Morgunblaðið - 11.08.2015, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.08.2015, Blaðsíða 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. ÁGÚST 2015 Í VESTURBÆNUM Hjörvar Ólafsson hjorvaro@mbl.is Fylkismenn mættu til leiks af mikl- um krafti þegar þeir mættu KR á Alvogen-vellinum í gær. Strax á upp- hafsmínútum leiksins fengu leikmenn Fylkis nokkur fín færi til þess að komast yfir. Leikurinn var nokkuð harður, leikmenn gáfu ekkert eftir í návígi og nokkur hiti var á milli leik- manna liðanna. Dómari leiksins var fullsmámuna- samur og dæmdi oft og tíðum auka- spyrnur fyrir litlar sakir og af þeim sökum var lítið flæði í spili beggja liða. KR-ingar fengu sín færi þegar komust upp að endamörkum og náðu í kjölfarið fínum fyrirgjöfum á meðan Fylkir skapaði sín færi með bein- skyttum sendingum á snögga og áræðna framherja sína. Fylkismenn voru afar skipulagðir og agaðir í varnarleik sínum og gáfu fá færi á sér. Sóknarleikur KR var fremur hægur á köflum og vantaði meiri kraft í sóknaraðgerðir liðsins. Krafturinn í sóknarleik Fylkis þvarr eftir því sem leið á leikinn og liðið fór niður í skotgrafirnar og uppleggið breyttist úr því að vera staðráðnir í að sigra leikinn í að tryggja sér eitt stig. Sóknarþungi KR þyngdist eftir því sem leið á leikinn og það var Þor- steinn Már Ragnarsson sem braut ís- inn og eftir það brast stíflan og Pálmi Rafn Pálmason bætti við öðru marki skömmu síðar. Það voru varamenn- irnir Almarr Ormarsson og Þorsteinn Már Ragnarsson sem fundu glufu á þéttri vörn Fylkis í fyrra markinu. Almarr hleypti lífi í sóknarleik KR með innkomu sinni og átti nokkrar hættulegar fyrirgjafir eftir að hann kom inn um miðbik seinni hálfleiks. Það ber að hrósa KR-ingum fyrir að láta ekki deigan sína þrátt fyrir að útlitið væri orðið svart og margt sem benti til þess að jafntefli yrði stað- reyndin. Leikmenn KR voru þol- inmóðir og uppskáru á endanum tvö lagleg mörk. Að sama skapi eiga Fylkismenn heiður skilinn fyrir þá vinnu og orku sem þeir lögðu í leikinn. Leikmenn Fylkis virtust hins vegar klára orku- tankinn um miðbik seinni hálfleiks sem varð til þess að þeir náðu ekki að fá eitthvað út úr leiknum sem þeir áttu svo sannarlega skilið. Eltingaleikur KR við FH á toppi deildarinnar heldur því áfram og munurinn milli liðanna ennþá þrjú stig. Vonir Fylkis um Evrópusæti verða langsóttari eftir þetta tap. Sæti í Evrópukeppni er þó enn raunhæfur möguleiki, en það þarf margt að ger- ast til þess að erlend lið mæti á Fylk- isvöllinn næsta sumar. Þorsteinn jók sóknarþungann  Mörkin létu bíða eftir sér hjá KR Morgunblaðið/Eva Björk Fagnað Pálmi Rafn fagnar marki sínu með Jónas Guðna á bakinu. hvort þeir tækju þátt í þeim leik. Mögulega er reynsluleysi marga leikmanna í Valsliðinu að verða þeim að falli nú þegar sjö umferðir eru eftir af mótinu. Liðið hefur tapað fimm leikjum í sumar – sá þriðji í röð í gær, þegar allt var undir. Blikar fengu færin til þess að klára leikinn í síðari hálfleik en náðu ekki að nýta þau. Oft þegar að það gerist fá lið það í