Morgunblaðið - 11.08.2015, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 2015
upp úr liði FH í kvöld en Emil spilar
eins og kóngur á miðri miðjunni. Það
er í raun óskiljanlegt að hann hafi
verið lánaður frá Hafnarfjarðarliðinu
fyrri hluta mótsins.
Skagamenn reyndu sitt besta en
mættu ofjörlum sínum í gær. Garðar
Gunnlaugsson ógnaði mikið í lokin en
hafði hægt um sig lengst af. Leik-
menn liðsins börðust af krafti en
stundum dugar það ekki. Með svip-
aðri baráttu og liðið sýndi í lok leiks-
ins í gærkvöldi þurfa stuðningsmenn
og leikmenn liðsins ekki að óttast fall-
drauginn.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Skoraði Emil Pálsson hefur skorað tvívegis fyrir FH eftir dvölina hjá Fjölni.
Mættu ofjörl-
um sínum
Topplið FH hefur áfram þrjú stig á KR
1:0 Arnar Már Guðjónsson 4.skallaði boltann í markið eft-
ir hornspyrnu Ásgeirs Marteinssonar
1:1 Atli Viðar Björnsson 24.renndi boltanum í netið af
markteig eftir sendingu Atla Guðna-
sonar.
1:2 Emil Pálsson 49. skallaðiboltann í netið eftir frábæra
sókn.
1:3 Atli Viðar Björnsson 53.skallaði boltann í netið eftir
sendingu Jeremy Serwy frá hægri.
2:3 Garðar Gunnlaugsson 81.tæklaði boltann í markið af
miklu harðfylgi eftir langa sendingu
fram völlinn.
I Gul spjöld:Ingimar (ÍA), 25. (brot), Ólaf-
ur (ÍA) 65. (brot), Hendrickx (FH) 46.
(brot), Doumbia (FH) 51. (brot), Ró-
bert (FH) 90. (brot).
I Rauð spjöld: Andelkovic (ÍA) 90. (mót-
mæli)
MM
Emil Pálsson FH
Atli Viðar Björnsson FH
M
Arnór Snær Guðmundsson (ÍA)
Garðar Gunnlaugsson (ÍA)
Böðvar Böðvarsson (FH)
Þórarinn Ingi Valdimarsson (FH)
Jeremy Serwy (FH)
Akranesvöllur, Pepsi-deild karla, 15.
umferð, mánudag 10. ágúst 2015.
Skilyrði: Völlurinn er grænn og flottur.
Hitinn um 8 gráður og talsverður næð-
ingur.
Skot: ÍA 11 (6) – FH 11 (8).
Horn: ÍA 2 – FH 12.
ÍA: (4-4-2) Mark: Árni Snær Ólafsson.
Vörn: Þórður Þ. Þórðarson, Ármann
Smári Björnsson, Arnór S. Guðmunds-
son, Darren Lough. Miðja: Ingimar Elí
Hlynsson (Ólafur Valur Valdimarsson
58), Arnar Már Guðjónsson, Albert
Hafsteinsson (Marko Andelkovic 86),
Ásgeir Marteinsson (Jón Vilhelm Áka-
son 64). Sókn: Eggert Kári Karlsson,
Garðar B. Gunnlaugsson.
FH: (4-3-3) Mark: Róbert Örn Ósk-
arsson. Vörn: Jonathan Hendrickx,
Kassim Doumbia, Pétur Viðarsson,
Böðvar Böðvarsson (Samuel Tillen
72). Miðja: Davíð Þór Viðarsson, Emil
Pálsson, Atli Guðnason. Sókn: Jérémy
Serwy, Atli Viðar Björnsson (Kristján
Flóki Finnbogason 78), Þórarinn Ingi
Valdimarsson.
Dómari: Garðar Örn Hinriksson – 7
Áhorfendur: 879.
ÍA – FH 2:3
Morgunblaðið/Golli
Mark Jonathan Glenn skoraði sitt annað mark fyrir Breiðablik í gær gegn Valsmönnum en sigurinn var þeim afar mikilvægur í toppbaráttunni.
Á AKRANESI
Jóhann Ólafsson
johann@mbl.is
FH-ingar keyrðu glaðir heim frá
Akranesi eftir 3:2 sigur á ÍA í 15. um-
ferð Pepsi-deildar karla í knatt-
spyrnu í gærkvöldi. FH hefur áfram
þriggja stiga forskot á KR á toppi
deildarinnar en Hafnarfjarðarliðið
hefur nú 33 stig. ÍA er í 9. sæti með
17 stig.
Eins og lokatölurnar gefa til kynna
var leikurinn bráðfjörugur. Heima-
menn komust yfir strax á 4. mínútu
en gestirnir voru miklu betri í fyrri
hálfleik og náðu að jafna og staðan
1:1 í hálfleik.
