Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1960, Blaðsíða 7

Hagskýrslur um kosningar - 01.01.1960, Blaðsíða 7
INNGANGUR Introduction 1. BREYTINGARÁ STJORNARSKRÁ OG KOSNINGALÖGUM New electoral system Vorið 1959 var lagt fyrir Alþingi frumvarp til stjórnarskipunarlaga, sem fól í sér breytingu á ákvæðum 31. gr. stjórnarskrárinnar 17. júní 1944 um tölu þingmanna og kjördæmaskipun við alþingiskosningar. Flutningsmenn þessa frumvarps voru þeir Ölafur Thors, formaður Sjalfstæðisflokksins, Emil jónsson, formaður Alþýðuflokks- ins og Einar Olgeirsson, formaður Sameiningarflokks alþýðu-sósíalistaflokksins. Frum- varp þetta var samþykkt á Alþingi 9% maí 1959 með atkvæðum allra þingmanna ofan greindra flokka, en þingmenn Framsóknarflokksins greiddu atkvæði á móti því. í 79. gr. stjórnarskrárinnar er svo fyrir mælt, að nái tillaga um breytingu á stjórnar- skránni samþykki beggja þingdeilda, skuli þegar rjúfa þing og stofna til almennra al- þingiskosninga. Samþykki hið nýja þing breytinguna óbreytta, skal hún, eftir stað- festingu forseta lýðveldisins, taka gildi sem stjórnarskipunarlög. Samkvæmt þessu var Alþingi rofið frá og með 28. júní 1959 og efnt til nýrra kosninga þann dag. Var þetta gert með forsetabréfi 11. mai 1959. Almennar kosningar til Alþingis höfðu síðast farið fram 24. júní 1956, og átti umboð þingmanna því að standa til sumars 1960, ef ekki hefði komið til þingrofs. Eftir kosningarnar í júní 1959 kom Alþingi saman til aukafundar 21. júlí 1959. Fyrir það þing var lagt frumvarp til stjórnarskipunarlaga, samhljóða því frumvarpi, sem samþykkt var á þingi um vorið. Frumvarp þetta var samþykkt með atkvæðum þingmanna sömu flokka og áður, og afgreitt sem lög frá Alþingi (lög nr. 51 14. ágúst 1959). Jafnframt þessu samþýkkti aukaþingið frumvarp til laga um kosningar til Al- þingis (lög nr. 52 14 á^úst 1959), enda þurfti að setja ný kosningalög til sam- ræmis við hin nýju stjomarskrárákvæði. í stjórnarskiptinarlögunum frá 14. ágúst var bráðabirgðaákvæði um, að almenn- ar kosningar til Alþingis skyldu fara fram þegar eftir gildistöku laganna, og að umboð þingmanna félli niður á kjördegi. Þá voru og í nýju kosningarlögunum bráðabirgðaákvæði þess efnis, að í kosningum þeim, sem fram færu næst eftir gildis— töku laganna, skyldu kjördagar vera tveir, þó ekki í þeim kjördeildum, sem eru að öllu leyti innan takmarka kaupstaðar eða kauptúns. Ef öll kjörstjórn væri sammála og allir frambjóðendur samþykktu, skyldi þó kjörstjórn heimilt að ákveða við lok fyrri kjördags, að eigi skyldu vera fleiri kjördagar í kjördeildinni, og einnig skyldu einróma kjörstjórnarmenn geta tekið þessa ákvörðun einir, ef 80°]o kjósenda hefðu neytt kosningaréttar hinji fyrri kjördag. Samkvæmt þessum akvæðum var efnt til almennra alþingiskosninga dagana 25. og 26. október 1959. Var það gert með forsetabréfi 15. águst 1959. Eins og fyrr segir fólu stjórnarskipunarlögin í sér breytingu á 31.gr. stjórnarskrár- innar. Greinin hljóðar nú svo: "Á Alþingi eiga sæti 60 þjóðkjörnir þingmenn, kosnir leynilegum kosningum, þar af: a. 25 þingmenn kosnir hlutbundinni kosningu í 5 fimm manna kjördæmum: Vesturlandskjördæmi: Borgarfjarðarsýsla, Akraneskaupstaður, Mýrasýsla, Snæ- fellsnes- og Hnappadalssýsla og Dalasýsla. Vestfjarðakjördæmi: Barðastrandarsýsla, Vestur-ísafjarðarsýsla, ísafjarðarkaup- staður, Norður-ísafjarðarsýsla, Strandasýsla.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Hagskýrslur um kosningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagskýrslur um kosningar
https://timarit.is/publication/1173

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.