bakið en það gerð- ist ekki í gær. „Það er hægt að segja það en það er erfitt að skora á móti okkur. Við gefum fá færi á okkur og allir liðinu vinna hver fyrir annan. En nei, mér finnst það góð holning á liðinu núna að mér myndi ekki finnast það týp- ískt að það myndi gerast í dag,“ sagði Kristinn Jónsson, bakvörður Blika, við Morgunblaðið sem hefur verið einn besti leikmaður Íslands- mótsins til þessa fékk til að mynda algjört dauðafæri, reyndi að vippa yfir Anton Ara Einarsson í marki Valsara en boltinn fór laflaust framhjá. „Ég fékk ágætis færi og tók ákvörðun um að vippa og stend við hana. Því miður, þá náði ég ekki að skora,“ sagði Kristinn en aðspurður sagði hann að þetta hefði farið í gegnum hugann þegar hann klúðr- aði: „Drífðu þig aftur í vörnina og farðu að verjast.“ Hann reynir að njóta þess að spila fótbolta þessa dagana og er ekki farinn að hugsa um það hvort hann ætli að láta reyna á atvinnumannadrauminn aft- ur. „Ég hef aldrei upplifað svona góða stemningu og er í Breiðabliki í dag,“ sagði Kristinn sem segir stemninguna í hópnum vera betri en þegar Blika tóku titilinn árið 2010. Titilbarátta þriggja liða  Valsmenn kvöddu baráttuna um Íslandsmeistaratitilinn  Kristinn Jónsson segir stemninguna í Blikaliðinu vera betri en þegar liðið varð meistari árið 2010 1:0 Þorsteinn Már Ragnarsson79. fékk sendingu frá Almari Ormarssyni og átti skot sem var var- ið en boltinn fór aftur í Þorstein og í netið. 2:0 Pálmi Rafn Pálmason 83.skaut föstu skoti á víta- teigslínunni sem hafði viðkomu í varnarmanni og í netið. I Gul spjöld:Stefán (KR) 25. (brot), Aron (KR) 83., (brot), Ragnar Bragi (Fylki) 25. (brot), Hákon Ingi (Fylki) 48., Radovinkovic (Fylki) 56. (brot), Ásgeir Börkur (Fylki) 87. (brot). I Rauð spjöld: Engin. M Óskar Örn Hauksson (KR) Jakob Schoop (KR) Pálmi Rafn Pálmason (KR) Albert Brynjar Ingason (Fylki) Ólafur Íshólm Ólafsson (Fylki) Alvogen-völlur, Pepsi-deild karla, 15. umferð, mánudag 10. ágúst 2015. Skilyrði: Stillt veður, en nokkuð kalt. Völlurinn leit vel út. Skot: KR 17 (5) – Fylkir 5 (4). Horn: KR 7 – Fylkir 3. KR: (4-3-3) Mark: Stefán Logi Magn- ússon. Vörn: Aron Bjarki Jósepsson, Rasmus Christiansen, Skúli Jón Frið- geirsson, Gunnar Þór Gunnarsson. Miðja: Jónas Guðni Sævarsson, Pálmi Rafn Pálmason (Kristinn J. Magn- ússon 85), Jacob Schoop. Sókn: Sör- en Frederiksen (Almarr Ormarsson 73), Hólmbert Friðjónsson (Þorsteinn Ragnarsson 36), Óskar Örn Hauksson. Fylkir: (4-4-2) Mark: Ólafur Íshólm Ólafsson. Vörn: Andrés Már Jóhann- esson, Tonci Radovinkovic, Ásgeir Ey- þórsson, Tómas Þorsteinsson. Miðja: Ragnar Sveinsson (Ingimundur N. Óskarsson 59), Jóhannes K. Guð- jónsson (Oddur Guðmundsson 64), Ásgeir B. Ásgeirsson, Ásgeir Örn Arn- þórsson. Sókn: Hákon Jónsson (Kjart- an Ágúst Breiðdal 75), Albert Ingason. Dómari: Valdimar Pálsson – 6. Áhorfendur: 1.501. KR – Fylkir 2:0 Laugardalsvöllur, Pepsi-deild karla, 15. umferð, mánudag 10. ágúst 2015. Skilyrði: Skýjað, völlurinn góður. Skot: Valur 13 (3) – Breiðablik 9 (2). Horn: Valur 10 – Breiðablik 