Hafnfirðingar voru áfram með yf-
irburði í síðari hálfleik og komust
fljótlega í 3:1 forystu. Skagamenn
neituðu að gefast upp og minnkuðu
muninn skömmu fyrir leikslok. Þrátt
fyrir ágætar tilraunir þeirra, þar á
meðal skot í stöng, náðu þeir ekki að
jafna og FH-ingar fögnuðu sætum
sigri.
Hafnfirðingar eru heppnir að í
þeirra röðum er maður sem skorar
alltaf mörk. Atli Viðar Björnsson er
ótrúlegur markaskorari og skoraði
tvö mörk í kvöld en kappinn er kom-
inn með 104 mörk í efstu deild sem
er frábær árangur hjá Dalvíkingnum
knáa. „Þetta var góður sigur hjá okk-
ur og mikilvæg þrjú stig sem við tök-
um með í bæinn,“ sagði Atli Viðar við
Morgunblaðið eftir leik. „Ég er
ánægður að fá að spila og það gengur
ágætlega þessa dagana. Við höldum
okkur samt á jörðinni, það er bara
næsta æfing og næsti leikur.“
Atli Viðar og Emil Pálsson stóðu
Aron Pálm-arsson vann
um helgina sinn
fyrsta titil með
ungverska liðinu
Veszprém þegar
liðið hrósaði sigri
á hinu árlega
Sparkassen Cup í
Þýskalandi. Aron
mætti sínum gömlu félögum í Kiel í
úrslitaleiknum og vann Veszprém
stórsigur, 32:19, eftir að hafa verið
yfir, 18:9, í hálfleik. Aron skoraði 2
mörk í leiknum en Gergö Ivancsik
var markahæstur með 7 mörk og
hann var mótslok valinn besti leik-
maður keppninnar. Hjá Kiel var
Rune Dahmke markahæstur með 6
mörk.
Drengjalandslið Íslands í knatt-spyrnu fékk bronsverðlaunin á
opna Norðurlandamótinu sem lauk í
Svíþjóð en íslensku strákarnir lögðu
Dani að velli í leiknum um þriðja
sætið á mótinu. Leikurinn endaði
0:0 þrátt fyrir góð færi íslensku
strákanna til að skora og því var
gripið til vítaspyrnukeppni. Þar
skoruðu Arnór Sigurðsson, Atli
Hrafn Andrason, Aron Kári Að-
alsteinsson, Birkir Heimisson og
Kristófer Ingi Kristinsson úr fimm
spyrnum Íslands en Dönum brást
bogalistin einu sinni og lokatölur því
5:4. Svíar sigruðu Pólverja 1:0 í úr-
slitaleiknum og Ísland hafnaði því í
öðru sæti af Norðurlandaþjóðunum.
Eini tapleikur íslensku strákanna á
mótinu var gegn þeim sænsku í
fyrsta leik riðlakeppninnar.
U19 ára lands-liðs Íslands
vann Spán, 25:24,
á sunnudag á
Heimsmeist-
aramótinu í
handknattleik.
Lokakafli leiks-
ins var æsispenn-
andi en Spán-
verjar jöfnuðu í 24:24 þegar ein tæp
ein mínúta var eftir af leiktímanum.
Það var síðan markahæsti leik-
maður Íslands í leiknum, Ómar Ingi
Magnússon, sem tryggði liðinu sig-
ur og stigin tvö þegar nokkrar sek-
úndur voru eftir af leiknum.
Ísland er í 2. sæti B-riðils eftir tvo
leiki en báðir hafa þeir unnist.
Íslandsmeist-arinn í högg-
leik, Þórður Rafn
Gissurarson úr
GR, lék í gær á
höggi undir pari á
móti í Bochum
sem er hluti af
þýsku Progolf-
mótaröðinni en
þar hefur Þórður leikið á þessu ári.
Skorið í mótinu var gott á fyrsta
degi og er Þórður í 44. sæti. Þórður
fékk fjóra fugla á hringnum, þrjá
skolla og paraði rest. Þórður er í 26.
sæti á stigalista mótaraðarinnar.
Þórður hefur leikið vel að und-
anförnu og hafnaði í 3. sæti í móti á
mótaröðinni í júlí og fylgdi því eftir
með sigri á Íslandsmótinu á Akra-
nesi helgina eftir.
Björk Kristjánsdóttir og IngvarÓmarsson urðu Íslandsmeist-
arar í götuhjólreiðum í gær. Mótið
fór fram í Hvalfirði og tóku tæplega
60 manns þátt. Björk Kristjáns-
dóttir var fyrst í mark í kvenna-
flokki eftir spennandi endasprett við
Maríu Ögn Guðmundsdóttur. Björk
hjólaði 86 kílómetra á tímanum
2:47:26. Ása Guðný Ásgeirsdóttir
var þriðja sæti. Í karlaflokki var
Ingvar Ómarsson fyrstur í mark,
Miroslaw Adam Zyrek var annar og
Óskar Ómarsson sá þriðji. Ingvar
fór 110 kílómetra á tímanum
2:58:59.
Bæði Björk og Ingvar hjóla undir
merkjum Tinds.
Fólk sport@mbl.is