millibili. Síðustu sex ár hafa íslensku liðin hinsvegar ávallt fallið út í 32ja liða úr- slitum og það leiddi til þess að Stjarn- an þarf að fara í þessa forkeppni í ár. Fyrirfram bendir flest til þess að Stjarnan og Apollon leiki úrslitaleik riðilsins á sunnudag en bæði ættu þau að vinna auðvelda sigra á meist- araliðum Möltu og Færeyja sem hvorugt fékk stig í undankeppninni á síðasta ári. Lið KÍ frá Klaksvík er þó mjög reynt í keppninni eftir að hafa tekið þátt í henni 15 ár í röð, eina fé- lag Evrópu sem það hefur gert. Valur vann KÍ 6:0 í forkeppni árið 2007 en Færeyingarnir hafa alls unnið sex Evrópuleiki og gert fimm jafntefli. Leikur Stjörnunnar og Hibernians verður sá fyrsti á milli félagsliða frá Íslandi og Möltu frá upphafi og sama verður að segja um viðureign Apollon og Stjörnunnar. Apollon er yfirburðalið á Kýpur og með fjölda erlendra leikmanna innan- borðs. Það hefur unnið sinn forriðil fimm ár í röð og komist í 32ja liða úr- slitin. Apollon tapaði naumlega, 2:3 samanlagt, fyrir dönsku meist- urunum Bröndby í 32ja liða úrslit- unum í fyrra eftir 1:0 sigur í heima- leiknum og það sýnir líklega best hversu öflugt kýpverska liðið er og hversu krefjandi verkefnið er fyrir Stjörnuna. Stefnir í úrslitaleik gegn Apollon Morgunblaðið/Árni Sæberg Á Möltu Andinn í herbúðum Garðbæinga er góður að sögn Ólafs.  Íslands- og bikarmeistarar Stjörnunnar komnir til Kýpur  Mæta Hibernians frá Möltu í fyrsta leiknum í dag Manchester City hóf tímabilið með látum í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Fyrstu umferðinni lauk þá í Birmingham og þar hafði City með gegn WBA 3:0. Meistararnir frá árinu 2014 fara því vel af stað og virðast til alls lík- legir. Margir af þeirra mikilvægustu leikmönnum fundu sig vel í þessum fyrsta leik. Stuðningsmenn City gátu varla beðið um meira en að Ya- ya Toure myndi byrja tímabilið með tveimur mörkum en hann skoraði fyrstu tvö mörk leiksins og var City 2:0 yfir að loknum fyrri hálfleik. Fyrra markið var ekki sérlega glæsilegt og lak yfir marklínuna en hið síðara var mjög laglegt. Lúmskt skot utan teigs eftir þríhyrningsspil við Wilfried Bony sem var í byrj- unarliðinu. Sergio Aguero var hins vegar á bekknum en spilaði síðasta hálftímann. Toure var ekki í sama stuðinu á síðustu leiktíð og hann var veturinn 2013-2014 en leikurinn í gær boðar gott fyrir City. Þá skoraði fyrirlið- inn Vincent Company laglegt skallamark og kom City í 3:0 í upp- hafi síðari hálfleiks eftir hornspyrnu David Silva sem átti góðan leik. Margir knattspyrnuáhugamenn bíða spenntir eftir því hvernig Ra- heem Sterling muni reiða af í Man- chester. Hann byrjaði inn á en var tekinn út af í seinni hálfleik. Sterl- ing fékk dauðafæri í fyrri hálfleik en tókst ekki að nýta sér það. kris@mbl.is City sannfærandi  Manchester City byrjaði best stóru liðanna AFP Fjórir fræknir Silva, Toure, Bony og Company komu allir mikið við sögu hjá City í gærkvöldi.  Helena Sverrisdóttir skoraði 24 stig í sigri á Noregi, 77:73, á NM kvenna í körfubolta á þessum degi ár- ið 2004, þá aðeins 16 ára gömul.  Helena er fædd árið 1988 og uppal- in í Haukum. Hún varð snemma bráð- efnileg og var tekin inn í meistaraflokk 12 ára og A-landsliðið 14 ára. Er hún sú yngsta sem spilað hefur fyrir körfu- boltalandsliðið. Helena gerði það gott í Dallas þar sem hún lék í NCAA og fékk All American-útnefningu. Hún varð síðar atvinnumaður í Póllandi, Slóvakíu og Ungverjalandi. Hún varð fyrsta íslenska konan til að spila í Meistaradeild Evrópu í körfubolta og komst í undanúrslit árið 2013. Helena hefur leikið 57 A-landsleiki. ÍÞRÓTTA- MAÐUR- DAGSINS Óvissa virðist ríkja um hvort þrír lykilmanna Vals í sumar geti beitt sér þegar Valur og KR mætast í úrslita- leik Borgunar- bikars karla í knattspyrnu á laugardaginn. Patrick Ped- ersen var ekki með Val í gær vegna meiðsla. Markvörðurinn Ingvar Þór Kale sat á varamannabekknum og er að sögn Ólafs Jóhannessonar þjálfara einnig meiddur. Til að bæta gráu ofan á svart fór Haukur Páll Sigurðsson meiddur af leikvelli að loknum fyrri hálfleik. Valsmenn gætu því verið í kapphlaupi við tím- ann í vikunni. kris@mbl.is Kapphlaup við tímann Patrick Pedersen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.