3. Valur: (4-3-3) Mark: Anton Ari Ein- arsson. Vörn: Andri Fannar Stef- ánsson, Thomas Christensen, Orri S. Ómarsson, Bjarni Ólafur Eiríksson. Miðja: Haukur Páll Sigurðsson (Iain Williamson 46), Kristinn Freyr Sig- urðsson, Mathias Schlie. Sókn: Kristinn Ingi Halldórsson (Andri Adolphsson 77), Emil Atlason, Sig- urður Egill Lárusson. Breiðablik: (4-3-3) Mark: Gunnleifur Gunnleifsson. Vörn: Arnór S. Að- alsteinsson (Guðmundur Friðriksson 81), Elfar Freyr Helgason, Damir Muminovic, Kristinn Jónsson. Miðja: Ellert Hreinsson, Oliver Sigurjónsson (Andri Rafn Yeoman 59), Höskuldur Gunnlaugsson. Sókn: Guðjón Pétur Lýðsson (Atli Sigurjónsson 77), Jo- nathan Glenn, Arnþór Ari Atlason. Dómari: Vilhjálmur Alvar Þór- arinsson – 6. Áhorfendur: 992. Valur – Breiðablik 0:1 Pepsi-deild karla ÍA – FH ..................................................... 2:3 Keflavík – Fjölnir ..................................... 1:1 Valur – Breiðablik .................................... 0:1 KR – Fylkir............................................... 2:0 Staðan: FH 15 10 3 2 33:19 33 KR 15 9 3 3 25:13 30 Breiðablik 15 8 5 2 23:9 29 Valur 15 7 3 5 24:18 24 Fjölnir 15 7 3 5 22:20 24 Stjarnan 15 5 5 5 18:17 20 Fylkir 15 5 5 5 15:20 20 Víkingur R. 15 4 5 6 23:23 17 ÍA 15 4 5 6 19:23 17 ÍBV 15 4 2 9 17:26 14 Leiknir R. 15 3 4 8 14:21 13 Keflavík 15 1 3 11 14:38 6 Markahæstir: Patrick Pedersen, Val ................................. 8 Þórir Guðjónsson, Fjölni ............................ 7 Atli Viðar Björnsson, FH ........................... 6 Jeppe Hansen, Stjörnunni.......................... 6 Jonathan Glenn, Breiðabliki/ÍBV .............. 6 Pepsi-deild kvenna ÍBV – Afturelding.................................... 5:1 Chloe Lacasse 17., 44., Díana Dögg Magn- úsdóttir 20., Kristín Erna Sigurlásdóttir 36., Guðrún Bára Magnúsdóttir 89. – Stef- anía Valdimarsdóttir 88. Staðan: Breiðablik 12 11 1 0 35:2 34 Stjarnan 13 11 0 2 36:7 33 ÍBV 13 7 1 5 30:19 22 Þór/KA 12 6 3 3 32:19 21 Valur 13 7 0 6 26:32 21 Selfoss 12 6 2 4 20:13 20 Fylkir 12 6 1 5 22:22 19 KR 12 1 3 8 9:28 6 Þróttur R. 12 0 2 10 4:35 2 Afturelding 13 0 1 12 7:44 1 Markahæstar: Fanndís Friðriksdóttir, Breiðabliki ........ 14 Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Fylki ..... 12 Harpa Þorsteinsdóir, Stjörnunni............. 11 Elín Metta Jensen, Val ............................... 9 Sandra María Jessen, Þór .......................... 9 England WBA – Manchester City ......................... 0:3 Þýskaland Bikarkeppnin, 1. umferð: Aalen – Nürnberg ................................... 0:0  Rúrik Gíslason lék í 55 mínútur með Nürnberg sem sigraði 2:1 í vítaspyrnu- keppni. Holland B-deild: Jong PSV – Go Ahead Eagles ................ 1:0  Hjörtur Hermannsson fór af velli á 32. mínútu en Albert Guðmundsson sat á bekknum hjá PSV allan tímann. Rússland Krasnodar – Kuban Krasnodar ............. 1:1  Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn í vörn Krasnodar. Danmörk AaB – Midtjylland.................................... 0:2  Eyjólfur Héðinsson hjá Midtjylland er frá keppni vegna meiðsla. Staðan: Midtjylland 4 4 0 0 7:1 12 AGF 4 2 2 0 7:5 8 OB 4 2 1 1 7:4 7 København 3 2 1 0 6:3 7 SønderjyskE 4 2 0 2 8:5 6 Viborg 4 1 2 1 3:4 5 Randers 3 1 1 1 8:6 4 AaB 4 1 1 2 3:5 4 Hobro 4 1 1 2 3:5 4 Nordsjælland 4 1 1 2 3:7 4 Brøndby 4 0 1 3 5:9 1 Esbjerg 4 0 1 3 3:9 1 Svíþjóð AIK – Djurgården .................................. 1:0  Haukur Heiðar Hauksson lék allan leik- inn með AIK. Kalmar – Sundsvall ................................ 0:2  Rúnar Már Sigurjónsson og Jón Guðni Fjóluson léku allan leikinn með Sundsvall. Staðan: Gautaborg 19 11 5 3 30:12 38 Norrköping 19 11 5 3 32:20 38 Djurgården 19 10 6 3 30:17 36 AIK 19 10 6 3 36:24 36 Elfsborg 18 10 5 3 33:20 35 Malmö 19 9 7 3 37:25 34 Helsingborg 19 8 3 8 27:25 27 Gefle 18 7 5 6 21:25 26 Häcken 19 6 6 7 23:22 24 Kalmar 19 6 4 9 21:23 22 Sundsvall 19 5 5 9 21:30 20 Hammarby 19 4 7 8 22:27 19 Falkenberg 19 4 4 11 21:36 16 Halmstad 19 3 6 10 12:24 15 Örebro 19 2 7 10 14:37 13 Åtvidaberg 19 1 7 11 18:31 10 KNATTSPYRNA KNATTSPYRNA Pepsi-deild kvenna: Þórsvöllur: Þór/KA – KR ..........................18 Kópavogsv.: Breiðablik – Fylkir..........19.15 Valbjarnarv.: Þróttur R. – Selfoss.......19.15 Í KVÖLD! 0:1 Jonathan Glenn 38. fékkskotið frá Guðjóni Pétri Lýðsson í höfuðið, boltinn breytti um stefnu og í netið. I Gul spjöld:Haukur Páll (Val) 32.(brot), Christensen (Val), Sigurður (Val) 90. (brot)., Arnór (Breiðabliki) 34 (brot), Oliver (Breiðabliki) 53. (brot)., Atli (Breiðabliki) 89. (brot), Höskuldur (Breiðabliki) 90. (brot). I Rauð spjöld: Engin. M Bjarni Ólafur Eiríksson (Val) Kristinn Freyr Sigurðsson (Val) Sigurður Egill Lárusson (Val) Jonathan Glenn (Breiðabliki) Damir Muminovic (Breiðabliki) Elfar Freyr Helgason (Breiðabliki) Í LAUGARDAL Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Stigin þrjú sem Blikar fengu í gær- kvöldi á kostnað Vals á Laugardals- vellinum voru risastór og ekki minnka þau í augum Valsara sem sitja eftir í 4. sætinu. Mögulega gerðist það í síðasta leik en það var endanlega staðfest í dag að titilbar- áttan verður á milli þriggja liða. FH trónir á toppnum með 33 stig, KR hefur 30 stig og Blikar hafa 29 stig. Valsmenn sitja eftir með sárt ennið og þriðja tapið í röð í deildinni 24 stig. Lokatölur í leiknum gegn Blikum í gær voru 1:0 þar sem Jonathan Glenn skoraði sigurmarkið. Vals- menn spiluðu hins vegar ágætlega í leiknum – sér í lagi í fyrri hálfleik en þeir virkuðu stóra hluta leiks bit- lausir fram á við. Danski framherj- inn Patrick Pedersen er meiddur og var ekki með í gær og án hans virð- ast Valsmenn varla geta skorað. Hann missti einnig af leik Valsara gegn Víkingum og þar enduðu leik- ar aftur, 1:0. Auk Pedersen var Ingvar Þór Kale ekki með Val í gær. Þeir glíma báðir við meiðsli en mögulega voru þeir hvíldir í dag vegna bikarúrslitaleiksins sem framundan er gegn KR. Í samtali við Morgunblaðið eftir leik sagði Ólafur Jóhannesson að óljóst væri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.